Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Umsögn til nefnda- sviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu sem tengist samgöngu- áætlun fyrir tímabilið 2011-2022 hefði bæjar- stjórn Fjarðabyggðar fyrir löngu átt að senda frá sér. Í þessari um- sögn var mikilvægi Neskaupstaðar rök- stutt gagnvart Fjarða- byggð þegar viður- kennt var að fyrrverandi vegtenging kom í veg fyrir uppbyggingu sveit- arfélagsins í eitt atvinnu-, þjónustu-, samgöngu- og skólasvæði. Árang- urslaust ítrekuðu vonsviknir heima- menn á Mið-Austurlandi að ástandið beggja vegna Oddskarðsganganna væri engum bjóðandi. Framkoma fyrrverandi þing- manna Norðausturkjördæmis, sem kusu að ögra Austfirðingum og vera frekar í vitorði með stuðnings- mönnum Vaðlaheiðarganga, var til háborinnar skammar. Allir þessir landsbyggðarþingmenn hefðu, ásamt bæjarfulltrúum nýja sveitar- félagsins og tals- mönnum Vegagerðar- innar, átt að svara því hvort það hefði verið verjandi að vitlaus staðsetning Fjórðungs- sjúkrahússins skyldi vera ákveðin í Nes- kaupstað aðeins með þarfir Norðfirðinga og sjómanna í huga en ekki þeirra sem búa sunnan Oddskarðs- ganganna, á suður- fjörðunum, norðan Fagradals og Hellis- heiðar eystri. Málflutningur fyrrver- andi bæjarstjórnar, sem áður lokaði augunum fyrir slysahættunni á gamla veginum milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, er hnefahögg í andlit heimamanna norðan Oddskarðs- ganganna sem ekki gátu sótt vinnu í álver Alcoa á Reyðarfirði án þess að stórslys yrði beggja vegna einbreiðu slysagildrunnar. Til að heimamenn sunnan Fá- skrúðsfjarðar fái betra aðgengi að stóra Fjórðungssjúkrahúsinu þarf tvenn göng inn í Stöðvarfjörð. Annars losna þeir aldrei við hættu- legustu kaflana á suðurfjörðunum. bílstjórar sjúkrabifreiða neyddust til að snúa við sunnan einbreiðu slysa- gildrunnar vegna illviðris og snjó- þyngsla í meira en 600 m hæð. Til að tryggja öryggi barnshafandi kvenna sem bílstjórar sjúkrabifreiða geta ekki flutt frá Egilsstöðum til Nes- kaupstaðar vegna blindbyls og snjó- þyngsla á Fagradal hefði líka átt að skoða möguleika á jarðgangagerð undir Eskifjarðarheiði áður en Norðfjarðargöng voru boðin út. Starfandi læknar við Fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaupstað hefðu fyrir löngu átt að svara því hvort þeim hefði verið sama ef þessir sjúkraflutningar, sem eru vonlausir við þessar aðstæður, hefðu kostað barnshafandi konur lífið í brekk- unum sunnan og norðan einbreiðu Oddskarðsganganna. Kæruleysi bæjarstjórnar Fjarða- byggðar og allra þingmanna Norð- austurkjördæmis sem láta sig þetta engu varða og kjósa frekar að vera í vitorði með fyrrverandi innanríkis- ráðherra er hnefahögg í andlit heimamanna. Enginn skilur hvaða gagn bæjarstjórn Fjarðabyggðar telur sig hafa af vel uppbyggðum heilsársvegi um Öxi þegar íbúar Mið-Austurlands geta ekki með nokkru móti treyst veginum á Fagradal nema þeir vilji taka á sig enn lengri krók og keyra í gegnum Fáskrúðsfjarðargöngin alla leið til Egilsstaða. Öllum ranghugmyndum um upp- byggðan Axarveg skal bæjarstjórn Fjarðabyggðar vísa norður og niður þegar bílstjórar sjúkrabifreiða sem finna fyrir því að vegirnir á Fjarðar- heiði og Fagradal eru engu betri en brekkurnar milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Með sjónvarpsvélum sviðsettu stuðningsmenn Axarvegar ranghugmyndir sínar til að ögra þeim sem samþykktu tillögu Arn- bjargar Sveinsdóttur í febrúar 1999 um að næstu jarðgöng yrðu milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Fjórum árum seinna opinberuðu þeir vanþekkingu sína á samgöngu- málum Austurlands undir því yfir- skini að öllum fjármunum hefði verið stolið frá Öxi að undirlagi Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráð- herra, sem tilkynnti óvænt réttmæta ákvörðun stjórnvalda um að flýta jarðgangagerðinni undir Almanna- skarð. Látum Fagradal strax víkja fyrir Mjóafjarðargöngum. Röng staðsetning Fjórðungssjúkrahússins Eftir Guðmund Karl Jónsson » Til að heimamenn sunnan Fáskrúðs- fjarðar fái betra aðgengi að stóra Fjórðungs- sjúkrahúsinu þarf tvenn göng inn í Stöðvarfjörð. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Engin skynsemi er í því að keyra frá Djúpavogi og Breiðdalsvík með barnshafandi konur um Kamba- skriðurnar, sem verða aldrei örugg- ar fyrir of mikilli veðurhæð, snjó- flóðum, aurskriðum og grjóthruni. Of mikil slysahætta á Fjarðarheiði, Fagradal og í brekkunum beggja vegna gömlu Oddskarðsganganna sem hefði getað kostað alltof mörg mannslíf, réttlætir ekki að keyrt sé með barnshafandi konur frá Seyðis- firði, Egilsstöðum, suðurfjörðunum og Hornafirði til Neskaupstaðar, ef öryggisbúnaður sjúkrabifreiða bilar fyrirvaralaust. Áður ítrekaði greinarhöfundur að fljótlegra og öruggara væri að senda þær frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með sjúkraflugvél sem staðsett er á Akureyrarflugvelli, í stað þess að leika sér með fleiri mannslíf þegar Meðferðarheimilið í Krýsuvík var byggt upp af hugsjónafólki fyrir meira en 30 ár- um. Með starfseminni í Krýsuvík hefur tug- um einstaklinga verið hjálpað til að lifa eðli- legu lífi án vímuefna. Þetta hefur tekist með langtímameðferð á friðsælum stað þar sem náttúran spilar stóran þátt með fegurð sinni. Það væri misráð- ið ef Alþingi hætti að styðja við starf Krýsuvíkur. Undanfarið hefur verið uppi umræða sem er starf- seminni í Krýsuvík ekki hagfelld. Stjórnendur hafa brugðist við tilmælum landlæknis eftir því sem fjárveitingar leyfa og enginn vafi er á að sumt mátti betur fara í starfsemi meðferð- arheimilisins. Þannig er á öllum heimilum. En eins og mál standa nú er mikilvægt að þeir sem halda um fjárveitingavaldið geri sér grein fyrir að það starf sem unnið er í Krýsuvík færist ekki sjálfkrafa í hendur annarra með- ferðarheimila. Krýsuvík hefur tekið á móti langt leiddum alkóhólistum og fíklum. Meðferð á staðnum er að lágmarki sex mánuðir en dæmi eru um að einstaklingar hafi dvalið í Krýsuvík í allt að eitt og hálft ár. Það eru margir fagaðilar sem koma að með- ferð hjá einum einstaklingi. Ráð- gjafar sjá um leiðsögn og dagleg samskipti og aðstoða skjólstæðinga við að læra að lifa án hugbreytandi efna. Kennarar frá Mennta- skólanum í Kópavogi koma og eru með kennslu tvisvar sinnum í viku yfir vetrartímann. Það hefur gífur- lega mikla þýðingu að einstakling- arnir geti byrjað nám í Krýsuvík og margir fara þaðan og mennta sig meira. Þeir sem hafa flosnað upp úr framhaldsnámi geta tekið upp þráð- inn þar sem frá var horfið og byrj- að að stunda sitt nám aftur og einn- ig eru dæmi um að fólk hafi byrjað í Háskóla, tekið námskeið þar og fengið leiðsögn hjá kennurum í Krýsuvík. Hingað kemur læknir einu sinni í viku og sinnir því sem þarf að sinna. Thelma Ásdísardóttir frá Drekaslóð kemur líka til okkar einu sinni í viku. Drekaslóð gefur sig út fyrir að vinna gegn ofbeldi og hjálpa þeim sem hafa orðið fyrir því. Og þá er ótalið allt það hug- sjónafólk sem kemur og býður upp á sína þekkingu á ýmsum sviðum tengdum heilbrigði og tólf spora vinnu. Samhliða meðferð vinna vist- menn létt störf við heimilishald og umönnun lítils háttar búpenings. Þar er horft til þess að getan er mismikil og verkefnin fundin eftir getu hvers og eins. Hugsjónaeldur frumkvöðla Krýsuvíkursamtakanna lifir enn meðal starfsmanna og fjölmargra velunnara heimilisins. Hver ein- staklingur úr hópi langt leiddra fíkla sem nær landi er samfélaginu dýrmætur og sigurinn er mikill. Að sama skapi er dýrkeypt fyrir allt samfélagið að horfa aðgerðarlítið á þá sem brjótast um og farast í fári vímuefnaneyslu. Gegn því böli vinn- ur Meðferðarheimilið í Krýsuvík og þarf nú sem fyrr á velvild Alþingis að halda. Tugir einstaklinga hafa fengið bata í Krýsuvík Eftir Kristbjörgu Steinunni Gísla- dóttur Kristbjörg Steinunn Gísladóttir »Meðferðarheimilið í Krýsuvík var byggt upp af hugsjónafólki fyrir meira en 30 árum og hafa tugir einstak- linga fengið hjálp til að lifa án vímuefna. Höfundur er forstöðukona Krýsu- víkurheimilisins. Vantar þig pípara? FINNA.is --- ALLT A EINUM STAD � HÓT E L R E K S T U R Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun að Hátúni 6a Hágæða rúmföt, handklæði og fallegar hönnunarvörur fyrir heimilið Eigum úrval af sængurvera settum Percale ofin – Micro bómul l, egypskri og indverskri bó mull Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.