Mosfellingur - 11.01.2008, Blaðsíða 14

Mosfellingur - 11.01.2008, Blaðsíða 14
Elding - líkamsræktarstöð hefur opnað glæsilega aðstöðu að Varmá. Halla Heimisdóttir íþróttakennari og Hjalti „Úrsus” Árnason kraftlyft- ingamaður hafa stofnað fyrirtækið Eldingu og reka saman þrek- og líkamsræktaraðstöðuna að Varmá. Stutt er síðan Toppform sameinaðist World Class og færði alla starfsemi sína í Lækjarhlíð. Elding mun því vera í gömlu aðstöðunni í íþrótta- húsinu að Varmá. Stuðningur frá bænum Mosfellsbær styður dyggilega við verkefnið og er ætlunin að efla aðstöðu fyrir íþróttafólk með sérhæfðri aðstöðu s.s. með því að: - efla stuðning við afreksíþróttafólk. - auka samvinnu milli félaga og deilda í formi sameiginlegrar styrkt- arþjálfunar í líkamsræktarsal. - veita góða aðstöðu til almennrar líkamsþjálfunar fyrir almenning sem þess óskar. - stuðla að þróunarverkefnum í lýðheilsufræðum í samvinnu við skóla bæjarins og nýta þannig sérþekkingu í því sambandi. - koma Mosfellsbæ í fremstu röð meðal sveitarfélaga í lýðheilsuefl- ingu og afreksþjálfun. Elding mun taka að sér þá afreks- íþróttamenn sem íþróttafélögin í bænum skilgreina sem slíka í samvinnu við íþróttafulltrúa og starfsmenn Eldingar. Kærkomin aðstaða Fyrir liggur að íþróttafélögin hafa beðið eftir slíkri aðstöðu í mörg ár og hafa þurft að leita eftir þessari þjónustu annars staðar. Elding er því kærkomin búbót þar á og býður upp á ýmsa möguleika og hjálpar vonandi afreksfólki úr okkar röðum að ná enn lengra en áður. „Ólympískar lyftingar eru farnar að vega þyngra í almennri þjálfun.“ segir Hjalti og er greinilega ánægður með aðstöðuna og þetta tækifæri sem Mosfellingum og íþróttafólki Aftureldingar býðst nú. „Ekki má gleyma allri aðstöðunni sem hér er fyrir að Varmá eins og sundlaugin, íþróttavöllurinn, gönguleiðir og fleira. Toppaðstaða fyrir alla” Elding mun taka að sér lýðheil- suverkefnið Hreyfing fyrir alla fyrir Mosfellsbæ í samvinnu við Lýðheilsustöð þar sem kjörorðið er „Allt hefur áhrif, einkum við sjálf.“ Halla lýkur einmitt meistaranámi í lýðheilsufræðum í vor. Á efri hæðinni að Varmá mun síðan Atorka; Mannrækt og útivist standa fyrir dans- og jóganámskeiðum. - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar14 Rope Yoga átak í Þrúðvangi Rope Yoga kennarinn og einkaþjálfarinn Sigga Dóra stend- ur fyrir sex vikna átaksnámskeiði í Rope Yoga Fusion. Námskeiðin hefjast nú í janúar í Þrúðvangi í Álafosskvos. Rope Yoga sameinar hug, líkama og sál auk þess sem á námskeiðunum er unnið með þrekæfingar með lóðum. Þjálfunin er persónusniðin og hentar jafnt konum sem körlum á öllum aldri. Allar upplýsingar og bókanir fara fram í síma 692- 3062. Kjósverjum fjölgar um tíu á milli ára Íbúum í Kjósarhreppi hefur fjölgað um tíu á milli ára. Sam- kvæmt skrám Hagstofu Íslands 1. desember 2007 og eru þeir nú taldir 191. Fjölgunin er því rúm 5% frá síðasta ári og eru meðal þeirra sveitarfélga ásamt Mosfellsbæ þar sem hlutfallsleg fjölgun íbúa hefur verið hvað mest á síðastliðnum árum. Mosfellingar orðnir 8.147 Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru Mosfellingar orðnir 8.147 hinn 1. desember síðastliðinn. Karlar eru í meirihluta eða 4.301 á móti 3.846 konum. Okkur hefur því fjölgað um rúm 8% á einu ári en á sama tíma í fyrra voru Mosfellingar 7.501. Í desember síðast liðn- um samþykkti bæjarstjórn- in að taka upp