Mosfellingur - 12.01.2006, Side 17
Gulldrengirnir Eggert Páll Ein-
arsson (Eddi Pé) og Steinþór Hróar
Steinþórsson (Steindi Junior) eru
komnir með útvarpsþátt á út-
varpsstöðinni Flass Fm 104.5. Þáttur-
inn heitir Tár, bros & alkahól er öll
föstudagskvöld frá kl.18 – 20. Steindi
sagði við blaðamann að þetta væri
ekki ósvipaður vettvangur og blaða-
mennskan en eins og fl estir vita var
hann annar ritstjóri bæjarblaðsins
Lókal. Steinda fi nnst gott að tala um
það sem liggur honum á hjarta til
þess að fá útrás og gott að geta það
vikulega. Eddi sagði að hann hafi
gaman af því að sprella og bulla í
þjóðinni og stefnir á alheimsyfi rráð
í framtíðinni. Þátturinn er fjölbreyti-
legur og þeir félagarnir eru með
marga fasta liði. Fremstur á meðal
jafningja er sjálfur Hemmi Gunn
sem þeir hringja í í hverjum þætti
og spjalla við hann um daginn og
veginn. Steindi sagði: „Hemmi Gunn
er óbeint þriðji aðilinn að þættinum.
Við lítum á hann sem fósturpabba
Mosfellinga enda ól hann okkur upp í
gegnum sjónvarpið og hjálpaði okkur
í gegnum erfi ða tíma með geisladisk
sínum Frískur og fjörugur. Hemmi sér
líka um allar auglýsingar fyrir okkur
og okkur þykir afar vænt um kallinn.”
Þetta er grínþáttur af bestu gerð
að sögn þeirra
félaga og hvetja
þeir alla til þess
að hlusta og styðja sína menn. Það
er bara málið fyrir okkur Mosfellinga
að stilla á Flass.net Fm104.5 og njóta
þáttarins.
Unga fólkið - Mosfellingur 17
TV
ÍF
A
R
A
R
TV
ÍFA
R
A
R
Biggi Haralds
og Maradonna
w
w
w
. p
aa
ca
rt
.c
om
Péturs
Pælingar
Okey, ég hef farið á matsölustaði
svengri en þriðja heims barn og ég
held að mér sé óhætt að segja að ég
sé alltaf kurteis. Hvað er það með fólk
sem hefur dálæti af því að vera dóna-
legt við afgreiðslufólk? Ég fór með
heimsendingu til fólks um daginn
í fl ott einbýlishús. Fyrir utan stóðu
tveir nýlegir og fl ottir bílar. Ég hringdi
bjöllunni og á móti mér tók kona sem
var með höndina fulla af peningum.
Ég sagði við hana, mjög kurteislega:
„Þetta gera 4.035 kr.” Henni virtist
bregða mjög við þessi tíðindi og hljóp
inn. Á meðan stóð ég þarna eins og
bjáni í ískulda og vissi ekki hvaðan á
mig stóð veðrið.
Eftir skamma stund kom
maðurinn hennar og virtist vera alveg
brjálaður og hreytti út úr sér: „Hvernig
er það með þjónustuna þarna hjá
ykkur, getið þið ekki gefi ð upp rétt verð
í símann?!!!” Ég varð hálfaumingja leg
þar sem ég hafði ekki guðmund hvað
maðurinn babblaði um en fer skjótt
að halda að þarna hafi orðið einhver
stór samskiptamistök hjá honum og
yfi rmanninum mínum sem tók við
pöntuninnni.
En annað kom í ljós þegar
maðurinn öskraði á mig: „ÞÚ sagðir í
símann 4.000!!!”
Það sást í kokið á mér þar sem
hakan féll snögg-
lega í kalda stétt-
ina og mig langaði
virkilega að spyrja
fúskinn hvort honum
væri alvara. ÞETTA
VORU 35 KR!!! En þar
sem siðprúðri stúlku eins
og mér hefur alltaf verið
kennt að vera „dönnuð” hélt ég
í mér.
Því næst tók hann úr vasa sínum
lúku af klinki þar sem greinilega glitti
í ógrynni af tí- og fi mmköllum. Á þess-
um tímapunkti hélt ég að mér væri
borgið en sagan hélt áfram þeg ar
hann tók EINA hundraðkallinn á
staðnum og vældi út úr sér: „Þú
verður þá bara að hirða þetta,
þetta er það eina sem ég
á.” (Eins og hann kæmi út
í tapi!!!). Til allrar minnar
lukku var ég með skipti-
mynt sem bjargaði lífi
mínu þennan viðburða-
ríka dag.
En allra best
var þó þe gar
k o n a n
hans fór
að biðja
mig af-
sökunar
á látunum í kall-
inum. Kellingargreyið hefur roðnað
nirðrí rassgat.
Boðskapurinn í þessum pistli
er því þessi: Kæru bæjarbúar,
sýnið þið kurteisi þó
ekki sé nema bara
til þess að hlífa
öðrum fjölskyldu-
meðlimum við
skömminni og/
eða til að þurfa
ekki að lesa
um skandala
ykkar í Mos-
fellingi! ;)
...ærlegri hreyfi ngu
eftir alla velmegun-
ina um hátíðirnar.
Bærinn býður uppá
fjölmargar skemmti-
legar gönguleiðir
úti í guðsgrænni
náttúrunni. Svo
er líka hægt að skella sér í Toppform
og sprikla eins og maður eigi lífi ð
að leysa og fara í sund á eftir.
MOSFELLINGUR
mælir með...
Kara
Kúnninn hefur alltaf
rétt fyrir sér
Opið: sunnud. - mánud. 11:30-23:30 og föstud. - laugard. 11:30-01:00
pizza mánaðarins
HAWAII
skinka og ananas
12" 999 kr. 16" 1199 kr.