Mosfellingur - 21.10.2010, Page 16
- Viðtal / Mosfellingurinn Pétur Magnússon16
Pétur er mjög skipulagður, atorku-samur og alltaf boðinn og búinn til að aðstoða þegar þörf er á. Hann er
félagslyndur, mikill húmoristi, traustur
vinur vina sinna og iðulega í forystuhlut-
verki í félagslífinu og mikil driffjöður
þegar eitthvað stendur til. Hann er einn-
ig umhyggjusamur faðir og eiginmaður,”
segir Erlingur A. Jónsson æskuvinur
Péturs er ég bið hann um að lýsa Pétri í
stuttu máli.
„Það var mjög gaman að alast upp á
Akranesi og flestir mínir bestu vinir í dag
eru æskufélagar þaðan. Í minningunni
finnst mér ég lítið hafa gert annað fram að
unglingsárunum en að spila fótbolta allan
daginn. Ég æfði með Skagamönnum í öllum
yngri flokkunum og náði að verða Íslands-
meistari í fjórða flokki. Ég varð því miður að
hætta að æfa vegna þrálátra meiðsla.
Vinahópurinn spilar vikulega saman
hér í Mosfellsbæ og eins gerum við ýmis-
legt skemmtilegt saman eins og að halda
þorrablót, haustfagnaði og fara í ferðalög.
Síðustu ár hefur svo hópurinn komið að
málum sem láta gott af sér leiða, t.d. þá
stöndum við fyrir og sjáum um brekkusöng
á bæjarhátíð Akraness og Írskum dögum,
en yfir tvö þúsund manns mættu á þennan
viðburð nú í sumar.”
Pétur er fæddur á Akranesi 16. febrúar
1971. Hann er einkabarn hjónanna Svand-
ísar Pétursdóttur kennara og Magnúsar
Oddssonar fyrrverandi veitustjóra. Eftir
stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vestur-
lands lá leið Péturs til höfuðborgarinnar í
frekara nám. Hann lauk lyfjafræðinámi með
mastersgráðu frá Háskóla Íslands árið 1998
og MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík
með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun
árið 2004.
Eiginkona Péturs er Ingibjörg
E. Ingimarsdóttir hjúkrunar-
fræðingur á Reykjalundi og eiga
þau tvo syni þá Ágúst Loga sem
er fjórtán ára og Magnús Árna
sem er sjö ára. Þriðji erfinginn er svo vænt-
anlegur í mars.
Hreifst af bæjarbragnum
„Við fluttum í Mosfellsbæ árið 1999 sem
kom eiginlega til af einskærri tilviljun.
Þegar ég var nemi í lyfjafræði þá þurftum
við að vinna að minnsta kosti tvö sumur við
lyfjafræðistörf. Möguleg störf voru listuð
upp og svo drógum við nemendurnir um
þau störf sem voru í boði. Ég dró síðastur
úr pottinum og fékk apótekið í Mosfellsbæ.
Ég vissi nánast ekkert um Mosfellsbæ en í
apótekinu starfaði ég tvö sumur og kynntist
mörgu skemmtilegu fólki.
Ég hreifst mjög af bænum og
bæjarbragnum, það smitaðist
yfir á frúna og fljótlega eftir
að við lukum háskólanámi þá
keyptum við okkur íbúð hér. Við sjáum
alls ekki eftir því, það er góður andi hér í
bænum og frábært umhverfi fyrir útivistar-
og íþróttafólk, varla hægt að finna það betra
á landinu.”
Þrjú öldrunarheimili
„Að loknu námi í lyfjafræði starfaði ég
við markaðs- og sölustörf fyrir Lyfjaverslun
Íslands og alþjóðlegu lyfjafyrirtækin Glaxo-
SmithKline og Merck Sharpe & Dohme. Frá
ársbyrjun 2008 hef ég starfað sem forstjóri
Hrafnistuheimilanna.
Hrafnistuheimilin eru öldrunarsamfélag
um sexhundruð heimilismanna og hefur
starfsemin varað í rúmlega fimmtíu ár. Að
auki eru um fjögur hundruð aðrir aldraðir
einstaklingar sem njóta þjónustunnar á
degi hverjum. Undir merkjum Hrafnistu
eru nú rekin þrjú öldrunarheimili, í
Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Þar er
að finna fjölbreytta þjónustu sem hentar
öldruðum vel og sem dæmi má nefna
hjúkrun og læknisþjónustu, endurhæfingu,
sundlaugar, iðjuþjálfun, líkamsrækt og
mjög fjölbreytt félagsstarf og uppákomur.”
Hrafnista á við meðalstórt sveitarfélag
„Tæplega áttahundruð starfsmenn starfa
hjá Hrafnistuheimilunum. Hrafnistu er
því oft líkt við meðalstórt sveitarfélag úti
á landi og oft sagt bæði í gamni og alvöru
að starf forstjórans sé ekkert ósvipað
bæjarstjórastarfi. Starf mitt er því mjög
fjölbreytt en í svona stóru fyrirtæki er
lykilatriði að vera með gott fólk í kringum
sig. Ég hef verið svo lánsamur að vera í þeirri
stöðu og hef átt alveg virkilega skemmtilega
tíma á Hrafnistu. Verkefnin geta verið ólík
og enginn dagur er eins. Þó að niðurskurður
og samdráttur sé fyrirferðarmikill núna
er samt mikið af tækifærum til nýjunga
í öldrunarþjónustu sem við á Hrafnistu
höfum verið að nýta okkur, sem gerir starfið
ennþá skemmtilegra. Sem dæmi má nefna
þá opnuðum við nýtt hjúkrunarheimili í
Kópavogi fyrr á árinu þar sem öll hönnun
á húsnæði og starfseminni sjálfri byggist
á nýrri mjög spennandi hugmyndafræði
í öldrunarþjónustu sem ekki hefur verið
reynd áður hér á landi. Rík áhersla er lögð
á sjálfsákvörðunarrétt og þátttöku íbúa. Við
tökum það besta frá sjálfstæðri búsetu og
sameinum það öryggi hjúkrunarheimilis.