svokallaðar heimgreiðslur. Heimgreiðsl- ur eru greiðslur sem ganga út á það að foreldrar sem ákveða að vera heima með börn sín fái sömu niður- greiðslu frá bænum eins og þeir foreldrar sem fara með börnin sín í dagvistun. Tilgangurinn með þessu var, eftir því sem að ég best veit, að jafna rétt þeirra sem ákveða að setja börn sín til dagforeldra ann- arsvegar og þeirra sem ákveða að vera heima með börn sín hinsvegar. Einnig var tilgangurinn að Mosfells- bær veitti með þessu öllum börnum dagvistunarúrræði þar sem dagfor- eldrar eru af skornum skammti og ekki hlaupið að því að fá pláss. Galli á gjöf Njarðar Mosfellsbær ákvað hinsvegar að í stað þess að láta heimgreiðslur taka gildi frá lokum fæðingarorlofs þá muni þær hefjast við eins árs aldur barna. Ástæða þess segja ráðamenn vera að fyrir alþingi liggi tillaga um að lengja fæðingarorlofið úr níu mánuðum í tólf. En eins og bæjarbú- ar og landsmenn allir vita þá verða ekki allar tillögur að lögum og því er þetta undarleg ákvörðun að hálfu bæjaryfirvalda. Hvern- ig hefur Mosfellsbær hugsað sér að foreldrar brúi bilið á milli loka fæðingarorlofs þangað til að heimgreiðslurn- ar taka gildi? Ef að jafnrétti á að gilda ætlar Mosfellsbær að hætta að greiða niður dagvistunarkostnað foreldra sem eru með börn sín hjá dagforeldrum á milli níu mánaða og eins árs þangað til og ef að tillag- an kemst í gegnum þingið? Fyrst þeir hafa slíka ofurtrú á að þessi tillaga verði að veruleika, afhverju ákveður bæjarstjórnin þá ekki að láta heimgreiðslurnar hefjast við lok fæðingarorlofs? Það myndi ekki kosta sveitarfélagið mikið fyrst þessi lög eru hvort eð er hinum megin við hornið. Það myndi bæði einfalda orðalag löggjafar okkar og sýna skýrt hvert markmið þessarar greiðslna sé. Í orði eða á borði Ef það á að koma eins fram við þá foreldra sem vilja vera lengur heima með börn sín að fæðingarorlofi loknu þá verður auðvitað að stíga það skref til fulls. Sjálfstæðismenn segja á heimasíðu sinni að þeir vilji tryggja öllum börnum dagvistunar- úrræði strax að loknu fæðingarorlofi. Hafa sjálfstæðismenn gleymt því sem að þeir lögðu upp með í byrjun? Eða líta þeir ekki á heimgreiðslunar sem dagvistunarúrræði? Er hugsun- in hjá bæjarstjórninni sú, að færri myndu nýta sér heimgreiðslurnar ef að foreldrar þyrftu sjálfir að brúa bilið í þessa þrjá mánuði og þannig væri hægt að spara? Eru heimgreiðsl- urnar meira í orði en á borði? Mín tillaga Mín tillaga er sú að bæjarstjórn- in sjái sóma sinn í því að láta heim- greiðslurnar taka gildi frá lokum fæð- ingarorlofs og þegar eða ef að tillaga þeirra um lengingu fæðingarorlofs kemst í gegnum þingið þá myndu heimgreiðslurnar breytast í sam- ræmi við það. Þannig myndu heim- greiðslurnar taka gildi við níu mán- aða aldur fyrir foreldra í sambúð en einstæðir foreldar ættu rétt á þeim frá sex mánaða aldri barna sinna, enda líkur fæðingarorlofi þeirra þá. Það er mín einlæg von að bæjar- stjórnin hætti að slá ryki í augu fólks og vinni verk sín af heilindum. Jóna Björg Ólafsdóttir foreldri í Mosfellsbæ Opið bréf til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar Halla Heimisdóttir og Hjalti „Úrsus” Árnason opna líkamsræktarstöð Elding í íþróttahúsinu að Varmá Halla og Hjalti bjóða upp á sérhæfða þjálfun að Varmá sem lengi hefur vantað fyrir afreksfólk Aftureldingar.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.