Fréttablaðið - 28.02.2019, Qupperneq 16
Hinir nýju þing
menn Miðflokksins
hafa verið pólitískir banda
menn okkar á Al þingi frá
því strax eftir kosningar og
mikill sam hljómur verið
milli þeirra og þing manna
flokksins.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins
Rúmgott 296,3 fm einbýlishús á vinsælum stað við Stigahlíð
52 í Reykjavík. Eignin skiptist í tvöfaldan bílskúr með heitu og
köldu vatni. Þar er bílskúrshurðaopnari og gluggar en inn af
bílskúr eru tvær geymslur. Komið er inn í forstofu sem er flísa-
lögð og með stórum fataskápum. Marmari á gólfum. Eldhús
er með hvítri innréttingu og á gólfi er gegnheilt eikarparket.
Rúmgóð borðstofa tengir eldhús við stofur. Þá er skrifstofa,
fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sólstofa og glæsilegur
garður. Stutt í skóla, þjónustu og verslanir.
Fasteign vikunnar úr Fasteignablaði Fréttablaðsins
Vikan
Breytingar í Miðflokki,
áhyggjur veitinga-
manna og Eddan var
meðal þess sem bar
hæst í liðinni viku.
Kjaraviðræður eru þó
líklega aðalhitamálið.
Bandaríska stórleik
konan Jodie Foster hefur lýst
áhuga á því að endurgera
Kona fer í stríð á enskri
tungu.
Veitingamenn hafa
áhyggjur
Veitingarekstur hefur verið erf-
iður frá sumrinu 2017 og hart er í
ári hjá veitingamönnum. Kostnað-
ur hefur farið vaxandi en offram-
boð á veitingastöðum hefur leitt
þess að hart er barist um magana
í hádeginu. Þess vegna er hægt
að fara út að borða í hádeginu á
góðum stöðum í miðbænum fyrir
jafnvel minni pening en á skyndi-
bitastöðum eða kaffihúsum.
Verð hefur lækkað en rekstrar-
kostnaður aukist enda hafi laun og
húsaleiga hækkað, segja veitinga-
menn. Markaðurinn ræddi við
veitingamenn í miðbænum og á
Granda sem hafa áhyggjur og segja
ekkert svigrúm til launahækkana.
Á sama tíma gera verkalýðsfélögin
kröfu um ríkulegar hækkanir og
sveifla verkfallsvopninu.
Kona fer í stríð
sigurvegari
Uppskeruhátíð íslensku sjónvarps-
og kvikmyndaakademíunnar fór
fram á föstudagskvöld þegar
Edduverðlaunin voru veitt en 20
ár eru frá því að verðlaunin voru
fyrst veitt. Tilnefningarnar voru
gerðar opinberar í byrjun febrúar.
Kvikmynd ársins er stórvirki
Benedikts Erlingssonar, Kona
fer í stríð, en hún var jafnframt
sigursælasta kvikmynd kvöldsins
með níu verðlaun. Hlaut Halldóra
Geirharðsdóttir verðlaun sem
besta leikkona í aðalhlutverki og
Benedikt varð hlutskarpastur sem
leikstjóri ársins.
Næstsigursælust var kvikmynd-
in Lof mér að falla, sem hlaut fern
verðlaun, m.a. bæði fyrir leikkonu
og leikara í aukahlutverki, en þau
verðlaun hlutu Þorsteinn Bach-
mann og Kristín Þóra Haralds-
dóttir.
Gengu til liðs
við Miðflokkinn
Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti
Hjaltason gengu til liðs við Mið-
flokkinn í síðustu viku. Þeir voru
reknir úr Flokki fólksins eftir hið
fræga kvöld á Klaustri, þar sem
þingmenn fóru ófögrum orðum
um samstarfsmenn sína. Á um-
ræddum fundi ræddu þingmenn-
irnir meðal annars hugmyndir
stjórnenda Miðflokksins um að
fá þá til að skipta um flokk og
ganga í Miðflokkinn. Í þingflokki
Miðflokksins eru níu þingmenn
eftir viðbótina og er hann stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn.
Formaður flokksins, Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, er
hæstánægður með nýju með-
limina. „Hinir nýju þing menn
Mið flokksins hafa verið pólitískir
banda menn okkar á Al þingi frá
því strax eftir kosningar og mikill
sam hljómur verið milli þeirra
og þing manna flokksins,“ sagði
Sig mundur í bréfi til flokks manna
sinna.
Harðnandi átök
á vinnumarkaði
Kjaraviðræðum Eflingar, VR,
Verkalýðsfélags Akraness og
Verkalýðsfélags Grindavíkur við
Samtök atvinnulífsins (SA) var
slitið fyrir helgi. Í kjölfarið sam-
þykkti Efling verkfallsboðun hjá
hótelþernum sem munu leggja
niður störf 8. mars verði það sam-
þykkt í atkvæðagreiðslu.
SA hafa kært atkvæðagreiðsluna
og mun Félagsdómur úrskurða
um lögmæti hennar í næstu viku.
Stéttarfélögin hafa boðað frekari
og harðari verkfallsaðgerðir
takist ekki samningar. Er þeim að-
gerðum fyrst og fremst beint að
stórum aðilum í ferðaþjónustu.
Þá hafa samningsaðilar deilt
um hverjar raunverulegar kröfur
stéttarfélaganna séu og hafa
ásakanir um útúrsnúninga og
rangfærslur gengið á víxl. Kjara-
viðræðum annarra stéttarfélaga
við SA hefur nú verið vísað til ríkis-
sáttasemjara.
TILVERAN
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-8
F
A
8
2
2
7
3
-8
E
6
C
2
2
7
3
-8
D
3
0
2
2
7
3
-8
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K