Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 6
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Nýr Börkur NK sem væntanlegur er til landsins í lok árs 2020 verður fimmta skipið í eigu Síldarvinnslunn- ar í Neskaupstað sem ber þetta nafn. Skipið leysir af hólmi núverandi Börk sem verið hefur í eigu Síldarvinnsl- unnar frá 2014. Í Morgunblað- inu á mánudag var greint frá áform- um Síldarvinnsl- unnar og Sam- herja um að láta smíða tvö stór uppsjávarskip hjá Karstensens- skipasmíðastöð- inni í Danmörku. Þar kom fram að kaupverðið gæti verið um fjórir milljarðar króna fyrir hvort skip. Fjallað er um nýsmíði Síldar- vinnslunnar á heimasíðu fyrirtækis- ins og kemur þar fram að stjórn Síld- arvinnslunnar hafi samþykkt að ganga til samninga við danska fyrir- tækið. Karstensens er með höfuð- stöðvar í Skagen en auk þess rekur fyrirtækið skipasmíðastöð í Gdynia. Gert er ráð fyrir að skrokkur skipsins verði smíðaður í Póllandi. Skipið verði síðan dregið til Dan- merkur þar sem það verður fullklár- að. „Karstensens hefur verið leiðandi í smíði uppsjávarskipa undanfarin ár en fyrirtækið hefur verið að afhenda 6-7 skip á ári að undanförnu,“ segir á heimasíðunni. Nýr Börkur verður smíðaður fyrir flotvörpu- og hringnótaveiðar og verður 88 metrar að lengd. Stærðin er 4.100 brúttótonn. Aðalvélar verða tvær 3.200 kW hvor vél og rafall skipsins verður 3.500 kW. Tvö kerfi, hvort um sig 1.500 kW, verða í skip- inu til að kæla aflann, en samtals verða kælitankar 13 talsins, alls 3.420 rúmmetrar. Vistarverur í skipinu verða fyrir 16 manns. 7 þúsund tonn eða 70 þúsund? Á heimasíðunni er eftirfarandi m.a. haft eftir Gunnþóri B. Ingvasyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunn- ar, um smíði nýs Barkar: „Þetta er mjög spennandi verkefni og fellur vel að framtíðarsýn okkar hvað snertir veiðar og vinnslu upp- sjávartegunda. Það er ljóst að miklar sveiflur í kvótum einkenna veiði úr okkar helstu fiskistofnum. Sem dæmi vitum við ekki núna hvort Síldar- vinnslan er að fara að veiða 70 þúsund tonn eða 7 þúsund tonn á komandi loðnuvertíð. Sókn eftir kolmunna er löng og hefur verið að færast í aukana að veiða úr þeim stofni á alþjóðlegum hafsvæðum. Þá skiptir máli að hafa stór og öflug skip... Með nýjum Berki fáum við skip með öfluga kæligetu og allur aðbún- aður um borð verður mjög góður. Nýja skipið verður sparneytnara og burðarmeira, núverandi Börkur er með 2.500 rúmmetra lestar á meðan sá nýi verður með rúmlega 3.400 rúmmetra lestar.“ Tölvumynd/Síldarvinnslan/Karstensens Síldarvinnslan Nýja skipið verður sparneytnara og burðarmeira en núverandi Börkur og með öfluga kæligetu. Verður fimmta skipið með nafninu Börkur  Kemur í lok árs 2020  Miklar sveiflur einkenna veiðar Gunnþór Ingvason Skipasmíðar Hjónin Knud Degn Karstensen og Marín Magnúsdóttir. Tengsl Karstensens-skipasmíða- stöðvarinnar við Ísland eru veruleg því eiginkona Knud Degn Karsten- sen, eiganda og forstjóra, er Marín Magnúsdóttir. Í stuttu samtali í gær sagði hún að nóg væri að gera hjá fyrirtækinu, sem nýlega af- henti uppsjávarskip til útgerðar á Whalsay á Hjaltlandseyjum. Hún segir að eftir kaup á skipasmíða- stöð í Póllandi fyrir nokkru muni um 750 manns vinna hjá fyrir- tækinu. „Það er sérstaklega gaman að fara að vinna aftur fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki,“ segir Marín, en stöðin smíðaði meðal annars Þór- unni Sveinsdóttur VE fyrir Ós í Vestmannaeyjum. Mörg skip hafa verið smíðuð fyrir Norðmenn og Færeyinga, meðal annars Þrándur í Götu, og enn fremur t.d. fyrir Íra, Skota og Svía. Náin tengsl við Ísland STÓRT FYRIRTÆKI 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Slys Steinsholtsá. Áin getur verið straumhörð og varasöm yfirferðar. