Mosfellingur - 12.01.2006, Síða 4
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4
Smáragarður ehf., fasteignafélag
Norvíkur hf., hefur nú hafi ð byggingu
verslunarhúsnæðis við Háholt 13-15 í
Mosfellsbæ. Fyrsta skófl ustungan að
verslunar húsnæðinu var tekin föstu-
daginn 16. desember síðastliðinn
en skófl ustunguna tóku Ragnheiður
Ríkharðsdóttir bæjarstjóri Mos-
fellsbæjar og Guðmundur Halldór
Jónsson, framkvæmdastjóri Smára-
garðs ehf.
Stefnt er að því að opna verslun-
arhúsnæðið haustið 2006 og verður
það um 3.727 fm. að stærð. Í húsinu
mun Kaupás reka mat vöruverslun og
Mosfellsbakarí mun reka þar bakarí
ásamt verslun. Í framtíðinni munu
fl eiri verslanir koma til með að hefja
rekstur í húsinu.
Arkitektar hússins eru Skapa og
Skerpa arkitektar, hönnuður burðar-
þols er Hönnun hf., hönnuðir rafl agna
er Rafteikning hf. og hönnuðir lagna-
kerfa VGK. Byggingaraðili hússins
verður Húsbygg ehf.
Menningarsjóður Íslandsbanka
veitti Tónlistarfélagi Mosfellsbæ-
jar 100.000 kr. í styrk til þess að efl a
tónlist ar lífi ð hér í bæ. Afhendingin
fór fram í Íslandsbanka þann 22.
desember. Það var Sigríður Jóns-
dóttir útibússtjóri, sem afhenti Atla
Guðlaugssyni gjaldkera Tónlistar-
félagsins styrkinn. Við sama tilefni
spilaði ung og efnileg stúlka, Hreindís
Ylva Garðarsdóttir, tvö lög fyrir við-
stadda á klarinettið sitt.
Tónlistarfélagið hélt þrenna tónlei-
ka á síðasta ári og til stendur að halda
um ferna tónleika á hverju ári. Næst
á dagskrá félagsins er jasstríó Reynis
Sigurðssonar og verða þeir þann 3. fe-
brúar næstkomandi. Þann atburð má
enginn láta fram hjá sér fara.
Verðlaunaskreyting
í Rituhöfða
Bryngeir Jónsson og Helga
Dögg Reynisdóttir fengu viður-
kenningu frá Orkuveitu Reykja-
víkur fyrir jólaljósaskreytingu
á húsi sínu. Orkuveitan valdi
nokkur hús á veitusvæði sínu
og dómnefnd á vegum henn ar
átti í miklum vandræðum
með að velja úr húsum vegna
vaxandi fjölda skreytinga og
menn eru farnir setja töluverðan
metnað í að gera húsið sitt
fallegt yfi r hátíðirnar. Umsögn
dómnefnd ar var á þann veginn
að hús Bryngeirs og Helgu væri
smekklega skreytt og nyti sín vel
í ljósadýrðinni.
Með Strætó á Skag-
ann fyrir 250 kr.
Nú hefur Strætó bs. tekið
upp nýja strætóleið sem fer
alla leið til
Akraness. Það
kostar ekkert
aukalega að
fara í gegnum
Hvalfjarðar-
göngin heldur verður óbreytt
verð sem er aðeins 250 kr.
Strætóferðirnar þangað eru
á klukkustundarfresti alla
daga. Fyrsta ferðin var farin á
nýársdag og lagt var af stað frá
Mosfellsbænum. Það er vonandi
að sem fl estir nýti sér ódýra ferð
á Skagann og ferð í gegnum
göngin á góðum kjörum.
Þunnur þrettándi
Ekkert varð úr þrettánda-
brennunni á föstudeginum 6.
janúar síðastliðinn. Vegna von sku
veðurs var ákveðið að fresta
bren nunni. Merkilegt þykir að
þetta er aðeins í annað skipti sem
þurft hefur að fresta brennunni
og telst það afar gott. Brennan
var svo haldin á laugardeginum.
Þangað mætti mikill fjöldi manns
og fór allt vel fram.
Um áramótin var brotist inn á
dagheimilið hliðina á Nóatúni. Fyrst
var ein rúða brotin á aðfaranótt
föst udagsins 30. des. og síðan voru
fjórar rúður til viðbótar brotnar á
gaml árskvöldi. Þá var einnig farið
inn á dagheimilið og allt lauslegt var
skemmt. Speglar voru færðir út og
brotnir, barnavagnar og skiptiborð
skemmd og slökkvitæki tæmt. Þá var
farið í lyfjaskáp og hann tæmdur. Að
sögn Ingibjargar Maríu Konráðsdótt-
ur dagforeldris, eru þessi skemmdar-
verk mjög svekkjandi því að hún og
Þóra Egilsdóttir eru nýlega búnar að
taka húsið á leigu og leggja mikla
vinnu í að gera fallegt þarna
inni. Þá koma svona skemmdar-
vargar og eyðileggja á svip-
stundu alla þá vinnu sem búið
var að setja í húsið. Þeir sem geta veitt
einhverjar upplýsingar um innbrotið
eru vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við lögregluna.
Nýtt verslunarhúsnæði
Ragnheiður og Guðmundur
tóku fyrstu skófl ustunguna
Atli tók við ávísun frá Sigríði
útibússtjóra Íslandsbanka
Skemmdarvargarnir
brutu allt og brömluðu
Tónlistarfélag Mosfellsbæjar fær styrk
Innbrot og skemmdarverk
Fimm rúður
voru brotnar
í húsinu