Morgunblaðið - 05.09.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 05.09.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams Sýningareintak á staðnum. Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræstikerfi Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja1988@gmail.com Lilja Marteinsdóttir erþriggja barna móðir ogbúsett í Höfðaborg (CapeTown) í Suður-Afríku. Eft- ir að hafa lokið námi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst hélt hún til Englands í meistaranám. Þar tóku örlögin yfir. Lilja pakkaði hafurtaski sínu ofan í nokkrar ferðatöskur og fluttist á vit ævintýranna til Suður- Afríku, þar sem hún hefur dvalið mörg undanfarin ár. Þar stofnaði hún Norður-Suður sjálfboða- samtökin, sem aðstoða suður- afrískar konur og börn þeirra. Flestir eru samdauna fátækt fólksins „Um leið og ég kom til Suður- Afríku kom aldrei annað til greina hjá mér en að taka þátt í samfélags- vinnu hér. Suður-Afríka er flókin; landið er fullt af ólýsanlegri fegurð og allsnægtum og á sama tíma ríkir gríðarleg fátækt og samfélagsvanda- málin eru mörg og erfið,“ segir Lilja. „Flestir hér sem hafa það gott eru orðnir samdauna fátæktinni hjá þeim sem minnst mega sín og fáir þora eða vilja stíga út fyrir þægindaramman sinn. Fólk er duglegt að gefa til kirkjunnar eða í stærri hjálpar- samtök – en það er stórt vandamál hvernig þeim auði er dreift. Mörg minni verkefni og einstaklingar fá ekkert. Ég byrjaði að vinna sem sjálfboðaliði í súpueldhúsi fyrir heim- ilislaust fólk og í gegnum það starf byrjaði ég að fara niður í fátækra- hverfin og kynntist þar algjörlega nýjum heimi.“ Í minningu Bjarna Eftir að hafa komist í kynni við ýmis verkefni og fólk í fátækrahverf- um Suður-Afríku áttaði Lilja sig á því að hún vildi gera meira. „Ef ég gæti vakið athygli á því sem væri hægt að gera gæti slíkt skipt sköpum í lífi fólksins. Þörfin var mikil; litlir leikskólar og munaðarleysingjaheim- ili sem ég aðstoða voru í svo mikilli þörf fyrir fjármuni, aðstoð, leiðsögn og bara að fá fleiri hendur til starfa. Því stofnaði ég Norður-Suður sjálf- boðasamtökin. Að geta tengt þessa tvo heima hefur reynst ómetanlegt, bæði fyrir sjálfboðaliða en sér- staklega fyrir börnin og þær konur sem við aðstoðum. Án þessa stuðn- ings gæti ég ekki haldið áfram að styðja við verkefnin eins og við gerum,“ segir Lilja. Auk þess að halda úti Norður- Suður stendur Lilja einnig að baki BigB samtökunum. „Ég stofnaði BigB-góðgerðasamtökin með stuðn- ingi frá fjölskyldu og aðstandendum Bjarna Salvars Eyvindssonar, sem lést í slysi þegar hann var í fjallgöngu hér í landi snemma á síðasta ári. Bjarni var hugrakkur og einstakur ungur maður sem gladdi börnin hér ómetanlega og kölluðu þau hann allt- af Big B,“ segir Lilja og heldur áfram: „Samtökin starfa með það að leiðarljósi að halda minningu Bjarna á lofti og bæta líf barnanna sem Bjarna þótti svo vænt um. Hann ferðaðist um heiminn þrátt fyrir hamlanir og fyrsta verkefni okkar hjá BigB var að setja upp prógramm fyrir börnin niðri í fátækrahverfi þar sem við förum með þau í vettvangs- ferðir. Kynnum þeim heiminn utan fátækrahverfanna, sem flest þeirra hafa aldrei farið út úr, og kennum þeim að tækifærin í lífinu eru ótak- mörkuð.“ Athvarf, aðstoð og stuðningur Lilja segir draum sinn að setja upp athvarf til þess að geta aðstoðað börnin markvisst og veitt þeim við- eigandi aðstoð og stuðning. „Næsta skref BigB er að setja upp þessa mið- stöð og við leitum nú að aðstoð svo að þetta geti orðið að veruleika. Ungfrú Ísland hefur nú þegar gengið í lið með okkur og mun aðstoða við fjár- öflun og erum við ákaflega þakklát fyrir þann stuðning og vona ég að fleiri verði með.“ Lilja segist líka vel að búa í Suð- ur-Afríku. Landið sé fallegt, veðr- áttan góð og tækifærin til þess að lifa og njóta séu mikil. Samfélagið sé barnvænt og við ströndina þar sem hún býr séu endalausar vínekrur, markaðir og fleira gott. Vandamálin í samfélaginu séu þó augljós og huga þurfi að öryggi á annan máta en gert sé á Íslandi. „Íslendingar mættu alveg setja Suður-Afríku á listann sinn sem áfangastað. Ferðalagið er langt en það er auðvelt og sannarleg þess virði,“ segir Lilja að síðustu. Nýr heimur í Höfðaborg Mörgu er misskipt í Suð- ur-Afríku, þar sem Lilja Marteinsdóttir býr og starfar. Þar sinnir hún sjálfboðaliðastarfi í þágu bágstaddra barna og kennir þeim að tækifærin í lífinu eru endalaus, sé rétt á öllu haldið. Lífið Lilja Marteinsdóttir heillaðist af Suður-Afríku; landi og þjóð. Hjálparstarf Blikið í augum barnanna bræðir alla, svo að aðstoð við þau er ljúf skylda. Barnaheimili „Gríðarleg fátækt er og samfélagsvandamálin eru mörg og erfið,“ segir Lilja. AFP Táknmynd Ferðamenn við styttu af mannréttindaleiðtoganum Nelson Man- dela, einum áhrifamesta manni Suður-Afríku og jafnvel heimsins alls. www.bigbproject.org

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.