Morgunblaðið - 05.09.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjármálaeftirlitið hefur tekið til
skráningar fyrsta fyrirtækið hér á
landi sem heimild hefur til að veita
þjónustu í tengslum við viðskipti
„milli sýndarfjár,
rafeyris og gjald-
miðla,“ eins og
það er orðað í til-
kynningu frá
stofnuninni. Í
henni segir sömu-
leiðis að þjónustu-
veitendur af þessu
tagi bjóði m.a. upp
á skipti á reiðufé
og sýndarfé (skv.
íslenskum lögum
er sýndarfé hvers konar stafrænt fé
sem er hvorki rafeyrir í skilningi laga
um útgáfu og meðferð rafeyris né
gjaldmiðill).
Fyrirtækið sem skráð hefur verið í
þessu skyni á vettvangi FME nefnist
Skiptimynt ehf. Fyrirtækið hefur frá
áramótum rekið rafmyntamarkað á
vefsvæðinu www.isx.is þar sem fólki
er frjálst að eiga viðskipti með raf-
myntirnar aurora coin og bitcoin.
Nú fyrst skráningarskylt
Hlynur Þór Björnsson er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og hann
segir tilkynninguna frá FME
ánægjulegt skref í þróun að virkari
markaði með rafmyntir og sýndarfé.
„Við höfum rekið rafmyntamark-
aðinn frá 2017 þegar við byrjuðum
með aurora coin og svo bættist bitcoin
við í janúar. Ný löggjöf sem byggir á
peningaþvættistilskipun ESB gerir
okkur hins vegar skylt að skrá starf-
semina hjá FME. Þegar löggjöfin
varð að veruleika gengum við beint í
það og það er vissulega gott að skrán-
ingin sé núna í höfn.“
Hlynur Þór segir að ákveðnar
kvaðir fylgi skráningu af þessu tagi,
t.d. geti FME kallað eftir gögnum frá
fyrirtækinu sé þess óskað, m.a. í
tengslum við rannsóknir á einstaka
málum. „Við erum sömuleiðis tilkynn-
ingarskyld ef við sjáum eitthvað grun-
samlegt í viðskiptum á markaðnum,
m.a. ef það gæti tengst peningaþvætti
eða hryðjuverkastarfsemi. Þetta eru í
raun nákvæmlega sömu kvaðir og
lagðar eru á banka og greiðslukorta-
fyrirtæki. Tilskipunin nýja fól einfald-
lega í sér að skiptimörkuðum með raf-
myntir var bætt á þennan lista ásamt
nokkrum öðrum aðilum.“
Talsverð velta á litlum markaði
Hlynur Þór segir að markaðurinn
með rafmyntir gangi vel hér á landi en
að hann sé smár í sniðum.
„Ég myndi halda að við séum
minnsti rafmyntamarkaður í heimin-
um. Á fyrstu sex mánuðum ársins
nam veltan með bitcoin um 250 millj-
ónum króna. Það er ekki síst forvitni-
legt í ljósi þess að bitcoin hefur verið í
talsverðri lægð allt þetta tímabil.“
Hlynur Þór bendir þó á að bitcoin
hefur hækkað mjög mikið á síðustu
árum og að forvitnilegt verði að fylgj-
ast með markaðnum þegar og ef raf-
myntin tekur á flug að nýju.
Eigendur Skiptimyntar ehf. eru
þeir Árni Viðar Árnason, Hermann
Ingi Finnbjörnsson og Hlynur Þór
Björnsson sem hver um sig á 33,3% í
félaginu. Óveruleg umsvif voru í fé-
laginu á nýliðnu ári. Þá námu rekstr-
artekjur félagsins 1,8 milljónum
króna og skilaði það 248 þúsund
króna hagnaði. Eigið fé nam 504 þús-
und krónum en skuldir 46,4 milljón-
um.
Fá að þjónusta rafmyntir
Getty Images/iStockphoto
Fjármálaeftirlitið hefur skráð fyrsta þjónustuveitanda rafmynta hérlendis
Ákvörðunin felur í sér að reka megi skiptimarkað með rafmyntir á Íslandi
Smár markaður
» Um kvöldmatarleytið í gær
höfðu 0,56 bitcoin gengið
kaupum og sölum síðasta
sólarhringinn á isx.is.
» Þá stóð 1 bitcoin í ríflega
775 þúsund íslenskum krónum.
