Mosfellingur - 12.01.2006, Qupperneq 12
Sá yngsti til að fá
svarta beltið
Mosfellingurinn Guðmundur
Árni Þór Guðmundsson varð á
dögunum yngsti Íslendingurinn
til þess að fá svarta beltið í
karate. Guðmundur er aðeins
11 ára gamall og æfi r karate
með Aftureldingu. Hann hefur
verið afar duglegur við æfi ngar
og þá hefur hann einnig unnið
til verðlauna á mótum, t.d.
vann hann tvenn gullverðlaun á
katamóti nú fyrir jól.
Mosfellingur - Íþróttir12
Fax: 566 7241
namo@namo.is
NAMO ehf. - Þverholti 2 - Kjarna
S. 566 7310 og 896 0131
Afturelding leikur í íþróttafatnaði frá Jako
Bestur í deildinni
Einar Ingi Hrafnsson,
handboltamaður Aftureldingar,
var valinn besti línumaðurinn í
DHL-deildinni.
DV stóð fyrir vali
á úrvalsliði deild-
arinnar þar sem
þjálfarar liðanna
völdu menn í
allar stöður á
vellinum. Einar
hlaut yfi rburða
kosningu þar
sem hann fékk
45 stig en sá í öðru sæti, fékk
einungis 16 stig. Einar hefur
farið hamförum í vetur með
Aftureldingu og fer nú efl aust að
styttast í það að við fáum að sjá
hann spreyta sig með A-lands-
liði Íslands.
Kylfi ngur ársins
Heiðar Davíð Bragason,
íþróttamaður Mosfellsbæjar
2004, hefur verið valinn kylfi ng-
ur ársins 2005
hjá golfsíðun-
ni kylfi ngur.
is. Heiðar stóð
sig afar vel á
þessu ári og
var meðal
annars Ís-
landsmeistari
í höggleik og
stigameistari
á Toyotamót aröðinni. Hann
reyndi einnig fyrir sér á erlendri
grundu á þessu ári og það með
góðum árangri. Hann sigraði til
dæmis úrtökumót í Svíþjóð fyrir
sænsku mótaröðina Telia Tour.
Heiðar Davíð var einn ig valinn
kylfi ngur ársins á hófi Samtaka
íþróttafréttamanna og ÍSÍ fyrr í
mánuðinum.Heiðar á fyllilega
skilið þessi verðlaun og vonandi
að sigurför hans haldi áfram nú
á nýju ári.
Þórdís Magnúsdóttir
í landsliðsúrtaki
Þórdís Magnúsdóttir, markvörður
3. fl okks kvenna í knattspyrnu hjá
Aftureldingu,
var valin í
úrtakshóp hjá
U-17 lands-
liðinu. Þetta
er ekki í fyrsta
skiptið sem hún
hefur fengið
að taka þátt í
æfi ngum með
landsliðinu því
stutt er síðan að
hún var í svipaðan hóp. Æfi ngarnar
fóru fram dagana 7. og 8. janúar.
FIRMAMÓT
HVÍTA RIDDARANS
Aðdragandi þessarar greinar
hef ur verið langur, við undirritaðir
erum leikmenn meistarafl okks karla
í handknattleik. Vissulega hefur verið
unnið mikilvægt starf undanfarin ár,
en því starfi verður að halda við. Er
hægt að krefjast toppárangurs miðað
við þá aðstöðu sem boðið er uppá að
Varmá? Staðan er einfaldlega eins og
eftirfarandi pistill lýsir:
Núverandi aðstaða er engan
vegin viðunandi og býður ekki
uppá þá möguleika sem íþróttafólk
Mosfellsbæjar þarfnast til að vera í
fremstu röð. Ólympískar lyftingar eru
mikilvægar fyrir fl est allt íþróttafólk
í fremstu röð. Núverandi aðstaða í
húsinu, hvort sem það er lyftinga-
eða fundaraðstaða er óviðunandi.
Við missum á nýju ári þrönga og slaka
aðstöðu til ólympískra lyftinga og
fáum í staðinn óeinangraða og kalda
aðstöðu. Lyftingar í kulda, sérstak-
lega ólympískar, eru ávísun á meiðsli.
