Mosfellingur - 12.01.2006, Síða 8
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar8
Friðrik G. Olgeirsson
rifjar upp gamla tíma úr sveitinni
Dagana 10. til 13. apríl 1956
dvöldust dönsku konungshjónin,
Friðrik 9. og Ingiríður drottning,
hér á landi í opinberri heimsókn.
Þau komu til landsins með SAS-
fl ugvélinni Alf Viking laust eftir
hádegi þann 10. og lentu á Reykja-
víkurfl ugvelli í blíðskaparveðri.
Frú Dóra Þórhallsdóttir og herra
Ásgeir Ásgeirsson tóku á móti
konungshjónunum. Borgin var
fánum skreytt og hvarvetna sem
bílalest konungshjónanna fór um
á leið inni að Ráðherrabústaðnum
þar sem þau bjuggu stóð fjöldi
fólks og veifaði fánum landanna
beggja.
Eins og venja er þegar þjóð-
höfðingjar koma í heimsókn var
skipulögð heilmikil dagskrá fyrir
Friðrik og Ingiríði. Fyrsta daginn
var þeim boðið til tedrykkju á
Bess a stöðum og til hátíðarkvöld-
verðar á Hótel Borg. Daginn
eftir skoðuðu hjónin Hnitbjörg
(safn Einars Jónssonar), voru
viðstödd guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni, snæddu hádegisverð
á Bessastöðum og kvöldverð í
Naustinu. Um kvöldið hlustuðu
þau á Sinfóníuhljómsveit Íslands
í Þjóðleikhúsinu og sáu óperuna
Cavalleria Rusticana.
Þriðjudagurinn 12. apríl var
loka dagur heimsóknarinnar.
Kon ungs hjónin byrjuðu á því að
heimsækja Háskóla Íslands og
hlíða þar á söng og ræðuhöld. Því
næst var ekið upp í Mosfellssveit
þar sem hinum tignu gestum var
sýndur Reykjalundur. Veður var
þá mjög gott og fallegt. Í frásögn í
Morgunblaðinu um ferðina er lögð
mikil áhersla á veðrið og fagurt
útsýni. Blaðamaður er greini-
lega stoltur af fegurð landsins:
„Í ferð sinni upp að Reykja lundi
í Mosfells sveit fengu Friðrik
konungur og Ingi ríður drottning
notið hins fagra útsýnis á þeirri
leið, sem þau án efa munu seint
gleyma.” Í þéttbýlis hluta Mos-
fellssveitar stóðu börn og veifuðu
fánum og hundar hlupu geltandi á
eftir bílum tignarfólksins að göml-
um og þjóðlegum sið. Á Reykja-
lundi var mikill mannfjöldi sam-
an kominn og hvarvetna blöktu
íslenskir og danskir fánar. Oddur
Ólafsson yfi rlæknir tók á móti gest-
unum og mannfjöldinn fagnaði
þeim með lófataki. Yfi rlæknir-
inn byrjaði á því að kynna stjórn
SÍBS og stjórn vinnuheimilisins
fyrir Friðriki og Ingiríði en að því
loknu sagði hann þeim frá félags-
samtökunum og baráttunni gegn
berklum. Konungs hjónin skrifuðu
að því loknu nöfn sín í gestabók
og skoðuðu svo bygginguna í fylgd
Odds og Valgerðar Helgadóttur
yfi rhjúkrunarkonu. Þau voru mjög
hrifi n af stofnuninni og vildu
skoða meira en ráðgert var að
sýna þeim. Farið var með gestina
um húsnæði plastvöruframleiðslu-
nnar og þar sáu þeir fólk við vinnu
sína. Voru hjónin þá orðnir hálfri
klukkustund á eftir áætlun vegna
áhuga síns.
Þegar Friðrik konungur og
Ingi ríður komu út aftur kváðu við
mikil húrrahróp Mosfellinga. Frá
Reykjalundi fóru þau í Þjóðminja-
safn Íslands. Á leiðinni var útsýn-
ið yfi r Faxafl óa fagurt sem fyrr
og Snæfellsjökull sást vel í allri
sinni dýrð. Því sem fyrir augu bar
heyrðist konungur lýsa af áhuga
fyrir Bjarna Benediktssyni mennta-
málaráðherra þegar hann fylgdi
konungi inn í Þjóðminjasafnið. Í
lokahófi í Þjóðleikhúskjallaranum
um kvöldið sagði Friðrik 9.: „Ég
hef aldrei séð Ísland eins fagurt
og þessa daga.” Hann hafði áður
komið tvisvar til landsins sem
krónprins og þá ferðast víða.
Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðingur
Veistu
svarið?
Hvenær var Ungmenna-
félagið Afturelding
stofnað?
Í hvaða á er Tröllafoss?
Hver eru einkunnarorð
Lágafellsskóla?
Svör: 1. 11. apríl 1919 2. Leirvogsá
3. Samvera-samvinna-samkennd
Breyttar reglur
Bæjarstjórn samþykkti nú
fyrir jólin að breyta reglum er
varða kosningar á íþróttamanni
ársins. Undanfarið hefur tíðkast
að velja íþróttamann ársins en
nú hefur verið ákveðið að kjósa
bæði íþróttamann og
íþrótta konu ársins.
Með þessu eykst
fjölbreytnin og
kemur til með að
fjölga afreksfólki
okkar í bænum. Íþróttamaður
Mosfellsbæjar í dag er golfarinn
Heiðar Davíð Bragason.
Sögukornið
Dönsku konungshjónin
heimsækja Reykjalund
Friðrik og Ingibjörg skrifa í
gestabókina á Reykjalundi
þann 13. apríl 1956.
Eldri borgarar!
Lokað á Gljúfra-
steini fram í mars
Safnið á Gljúfrasteini
verður lokað fram í mars vegna
endurbóta innandyra. Þessar
endurbætur náðist ekki að
klára fyrir opnunina á safninu
þegar það var formlega tekið í
notkun í september árið 2004.
Nú hafa menn byrjað á þessum
breytingum og opna á safnið
aftur fyrir almenning þann 1.
mars. Heimili skáldsins mun þá
skarta sínu fegursta og gaman
verður að koma að Gljúfrasteini
í byrjun mars.