Starfsfólk og íbúar vinna saman við
að skapa heimilislegt, hlýlegt og virkt
samfélag.”
Hefur öðlast mikla reynslu
Pétur hefur alla tíð verið virkur í félags-
málum, strax í framhaldsskóla var hann
í stjórn nemendafélagsins. Hann vann
lokaverkefni sitt í lyfjafræði sem rannsókn
á lyfjanotkun íþróttamanna á Íslandi og
starfaði með Íþróttasambandinu í um tíu
ár í baráttunni gegn ólöglegri lyfjanotkun í
íþróttum. Hann ritstýrði Tímariti um lyfja-
fræði í þrjú ár en var í ritstjórn í alls sjö ár.
Á árunum 2006-2009 var Pétur í forsvari
fyrir Knattspyrnudeild Aftureldingar, meðal
annars sem formaður barna og unglinga-
ráðs. Hann hefur einnig verið starfandi í
Kiwanisklúbbnum Mosfelli í nokkur ár.
Í tengslum við störf hans í öldrunar-
málum má geta þess að Pétur er formaður
Öldrunarráðs Íslands og varaformaður
Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.
Pétur hefur skrifað fjöldann allan af grein-
um tengdum öldrunarmálum, lyfjafræði,
íþróttum og heilbrigðismálum. Einnig hef-
ur hann haldið fjölda erinda og fyrirlestra
auk mikillar reynslu af fundarstjórnun og
stjórnun mannfagnaða af ýmsu tagi.
Gönguferðir í miklu uppáhaldi
„Félagsmálin hafa vissulega tekið mik-
inn tíma en að rækta fjölskylduna og vini
er eitthvað sem ég reyni að setja í forgang,”
segir Pétur með áherslu. Við fjölskyldan
höfum ferðast mikið um Ísland og göngu-
ferðir um landið eru í miklu uppáhaldi hjá
mér. Á hverju ári förum við Inga, ásamt
eldri syni okkar, með stórum vinahópi í
gönguferð í eina viku og þetta eru einhver
bestu og skemmtilegustu frí sem ég kemst
í. Ég hef einnig síðustu ár verið fararstjóri
hjá Ferðafélagi Íslands og farið Laugaveg-
inn svokallaða sem er í miklu uppáhaldi
hjá mér, þó það séu gríðarlega margir aðrir
fallegir staðir á landinu.”Ingibjörg, Ágúst Logi og Magnús Árni.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Enginn dagur eins
Pétur Magnússon lyfjafræðingur og forstjóri Hrafnistuheimilanna segir mikið af tækifærum til nýjunga í öldrunarþjónustu
Í minningunni finnst mér ég
lítið hafa gert annað fram
að unglingsárunum en að spila
fótbolta allan daginn.
Lýstu þér í fjórum orðum: Stór,
jákvæður, óþolinmóður og lífsglaður
nammigrís.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Bara í
svipuðum málum og í dag – bara með
örlítið færri en grárri hár.
Fallegasti staður í Mosfellbæ?
Varmárvöllur á sólríkum sumardegi,
graslyktin ilmar í loftinu og Afturelding
er að vinna stórsigur. Hef sem betur fer
upplifað marga svona daga
Hvern myndir þú helst vilja hitta? For-
föður minn, Jón Steingrímsson eldklerk.
Hvernig færðu útrás fyrir gremju?
Þegar maður fer út að hlaupa eða tekur
vel á því í ræktinni leysast ótrúlega mörg
vandamál.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Þegar ég var 5 ára trúði ég pabba
fyrir því að ég ætlaði að verða jólasveinn
þegar ég yrði stór. „Fattarðu það ekki
maður – ég þarf bara að vinna einn
mánuð á ári og á frí í ellefu”
HIN HLIÐIN
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni
Ég hreifst mjög af bænum
og bæjarbragnum, það
smitaðist yfir á frúna og fljótlega
eftir að við lukum háskólanámi
þá keyptum við okkur íbúð hér.
Það gæti leynst silfraður lukkumiði í þínu súkkulaðistykki
Í tilefni af 90 ára afmæli okkar höfum við laumað lukkumiðum í 99 stykki.
Veglegir vinningar!
• 9 skemmtikvöld fyrir tvo; glæsikvöldverður, leikhúsmiðar og hótelgisting.
• 90 súkkulaðikörfur og uppskriftabókin Súkkulaðiást.
Er ekki alltaf tími til að fá sér eitthvað fallegt? Síríus rjómasúkkulaði er komið í nýjar
150 g umbúðir, tegundirnar sem við þekkjum svo vel, auk nýrrar með appelsínubragði.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A