Mosfellingur - 24.02.2006, Page 7
Nú líður senn að sveitarstjórna-
kosningum og listar fl okka farnir að
skýrast. Mosfellingur birtir hér lista
Samfylkingar, Sjálfstæðisfl okks og lista
Vinstri-Grænna. Framundan er mikil
barátta um völdin í bænum og allt það
umstang sem kosningunum fylgir.
Mosfellingur hafði samband við
Guð jón Arnar Kristjánsson hjá
Frjáls lynda fl okk n-
um og spurði hann
hvort fl okkurinn
hyggð ist bjóða fram
lista í Mosfellsbæ.
„Ég skal ekki full-
yrða um það að svo
stöddu. Frumkvæði verður að koma
frá okkar mönnum í Mosfellsbæ.
Við eigum ágætis fólk
sem gæti boðið sig fram.
Fólk hefur verið að spjal la
sam an en ekkert meira en
það svo ég viti til.”
Mosfellingur tók einnig tal
af Þresti Karlssyni, oddvita fram-
sóknarmanna í Mosfellsbæ og spurði
hann út í komandi
kosningar.
„Það er búið að
skipa listann en það
á eftir að samþykkja
hann. Þetta verður tekið fyrir í
næstu viku. Það er þó komið á
hreint að ég og Bryndís Bjarnarson
verðum ekki með að þessu sinni.”
Það þykir í dag sjálfsögð þjónusta
að öll börn á aldrinum tveggja til
fi mm ára eigi þess kost að komast að
á leikskóla. Svo hefur ekki alltaf verið.
Ekki fyrir svo mörgum árum síðan, í
lok fyrri valdatíðar sjálfstæðismanna,
voru um 100 börn á biðlista eftir að
komast inn á leikskóla. Í þá tíð var að
mestu boðið upp á hálfsdagsvistun
á leikskólum bæjarins. Á þeim árum
sem síðan fóru í hönd var lyft grettis-
taki í uppbyggingu leikskólanna und-
ir forystu félagshyggjufólks og var
svo komið á árinu 2001 að biðlistum
barna tveggja ára og eldri var útrýmt.
Leikskólagjöld,
40% hækkun
Á þeim tíma var þess gætt að halda
leikskólagjöldum í lágmarki því á þess-
um árum var stefnan um fjölskyldu-
vænt bæjarfélag ekki innantómt
slagorð. Þá voru leikskólagjöld þau
allra lægstu á höfuðborgarsvæðinu
svo nam tugum þúsunda á ári miðað
við þau sveitarfélög sem næst komu.
Nú eru aðrir tímar. Sjálfstæðismenn
hafa á þessu kjörtímabili hækkað
leikskólagjöld um tæp 40% og haldi
svo áfram sem horfi r verður Mos-
fellsbær með hæstu leikskólagjöldin á
höfuðborgarsvæðinu innan skamms.
Systkinaafsláttur
Af málfl utningi sjálfstæðis manna
mætti ætla að systkinaafsláttur
og niðurgreiðslur á gjöldum hafi
komið til fyrir þeirra tilstilli á þessu
kjörtímabili. Það er fjarri lagi. Þeir
hækkuðu systkinaafslátt með öðru
barni á leikskólum og komu því á að
systkina afsláttur gildir á milli stofn-
ana. Það fyrirkomulag er eitt af fáum
nýjungum í þjónustu við bæjarbúa
sem telja má til framsækni af hálfu
sjálfstæðismanna. Hækkanir sjálf-
stæðismanna á öllum gjöldum sem
snerta barnafjölskyldur í bænum
þurrka út þann ávinning sem þessir
afslættir gefa þeim fjölskyldum sem
þeirra gætu notið. Í því sambandi má
benda á að hækkun leikskólagjalds
fyrir barn í átta stunda vistun í fjögur
ár nemur um 330 þús. króna.
Vistun barna yngri
en tveggja ára
Áform voru uppi um, í fram haldi
af því að biðlistum barna tveggja ára
og eldri var útrýmt, að mæta þörf fyrir
vistun barna yngri en tveggja ára. Það
áform fól í sér það markmið að börn
allt frá því að fæðingarorlofi foreldra
lyki gætu átt kost á dagvistun. Með
tilkomu meirihluta sjálfstæðis manna
hefur því máli ekki verið sinnt og
aldrei hefur verið eins slæmt ástand
í bænum hvað varðar úrræði fyrir
þær fjölskyldur sem á vistun þurfa að
halda fyrir börn yngri en tveggja ára.
Gjaldfrjáls leikskóli
Umræða um gjaldfrjálsan leik-
skóla hefur verið mikil að undan-
förnu og hafa jafnaðarmenn og
félagshyggju fólk farið þar fremst í
fl okki. Sveitar félög sem þessir aðilar
fara fyrir svo sem í Reykjavík hafa
hafi ð innleiðingu þessarar stefnu. Í
lögum um leikskóla eru ákvæði þess
efnis að leikskólinn sé fyrsta skólastig
barnsins. Í ljósi þessa og svo þess að
verið er að auka tengingu fi mm ára
deilda leikskól anna við grunnskólann
fl utti ég tillögu í bæjarstjórn við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir árið 2006 að
fi mm ára deildir leik skólanna yrðu
gjaldfrjálsar. Það yrði fyrsta skrefi ð
í þeirri stefnu að leikskólar Mos-
fellsbæjar yrðu gjaldfrjáls ir. Sú tillaga
var felld af sjálfstæðismönnum.
