Mosfellingur - 11.01.2008, Side 13
símar: 566-7310 og 896-0131 namo@namo.is
Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - 13
Miklar byggingafram-
kvæmdir eiga sér stað í
Mosfellsbæ og er áætlað
að fjölgun íbúa á þessu ári
verði um 11%. Það skiptir
höfuðmáli að vandað sé til
skipulagsvinnu og að fram-
kvæmd verksins sé unnin
á sem hagkvæmastan hátt
með tilliti til umhverfisins.
Ég get fullyrt, að bæði í Leirvogs-
tungu og í Helgafellshverfi hefur
verið vandað til verka bæði í skipu-
lagsvinnu hverfanna og í allri fram-
kvæmd verkanna. Það á sér enga
hliðstæðu í byggingaframkvæmdum
á Höfuðborgarsvæðinu, að allt efni
í götur og grunna er tekið nánast á
staðnum. Í Leirvogstungu er allt mal-
arefni tekið af Leirvogstungumelum
og við Leirvogsá. Vegalengdir á flutn-
ingi efnis eru í lágmarki og uppúr-
gröftur fer allur í gerð hljóðmana og
jarðvegsfyllingar. Malarnám á Leir-
vogstungumelum er því að mínu
mati fullkomlega réttlætanlegt frá
umhverfislegu sjónarhorni. Hins
vegar þarf að horfa til framtíðar og
skipuleggja betur nýtingu og frá-
gang á Leirvogstungumelum.
Í Helgafellshverfi hefur mest allt
malarefni verið unnið á staðnum
með sprengingum, ásamt því að taka
efni úr eldri námu við Þingvallaveg.
Uppúrgröftur hefur verið not-
aður til uppgræðslu á gömlu
námunni.
Losun á koltvíoxíði út í and-
rúmsloftið er því í algjöru lág-
marki vegna byggingafram-
kvæmda í Mosfellsbæ.
Það er gleðiefni að fljótlega
verður ráðist í tvöföldun Vest-
urlandsvegar að Leirvogsá og mislæg
gatnamót við Leirvogstungu.
Umhverfi Mosfellsbæjar hefur tek-
ið miklum breytingum undanfarin
ár. Trjágróður er víða orðinn sjáan-
legur í hlíðum fella og fjalla, en gróð-
ursettar hafa verið að meðaltali um
70.000 plöntur á hverju ári sl. 17 ár.
Á komandi árum mun skógur um-
vefja byggðina og gera alla útivist
áhugaverðari fyrir íbúana. Umhverfi
Varmár frá fjöru til fjalla er einn æv-
intýraheimur og með tilkomu Stekkj-
arflatar með tjörn og leiktækjum
og síðan með útivistar- og ævintýra-
garði á milli Varmár og Köldukvíslar
þá á þetta svæði sér enga hliðstæðu
hér á landi.
Mosfellsbær er svo sannarlega
kominn á kortið hjá landsmönnum
sem einhver gróskumesti bær í fjölg-
un íbúa ásamt miklum framförum í
umhverfismálum.
Oddgeir Þór Árnason
CO2 losun vegna
byggingaframkvæmda
Nú þegar nýtt ár er gengið
í garð langar mig að stikla á
stóru um það sem liðið er og
hæst ber í bæjarmálunum í
Mosfellsbæ. Þegar á heildina
er litið er ég mjög sáttur við
gang mála hjá okkur Mosfell-
ingum á liðnu ári og það er
gaman að hafa fengið tækifæri
til þess að vinna að framgangi Mos-
fellsbæjar með öllu því góða fólki
sem þar leggur hönd á plóg. Verkefn-
in í svo ört stækkandi bæjarfélagi eru
mörg og ærin en auðvitað er aldrei
svo að ekki megi betur gera en að því
er að sjálfsögðu unnið öllum stund-
um að gera sem flestum til hæfis.
Byggingaframkvæmdir
og nýr bæjarstjóri
Því er ekki að neita að byggingar-
framkvæmdir í þremur nýjum og
glæsilegum hverfum gera umhverfi
okkar hálftætingslegt um þessar
mundir en það er tímabundið ástand
og taka þessi hverfi á sig betri mynd
með degi hverjum. Bæjarbúar hafa
sýnt þessum stórframkvæmdum
mikinn og góðan skilning og ber að
þakka það.
