Mosfellingur - 12.01.2006, Page 14

Mosfellingur - 12.01.2006, Page 14
Nú eru jólin búin og allt sem þeim fylgir, matar- átið og vísakortafylleríið orðið að hrottalegum timburmönnum. Fólk er búið að versla á útsölum og skila jólapökkunum sem það vildi ekki eða fékk meira en nóg af. Það eru jólaplöturnar sem eru efni mitt núna, það er að segja íslenskar plötur sem komu út núna fyrir jólin og á árinu 2005. Þær eru marg ar hverjar farnar að safna ryki eftir stutta viðveru í spila- ranum. Það sem ein kenndi plötujólin í ár voru þessar eintómu „Karókí”-plötur eða coverplötur sem öllum datt í hug að gefa út, það eða safndiska. Ég hef oft spáð í það hvort sköpunargáfan sé orðin eitthvað lítilfjörleg eða hvort það sé einfaldlega svo- na mikið mál að semja bæði lag og texta frá grunni. Það er auðveldara að setja lag á plötu sem aðrir hafa gert frægt og því þarf ekki að hafa áhyggjur af því að lögin verði ekki vinsæl. Ég er ekki að segja að það sé alslæmt að taka coverlög og setja þau á plötu, ég hef jafngaman af því og hver annar, en þessi jól datt um 85% af íslenskum tón listarmönnum þessi snilldarhugmynd í hug. Ég ætla að stikla á stóru í þessari upptalningu minni og nefna örfá dæmi sem ég man eftir: Bjarni Ara var í Svingstuði; Bjöggi Halldórs státar af því að taka vinsæl lög eftir sjálfan sig; Beggi í Sóldögg gerði coverplötu en hún var í 80’s stíl sem og Margrét Eir var líka í 80’s pæling- um á árinu. Á móti sól var með HIN 12 topp lögin en í fyrra voru það bara 12 topp lög. Garðar Cortes brosir breitt þes- sa dagana enda seldi hann nálægt 19 þúsund plöt- ur af lögum eftir aðra; Nylon gaf út plötu og meira að segja er lag sem þær sömdu sjálfar á þess ari plötu, hver hefði trúað því að þær gætu samið tón- list? Helgi Björns gaf út lög frá Magga Eiríks; Pétur Kristjáns tók Kim Larsen; Regína Ósk var í stuði og Raggi Bjarna var að fylgja velgengni síðustu jóla eftir með safnplötu. Matti (Papar), Sigga Beinteins, Solla, Guðrún Helga, Brynhildur Guðjóns, Diddú, Guðrún Gunnars, Friðrik Ómar og svo mætti lengi telja hvort sem það eru safnplötur eða endurútgáfur frá fyrri tímum. En þetta er að gera þetta eftir sínu höfði einsog þau segja í Idolinu og það er mjög gaman að því enda væri ekkert gaman að heyra þessi lög nákvæmlega einsog þau voru þeg ar þau komu fyrst út. Svo má ekki gleyma Idol-liðinu sem að kom með hverja plötuna á fætur annarri þetta árið. Þau sem voru í efstu þremur sætunum í Idolinu gáfu út plötu (Hildur, Heiða og Davíð Smári) svo og Ylfa Lind og ekki má gleyma Lummu- num sem er samansafn af Idol-liði frá því í fyrra. Einnig var það fi mmhundruðka- llinn Jón Sigurðsson (Gubbið) sem ákvað að hamra járnið meðan það væri heitt og kom með sína aðra plötu. Ég kalla hann Gubbið vegna þessa að mér verður fl ökurt þegar ég heyri hann syngja. An- nars á ekki að gera lítið úr honum veg na þess að hann er svo mikill “næs gæ” og allra hugljúfi . Að gera grín að honum er einsog að sparka í grátandi barn, en hvað með það? En þessi aðferð virðist vir ka og allir græða á tá og fi ngri af markaðssetningu annarra sem þýðir að þetta er nú kannski ekki svo vitlaus hugmynd eftir alltsaman. Þetta ætla ég að gera þegar ég verð stór, bara með öðru sniði. Ég ætla að skrifa metsölubækur eftir aðra en gera það eftir mínu höfði t.d. að skrifa Sölku Völku eftir Laxnes og breyta „hvur” í hver og svoleiðis þ.e.a.s. gera eftir mínu höfði eða skrifa Engla alheimsins og láta verða “happy end- ing”. Í staðinn fyrir að deyja verður hann forríkur bankastjóri og fl ytur til Luxemborgar. En eins og einhver stórsöngvarinn sagði þegar hljómsveit tók eftir hann frægt coverlag: “What the fuck was wrong with the original?” Högni Snær Í eldhúsinu Mosfellingur - Bæjarmál og aðsendar greinar 14 Agnes Kristjónsdóttir söngkona og dansari bauð Mosfellingi í eldhúsið hjá sér og lét hann fá uppskrift af dýrindis rétti. Þetta er grænmetisréttur með kjúklingabaunum. Hér er uppskriftin: Grænmetisréttur hjá Agnesi Myndlistarskóli Mosfellsbæjar Í Álafosskvosinni Innritun á vormisseri 2006 er hafin Símar skólans eru 566 8710 663 5160 Myndlistarnám er �roskandi og skemmtilegt Karókí-jólin 2005 Eftir er að búið er að steikja grænmetið og blanda því saman við baunir – eru sósur settar á pönn- una og smá soðið vatn saman við. Öllu blandað saman í stórum potti og látið malla og taka sig – má bæta meiru af soðnu vatni út í til að þynna eða AB mjólk. Agnes mælir með því að rétturinn sé borinn fram með salati eða jafnvel Nan brauði. 2-3 laukar steiktir á pönnu þar til gylltir. 1-2 sætar kartöfl ur í bátum steiktar í ferningum á pönnu líka. 1 stór rófa steikt líka í bitum. 1 -2 stórar rauðar paprikkur steiktar í ræmum. 1 krukka tilbúnar kjúklingabaunir (skola í volgu vatni) 3-6 kramin hvítlauskrif 1 lítil dós tómatpurré 1 krukka indversk sósa t.d Korma eða Tikka Masala (eða kryddið sjálf og notið AB mjólk til að búa til sósuna) Krydd: Sjávarsalt eða Maldon salt Cayanne pipar, smá chilli og annað sem smakkast vel – eða bara krydd frá Pottagöldrum. HÖGNI SNÆR gerir upp jólahátíðina SÍMI: 5668 110 NÝJAR PERUR NÝJAR PERUR NÝJAR PERUR NÝJAR PERUR

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.