Fjölskylduvænt samfélag
Það er mikilvægt að öll börn í
bæjarfélaginu hafi möguleika á að
njóta þeirrar þjónustu sem sjálfsögð
þykir og stuðlar að þroska þeirra og
velferð óháð efnahag eða félagsleg-
um aðstæðum. Það er mikilvægur
þáttur og ein af forsendum í mótun
fjölskyldu væns samfélags í Mos-
fellsbæ.
Jónas Sigurðsson
bæjarfulltrúi
Jónas
Sigurðsson
skrifar um
leikskólamál í
Mosfellsbæ
7Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - Mosfellingur
Fjölskyldan og leikskólinn
Slagverksleikarinn góðkunni Reynir Sigurðsson hélt ásamt félögum
sínum, Gunnari Hrafnssyni bassaleikara og Jóni Páli Bjarnasyni
gítarleikara, tónleika á vegum Tónlistarfélags Mosfellsbæjar í Hlégarði
föstudaginn 10. febrúar. Eins og við var að búast voru tónleikarnir hin
mesta skemmtun enda léku þeir félagar á alsoddi. Reynir Sigurðsson var
í áraraðir fyrsti slagverksleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hefur
sennilega kennt allfl estum trommuleikurum landsins við sérlega góðan
orðstír. Ágætis mæting var á tónleikana.
Frábærir tónleikar hjá
Reyni Sig. og félögumÞann 18. desember síðastliðinn
hélt kirkjukór Lágafellssóknar
tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík
ásamt fjölda annarra listamanna og
rann allur ágóði óskiptur til geðsviðs
Reykjalundar. Innkoman var í heild
400.000 kr. og afhenti kirkjukórinn
Valgerði Baldursdóttur yfi rlækni
geðsviðs Reykjalundar þann 14.
febrúar. Þetta er í fjórða skiptið
sem kirkjukórinn heldur styrktar-
tónleika og ávallt hefur allur ágóði
runnið til líknarmála.
Kosningabaráttan er hafin af fullum krafti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningarnar þann 27. maí
Framboðslistar flokkanna mótast
1. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
2. Haraldur Sverrisson
3. Herdís Sigurjónsdóttir
4. Hafsteinn Pálsson
5. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson
6. Bryndís Haraldsdóttir
7. Bjarki Sigurðsson
8. Agla Elísabet Hendriksdóttir
9. Hilmar Stefánsson
10. Elín Karitas Bjarnadóttir
11. Theódór Kristjánsson
12. Katrín Dögg Hilmarsdóttir
13. Grétar Snær Hjartarson
14. Klara Sigurðardóttir
fiJÓ‹VAKI
Sjálfstæðisfl okkur
1. Karl Tómasson
2. Bryndís Brynjarsdóttir
3. Jóhanna B. Magnúsdóttir
4. Elísabet Kristjánsdóttir
5. Bjarki Bjarnason
6. Ólafur Gunnarsson
7. Katrín Sif Oddgeirsdóttir
8. Loftur Þór Þórunnarsson
9. Silja Hlín Guðbjörnsdóttir
10. Birgir Haraldsson
11. Guðjón Jensson
12. Ingibjörg B. Ingólfsdóttir
13. Davíð Örvar Hansson
14. Gísli Ársæll Snorrason
Vinstri-Grænir
Litir:
Grænn: pantone 356cvu
Rau•ur: pa tone 485cvu
Samfylking
1. Jónas Sigurðsson
2. Hanna Bjartmars Arnardóttir
3. Anna Sigríður Guðnadóttir
4. Baldur Ingi Ólafsson
5. Óskar Ingi Sigmundsson
6. Gerður Pálsdóttir
7. Helga Dís Sigurðardóttir
8. Valdimar Leó Friðriksson
9. Aþena Mjöll Pétursdóttir
10. Ragnar Gunnar Þórhallsson
11. Lísa Sigríður Greipsson
12. Aagot Árnadóttir
13. Lárus Haukur Jónsson
14. Guðný Halldórsdóttir
Tríóið lék við hvern sinn fi ngur við
mikla hrifningu viðstaddra.
Steindór Hálfdánarson prentari,
Sigurbjörg Sigurðardóttir og
Vernharður Linnet jassfræðingur.
Helgi Sigurgeirsson bókbindari, Rósa
María Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, Guðmundur Ómar Óskarsson
tónlistarkennari, Höskuldur Þráinsson
prófessor og Sighvatur Lárusson.
ÖSKUDAGSGRÍMUBALL
4. mars í Hlégarði
Í tilefni að öskudeginum verður
haldið grímuball í Hlégarði
laugardaginn 4. mars nk.
Hinn geysivinsæli dúett Hljómur
mun spila fyrir dansi.
Húsið opnar kl. 24 og kostar
1000 kr. inn en þess ber
að geta að árgangur
‘81 ætlar að hittast
fyrr um kvöldið í húsinu.
ALLIR VEKKOMNIR
HÚSIÐ OPNAR KL. 24