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Útlendingar sem leigja bíla hjá Bíla- leigu Akureyrar fá fræðslu um það hvernig þeir eiga að bera sig að við að aka yfir óbrúaðar ár hér á landi. Spurningar hafa vaknað um hvernig þessum málum er háttað eftir að ung hjón í brúðkaupsferðalagi festu bíla- leigubíl í miðri Steinsholtsá við Þórs- mörk í síðustu viku og konan drukkn- aði. „Stór hluti af okkar erlendu við- skiptavinum kaupir sína ferð til Ís- lands í gegnum erlendar ferðaskrif- stofur. Við höldum kynningu fyrir starfsfólk margra af þeim ferðaskrif- stofum sem selja ferðir til Íslands. Í þeirri kynningu er meðal annars far- ið yfir hvernig skal bera sig að við akstur yfir ár,“ segir Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmda- stjóri Bílaleigu Akureyrar, í skrif- legu svari við fyrirspurn Morgun- blaðsins. Pálmi Viðar segir að upplýsinga- skjáir séu við allar stærstu útleigu- stöðvar bílaleigunnar. Þar rúlli glærusýning. „Ein glæran er tileink- uð akstri yfir ár, bæði hvernig eigi að bera sig að við aksturinn og eins virkni trygginga við slíkan akstur,“ segir hann. Loks segir Pálmi að allir erlendir viðskiptavinir bílaleigunnar fái af- hent tímarit sem hún gefi út. „Í þessu tímariti förum við yfir mörg mál sem snerta öryggi viðskiptavina okkar á íslenskum vegum svo sem einbreiðar brýr, bílbeltanotkun, hraðatakmark- anir og mjög margt fleira. Í þessu tímariti er hálfsíða þar sem farið er sérstaklega yfir hvernig skal bera sig að við akstur yfir ár,“ segir Pálmi. Þess má geta að á vegum Sam- göngustofu hafa verið framleidd stýrisspjöld í bílaleigubíla þar sem með myndrænni framsetningu er vakin athygli á helstu hættum sem við er að fást við akstur um Ísland. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að hægt sé að banna akstur sumra bílaleigu- bíla yfir óbrúaðar ár. Slysið í Steinsholtsá varð á föstu- daginn. Hjónin festu bílinn í miðri ánni þegar þau reyndu að þvera hana. Maðurinn náði að koma sér úr bílnum og á þurrt en konan féll í ána. Maðurinn var blautur og kaldur þeg- ar björgunarlið og skálaverðir komu á staðinn. Töluvert vatn var í ánni. Hjónin voru flutt á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar og var konan úrskurðuð látin þegar komið var á Landspítalann. Fræða um akstur yfir óbrúaðar ár  Slysið í Steinsholtsá við Þórsmörk hefur vakið spurningar um hvort útlendingar sem leigja bílaleigu- bíla hér á landi hafi kunnáttu til að aka yfir óbrúaðar ár  Bílaleiga Akureyrar segist veita slíka fræðslu Ljóðasetur Hveragerðis og vinir Kristjáns Runólfssonar minjasafn- ara ætla að halda hagyrðingamót í Hveragerði annað kvöld til styrktar Kristjáni og fjöl- skyldu hans. Hagyrðinga- mótið verður það þriðja sem ljóða- setrið heldur og fer fram í Skyr- gerðinni í Hvera- gerði. Kristján hefur átt í harðri bar- áttu við krabba- mein og dvelur nú á spítala. Eiginkona hans, Ragn- hildur Guðmundsdóttir, er með MS- sjúkdóminn. Góður hagyrðingur Kristján, sem er ættaður úr Skagafirði, stofnaði minjasafn Krist- jáns Runólfssonar á Sauðárkróki fyrir um 18 árum en flutti safnið til Hveragerðis nokkrum árum síðar þegar fjölskyldan flutti þangað. Kristján er góður og mikill hag- yrðingur að sögn þeirra sem þekkja til hans þó hann hafi aldrei gefið út ljóðabók. Hann hefur tekið þátt í báðum hagyrðingamótum ljóðaset- ursins hingað til en mun ekki koma fram annað kvöld vegna veikind- anna. „Það er dýrt að reka svona veik- indi,“ segir Sigurður Blöndal vinur Kristjáns og einn þeirra sem koma að mótinu. Hann býst við miklu fjöri og gerir ráð fyrir að um eitt hundrað ferskeytlur verði samdar annað kvöld. Hagyrðingamótið hefst klukkan 20 í Skyrgerðinni í Hveragerði. Að- gangseyrir er 2.000 kr. og rennur hann óskiptur til fjölskyldu Krist- jáns. Yrkja fyrir veikan vin  Allur ágóði rennur til Kristjáns Runólfssonar og fjölskyldu hans Kristján Runólfsson Vorið mun koma og verma að nýju, vaknar þá lífið um dali og grund, saknandi bíðum við sólgeislahlýju, sumars við fögnum með gleði í lund, því skal ei vera með trega né tár, tíminn hann líður, það vissa er klár. Hjartamál og hugardraumar LJÓÐ KRISTJÁNS Bílar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.