Mosfellingur - 11.01.2008, Blaðsíða 16
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
SK
YL
DL
EI
KA
DÁ
LK
UR
IN
N
Jens Hansson
Sálin hans Jóns míns
Hans Jensson
Lúdó og Stefán
FEÐ
GA
R
Japanskur kjúklingaréttur
Í eldhúsinu
Valgerður Sigurðardóttir
þjónustufulltrúi Mosfellsbæjar.
„Það hafa allir hjá mér, ungir sem
eldri, fallið fyrir þessum rétti. Og hvað
er nú betra en að sjá alla njóta ma-
tarins? Auk þess er þetta réttur sem
auðvelt er að elda, ferskt og gott
bragð og léttur í maga.”
• 4 bringur skinnlausar
• ½ bolli olía
• ¼ bolli Balsamic edik
• 2 msk sykur
• 2 msk soyasósa
Soðið saman í ca 1 mín, kælt og hrært
annað slagið á meðan það kólnar.
• 1 poki núðlur (Instant súpunúðlur)
• Möndluflögur (3-4 matskeiðar)
• Sesamfræ (1-2 matskeiðar)
Þetta er ristað á þurri pönnu,
núðlurnar brotnar í smáa bita og þær
ristaðar fyrst því þær taka lengstan
tíma, síðan möndlurnar og fræin
(kælt). ATH. núðlurnar eiga að vera
stökkar.
Salatpoki blandað t.d. tómatar
(sherry tómatar), 1 mangó og 1 lítill
rauðlaukur.
Kjúklingabringurnar skornar í ræmur
og snöggsteiktar í olíu. Sweet hot
Chillisósu hellt yfir og
látið malla í smá stund.
Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið,
síðan núðlugumsið ofan á, svo Bal-
samic blandað yfir og að síðustu er
heitum kjúklingaræmunum dreift yfir.
Borðað með hvítlauksbrauði. Gott er
að geyma eitthvað eftir af sósunni og
bera fram með réttinum. Sósan er líka
góð með brauðinu.
Verði ykkur að góðu.
HJÁ VALGERÐI
Heyrst hefur...
...að Sigsteinn Pálsson sé
elsti núlifandi karlmaðurinn á
landinu, hann er 102 ára gamall.
...að spekúlantarnir okkar í
spurningaþættinum Útsvari keppi
í annarri umferð við Hornafjörð
þann 25. janúar næstkomandi.
...að handbolta-Reynir muni fjölga
mannkyninu á árinu.
...að Kiddi Friðþjófs sé jafnvel
skarpari en skólakrakki.
...að Jói Ben sé áramótameistari
borðtennisklúbbsins Spaðans.
...að flestir Mosfellingar séu á 42.
aldursári skv. þjóðskrá.
...að starfsfólkið í Snælandi
hafi komist í hann krappann á
þrettándanum. Sjoppan fylltist af
unglingum sem þurfti að hemja.
Snælandskóngurinn varð víst fyrir
fólskulegri árás. Felgulykill kom við
sögu og vottur af unglingadrykkju.
...að hið vinsæla karlakvöld Lions
fari fram í Hlégarði þann 15. jan.
...að Geiri Slæææ bjóði öllum velunn-
urum í Mosfellsbæ í afmælið sitt á
morgun, laugardag, á Klúbbnum.
...að handboltafrömuðir leiti nú
logandi ljósi að liðstyrk fyrir
komandi átök en leikmanna-
markaður er nú opinn til 1. feb.
...að þátttaka á þorrablót UMFA sé
orðin það mikil að bæta þurfti
við hundruðum sæta til að anna
eftirspurn.
...að pólskir verkamenn hafi komið
Mosfellingum yfir 8000 manna
múrinn í íbúafjölda.
...að sr. Jón sé kominn aftur til starfa
...að Hrói Höttur sé að ná yfirtökum
á Pizzabænum.
...að Þorrablótið í Kjósinni verði
haldið 26. janúar í Félagsgarði.
...að enn seinki framkvæmdum á
reiðhöll Harðarmanna.
...að Sigurður Hreiðar bloggari sé
með þá hugmynd að skíra öll
hringtorg bæjarins.
...að til standi að stofna 3. deildarlið
fyrir næsta sumar sem myndi vera
nokkursskonar Afturelding B.
...að næsti Mosfellingur komi út
þann 1. febrúar næstkomandi
Endilega sendið okkur slúður
mosfellingur@mosfellingur.is
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar16
Það þurfti ekki að bíða lengi eftir
því að fyrsti Mosfellingur ársins kæmi
í heiminn. En stúlkan sem fæddist á
nýársnótt er jafnframt fyrsta barn ársins
2008 og er því strax farin að kynn ast því
að vera í sviðsljósinu.
Stúlkan reyndist vera 15 merkur og
fæddist á kvennadeild Landspítalans
fi mm mínútur yfi r eitt á nýársnótt. For-
eldrar hennar eru Sólveig Ragnarsdótt-
ir og Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson
sem fyrir eiga soninn Ragnar Bjarna
á átt unda ári. Haraldur Sverrisson
bæjar stjóri heimsótti foreldra og bróður
stúlkunnar að heimili þeirra með blóm-
vönd og innilegum hamingju óskum.
Fyrsti Mosfellingur ársins fæddist á nýársnótt
Fyrsta barn ársins
A
ft
u
r
e
l
d
in
g
a
r