Um er að ræða gjörsamlega óein-
angraðan skúr. Þarna geta ekki einu
sinni hávöxnustu leikmenn liðsins
stundað þær æfi ngar sem þarna eiga
fara fram. Þetta er í raun eins og að
henda lóðunum út á götu. Þetta er
bara bárujárnsskýli sem er við gamla
innganginn á gamla salnum. Þetta er
gjörsamlega óviðunandi og reyndar
bara hlægilegt að bjóða fólki upp á
þetta. Hér er hvorki verið á benda
á einn né neinn, en hvað sem gerist
þá verður einfaldlega að taka á þessu
máli. Annað væri hneisa fyrir íþrótta-
mennina, félagið og bæinn.
Í Íþróttamiðstöðinni er staðsett
einkarekin líkamsræktarstöð þar sem
fi nna má tæki og handlóð en enga
aðstöðu fyrir ólympískar lyftingar. Það
þarf að vera til staðar lyftingar aðstaða
fyrir íþróttafólk, sem er komið á þenn-
an stað í æfi ngum og keppni, geti not-
að endurgjaldslaust. Helst vildum við
sjá toppaðstöðu þar sem tæki, han-
dlóð og góð aðstaða fyrir ólympískar
lyftingar væru allt á einum og rúm-
góðum stað.
Fundaraðstaða í húsinu er lítil sem
engin hvort sem það er fyrir foreldr-
afundi yngri fl okka eða video fundi
meistarafl okks karla, sem hafa verið
haldnir í áhaldahúsi Mosfellsbæjar
það sem af er vetri. Það er einfaldlega
eins og þessir hlutir hafi gleymst í
skipulagningunni.
Fyrir þremur árum sendi núverandi
þjálfari meistarfl okks karla núverandi
bæjarstjóra bréf þar sem kom fram
að bæta þyrfti lyftingaraðstöðu til
muna. Hlynur frjálsíþróttaþjálfari og
kraftajötuninn Hjalti Ursus hafa verið
að berjast fyrir bættri aðstöðu með
litlum árangri síðastliðin fi mm ár.
Mosfellsbær þarf að opna augum
fyrir staðreyndum og hlúa vel að
íþróttafólki sínu með mun myndar-
legri hætti en nú er ef við ætlum okkur
að vera í fremstu röð. Að sjálfsögðu
erum við þákklátir fyrir allt sem fyrir
íþróttastarfi ð hefur verið gert en nú
þarf að loka hringnum! Það liggur
fyrir svart á hvítu.
Með íþróttakveðju, Einar Ingi
og Magnús handknattleikskappar
úr Mosfellsbæ.
Um aðstöðu afreksfólks
Jón Friðjónsson starfmaður Mosfellsbæjar
og Ólafur Haraldsson kynnir á þrettánda-
gleðinni, hvöddu jólin með stæl
Einar Ingi reynir að ná í sig
hita í óupp hituðu bíslæinu
við íþróttahúsið
Mótið fer fram í Íþróttahúsinu
að Varmá, Mosfellsbæ.
Spilaður er 5 manna bolti,
með markmanni, á stór
innanhús-mörk.
Vinningar verða veglegir
Aðeins verður pláss fyrir 20 lið í
hvorri keppni þannig að fyrstur
kemur fyrstur fær.
Þátttökugjald 15.000 kr.
Skráning er hafi n.
Frekari
upplýsing ar
veitir Steini í
síma 862-9416
Hilmir, Össi og Óli í
lokaúrtak U-17
Þrír knattspyrnumenn úr Aftur-
eldingu náðu þeim frábæra árangri
að verða valdir í lokaúrtak U-17 ára
landsliðsins í knattspyrnu. Þetta eru
félagarnir Hilmir Ægisson, Ólafur
Karlsson og Örn Ingi Bjarkason. Æf-
ingar fara fram nú um helgina og eru
undir stjórn Lúkasar Kostic þjálfara
U-17 landsliðs Íslands.