» Á sama tíma stóð aurora co-
in í 35 íslenskum krónum. Við-
skipti með þá mynt voru hverf-
andi.
Hlynur Þór
Björnsson
Þjóðverjar 54 þúsund, Bretar 29
þúsund en Íslendingar 42 þúsund.
Jón Bjarki Bentsson, sérfræð-
ingur hjá Íslandsbanka, segir að
þessar nýju tölur frá Hagstofunni
beri þess merki að vaxtartímabilinu
sé að ljúka. „Almennt endurspeglar
þetta aðra nýlega hagvísa sem
teikna upp þá mynd að það virðist
vera að koma jafnvægi á ferðaþjón-
ustuna og að vaxtartímabilinu sé að
ljúka í bili í þessum geira. Núna er
verkefnið að þroska geirann og
hagræða og minnka líkur á bak-
slagi.“ peturhreins@mbl.is
Fjöldi gistinátta í júlí stóð nánast í
stað á milli ára. 1,6% fækkun var á
hótelum og gistiheimilum en 2%
fjölgun varð hjá öðrum tegundum
gististaða. Gistinætur ferðamanna
samkvæmt gögnum Hagstofunnar
voru 1.405.400 í júlí en 1.402.900 í
sama mánuði í fyrra. Gistinætur á
hótelum og gistiheimilum voru
695.700 en gistinætur á öðrum teg-
undum gististaða voru 709.700. 91%
gistinátta á hótelum var skráð á er-
lenda ferðamenn. Af 467 þúsund
gistinóttum voru Bandaríkjamenn
með þær flestar, eða 152 þúsund,
Jafnvægi komið á ferðaþjónustu
Fjöldi gistinátta stóð í stað á milli
ára Næsta skref að þroska geirann
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn 1,6% fækkun var á gistinóttum á hótelum og gistiheimilum.
● Mest viðskipti voru með bréf Arion
banka í viðskiptum í Kauphöll Íslands í
gær. Námu þau alls rúmum 394 millj-
ónum króna. Hækkuðu bréf bankans
um 2,4% í þeim. Þá hækkuðu bréf Ice-
landair Group lítillega eða um tæp
0,3% í tæplega 250 milljóna við-
skiptum. 205,2 milljóna króna viðskipti
voru með bréf Marel og stóðu bréf fé-
lagsins í stað eftir viðskipti dagsins.
Mest lækkuðu bréf TM eða um tæp
1,5% í óverulegum viðskiptum. Sömu
sögu mátti segja af óverulegum við-
skiptum með bréf Reita sem lækkuðu
um 0,6% í afar takmörkuðum viðskipt-
um.
Arion banki hækkaði
mest í Kauphöllinni
5. september 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 107.45 107.97 107.71
Sterlingspund 138.47 139.15 138.81
Kanadadalur 82.28 82.76 82.52
Dönsk króna 16.733 16.831 16.782
Norsk króna 12.846 12.922 12.884
Sænsk króna 11.788 11.858 11.823
Svissn. franki 110.78 111.4 111.09
Japanskt jen 0.9667 0.9723 0.9695
SDR 150.2 151.1 150.65
Evra 124.75 125.45 125.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.9438
Hrávöruverð
Gull 1201.7 ($/únsa)
Ál 2111.5 ($/tonn) LME
Hráolía 77.69 ($/fatið) Brent
● Sprotafyrirtækið Kaptio hefur verið
valið Vaxtarsproti ársins sem er viður-
kenning fyrir öfluga uppbyggingu
sprotafyrirtækis. Fyrirtækið selur bók-
unarkerfi fyrir ferðaþjónustuna og eru
viðskiptavinir þess ferðaskrifstofur og
ferðaskipuleggjendur með starfs-
stöðvar á Íslandi, Bretlandi, Kanada,
Bandaríkjunum, Kína og Ástralíu. Tekjur
félagsins jukust um 211% milli áranna
2016 og 2017 og fóru úr 71 milljón
króna í 221 milljón króna.Vaxtarsprot-
inn er samstarfsverkefni Samtaka iðn-
aðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Há-
skólans í Reykjavík og Rannsóknar-
miðstöðvar Íslands. Þetta er í 12.
skiptið sem viðurkenningarnar eru
veittar. Þrjú önnur sprotafyrirtæki,
Kerecis, Gangverk og ORF-Líftækni,
hlutu einnig viðurkenningar fyrir vöxt í
veltu.
Sprotafyrirtækið Kaptio
jók veltu sína um 211%
STUTT