Eins og allir vita lét Ragnheiður
Ríkharðsdóttir af embætti bæjar-
stjóra á síðasta ári og kvöddum við
þar litríka, harðduglega og
skemmtilega konu. Ég vil
nota tækifærið og þakka
Ragnheiði gott og skemmti-
legt samstarf og óska henni
velfarnaðar í nýju starfi á
alþingi. Nýr bæjarstjóri,
Haraldur Sverrisson, hefur
um árabil starfað að bæjar-
málum í Mosfellssbæ og hefur mikla
og góða þekkingu á þeim.
Stóru verkefnin
Brátt verður hafist handa við að
reisa nýjan og glæsilegan grunnskóla
í Mosfellsbæ, Krikaskóla, og einnig
styttist í að framhaldsskóli og hjúkr-
unarheimili verði að veruleika. Þetta
eru auðvitað stóru verkefnin hjá
okkur og varða hag og velferð flestra
íbúa Mosfellsbæjar.
Samstarfið hjá meirihluta okkar
vinstri-grænna og sjálfstæðismanna
í bæjarstjórn hefur gengið mjög vel.
Gagnkvæmt traust og virðing hefur
einkennt það allt frá upphafi og hef-
ur ríkt góður andi á meðal allra sem
að meirihlutanum standa. Mikill
metnaður var lagður í fjárhagsáætl-
un flokkanna fyrir árið 2008 og eru
mörg spennandi verkefni framund-
an í bæjarfélaginu. Skuldir á íbúa
halda áfram að lækka, verja á um
775 mkr. til uppbyggingar skóla- og
íþróttamannvirkja, gert er ráð fyrir
fjármunum til byggingar menning-
arhúss, útgjöld til fræðslumála auk-
ast um 275 mkr, leikskólavist fimm
ára barna er gjaldfrjáls og með því
er áfram stuðlað að lægri kostnaði
fyrir barnafjölskyldur, gert er ráð
fyrir verulegri hækkun á framlagi til
íþrótta-og tómstundafélaga vegna
barna-og unglingastarfs sem og að
frístundagreiðslur munu hækka. Ekki
má gleyma fyrirhuguðum ævintýra-
og útivistargarði á milli Varmár og
Köldukvíslar. Auðvitað er margt fleira
spennandi framundan sem of langt
mál er að telja upp í þessari grein.
Umhverfismál fá veglegan sess
Hvað varðar árið sem nú er að
líða í pólitíkinni hér í Mosfellsbæ og
þunga áherslu bæjaryfirvalda á um-
hverfismál verður ekki hjá því kom-
ist að nefna áberandi og neikvæð
skrif um eitt tiltekið mál sem tengd-
ist umhverfismálum á árinu sem er
nýliðið. Hér tala ég um fyrirhugaða
tengibraut inn í Helgafellshverfi.
Fá mál í Mosfellsbæ hafa fengið
viðlíka athygli í fjölmiðlum svo ára-
tugum skiptir og er í raun flestum
nóg um. Þessi umræða hefur á köfl-
um farið langt út fyrir öll velsæm-
ismörk og haft á stundum afar nei-
kvæð áhrif á ímynd Mosfellsbæjar.
Það segja mér reyndari menn að fá
dæmi, ef nokkur, séu til um aðra eins
aðför að einstaka bæjarfulltrúum og
persónum og sú sem þar hefur verið
höfð í frammi af fáeinum manneskj-
um í nafni umhverfissamtaka en er
og hefur í raun verið hrein og klár
pólitík allt frá upphafi.
Skrif í jólablöðum beggja minni-
hlutaflokkanna þar sem sagt var
að umhverfismál sætu á hakanum
undir stjórn okkar vinstri-grænna
í Mosfellsbæ komu mér á óvart.
Framundan er stórátak í umhverfis-
málum hjá bæjarfélaginu og það á
m.a. fólkinu sem hélt um pennana í
jólablöðum minnihlutaflokkanna að
vera fullkunnugt um. Í því sambandi
vil ég nefna sérstaklega 160% aukn-
ingu til umhverfismála á milli ára.
Ráðinn hefur verið nýr starfsmaður,
umhverfisstjóri, sem mun m.a. hafa
yfirumsjón með Staðardagskrá 21.
Áhersla bæjaryfirvalda á umhverf-
ismál er mikil og sönn, ekki einung-
is fyrir einstaka íbúa bæjarfélagsins
eða einstaka hverfi heldur alla Mos-
fellinga. Gleðilegt ár.
Karl Tómasson,
forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
Horft um öxl og fram á veginnDavíð Svansson markmaður Aftureldingar bankar á landsliðsdyrnar Stefnir á stórmót með landsliðinu
MOSFELLINGUR