Morgunblaðið - 05.09.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 208. tölublað 106. árgangur
DAGBÓK
FÍKILS VAR
UPPHAFIÐ
TILRAUNAGJARNAR
SJÁLFBOÐASTARF Í
ÞÁGU BÁGSTADDRA
BARNA Í S-AFRÍKU
GRÚSKA BABÚSKA 33 LILJA MARTEINSDÓTTIR 12LOF MÉR AÐ FALLA 30
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verðmætasköpun í hugverkaiðnaði
nam um 186 milljörðum í fyrra.
Greinin er nú næstum jafn stór og
tvær aðrar megingreinar iðnaðar;
byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð og framleiðsla án fiskvinnslu.
Umsvif síðastnefndu greinarinn-
ar, framleiðslu án fiskvinnslu, hafa
þróast í takt við spár. Hækkandi
launakostnaður og styrking krónu
hafa skert samkeppnishæfnina.
Það birtist í því að hlutur fram-
leiðslu án fiskvinnslu, sem hlutfall af
landsframleiðslu, hefur minnkað
jafnt og þétt á þessum áratug.
Fyrirtækin fleiri og stærri
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri
hugverkasviðs hjá Samtökum iðnað-
arins, segir vægi hugverkaiðnaðar í
landsframleiðslu og verðmætasköp-
un ekki koma á óvart. Vægið endur-
spegli þróun yfir langt tímabil. „Við
erum að sjá afraksturinn núna. Há-
tækni- og hugvitsdrifin fyrirtæki
skipa orðið stærri sess í landsfram-
leiðslunni. Þeim hefur fjölgað og þau
hafa stækkað,“ segir Sigríður.
Hún bendir á að hugvit og há-
tækni hafi áhrif á aðrar iðngreinar
og atvinnulífið í heild. »14
Umsvifin stefna
í 200 milljarða
Hugverkageirinn er vaxandi iðngrein
Hlutur iðnaðar í
landsframleiðslu
12%
8%
4%
0%
Framleiðsla án fiskvinnslu
Hugverkaiðnaður
2010 2017
Heimild: SI
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu var hársbreidd frá
því að tryggja sér sæti í umspili fyrir lokakeppni heimsmeist-
aramótsins í gær. Liðið gerði jafntefli við Tékka, 1:1, á Laug-
ardalsvellinum en tékkneski markvörðurinn varði vítaspyrnu
Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í uppbótartíma leiksins og kom í
veg fyrir að Ísland kæmist áfram. Rétt á undan hafði Glódís
Perla Viggósdóttir jafnað metin. Vonbrigðin voru skiljanlega
mikil í leikslok en nú þarf liðið að bíða í fjögur ár eftir því að
eiga aftur möguleika á að komast á HM. » Íþróttir
Morgunblaðið/Eggert
HM-draumurinn
varð að engu
Fjármálaeftirlitið
hefur tekið fyrsta
fyrirtækið sem sér-
hæfir sig í þjónustu
um rafmynta-
viðskipti til skrán-
ingar. Fyrir-
tækjum af þessu
tagi var gert skylt
að skrá starfsemi
sína hjá stofn-
uninni í kjölfar nýsettrar löggjafar
sem sporna á við peningaþvætti og
hryðjuverkastarfsemi. Fyrirtækið
sem hlotið hefur skráningu sem þjón-
ustuveitandi viðskipta með það sem
skilgreint er sem sýndarfé og raf-
eyrir, nefnist Skiptimynt ehf. Fram-
kvæmdastjóri þess er Hlynur Þór
Björnsson. Það heldur úti rafmynta-
markaði á netinu og þar er hægt að
kaupa og selja bitcoin og aurora coin í
skiptum fyrir íslenskar krónur. »16
Skrá raf-
mynta-
þjónustu
Rafmyntamark-
aður nú undir eftirliti
Hlynur Þór
Björnsson
Fyrsti fundur borgarstjórnar eftir
sumarfrí var haldinn í gær þar sem
langar og stundum harðar umræður
fóru fram. Um klukkan 22 í gær-
kvöldi hafði borgarstjórn einungis
komist yfir átta mál og var það ní-
unda til umræðu af alls 21 máli sem
var á dagskrá fundarins.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, gerði fjöl-
margar athugasemdir við meiri-
hlutasáttmálann, t.a.m. um
umhverfismál, húsnæðismál og skóla-
mál, á fundinum í gær. Sagði hann
sáttmálann vera samkomulag um
óbreytt ástand. „Það er fátt sem vek-
ur von um að þær stóru breytingar
sem að margir kölluðu eftir í vor verði
að veruleika,“ sagði Eyþór.
Þá var hart tekist á, sérstaklega
milli borgarstjóra Dags B. Eggerts-
sonar og Vigdísar Hauksdóttur,
borgarfulltrúa Miðflokksins, um
hvort þörf væri á nýrri úttekt á starf-
semi æðstu stjórnar borgarinnar.
Í tveimur málum var þó mikil sam-
staða meðal borgarfulltrúa. Annars
vegar um tillögu um fleiri göngugötur
í borginni, sem var samþykkt mót-
atkvæðalaust. Hins vegar var gerð
málsmeðferðartillaga um loftgæða-
mál. Tillaga Sjálfstæðisflokksins ann-
ars vegar og Samfylkingarinnar, Við-
reisnar, Pírata og Vinstri grænna
hins vegar um loftgæði voru samein-
aðar í eina. Var hin breytta tillaga síð-
an samþykkt af öllum borgar-
fulltrúum. »4
Harðar umræður á
fundi borgarstjórnar
Breytt tillaga um loftgæði samþykkt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umræður Fundur borgarstjórnar
hófst kl. 14 og stóð fram á kvöld.