Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018
✝ Hörður Felix-son, fyrrver-
andi skrifstofu-
stjóri, fæddist í
Reykjavík 25. októ-
ber 1931. Hann lést
á dvalarheimilinu
Skjóli í Reykjavík
29. ágúst 2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Ágústa
Bjarnadóttir, f. 2.8.
1900, d. 3.10. 1978,
kennari og húsmóðir, og Felix
Pétursson, f. 7.2. 1900, d. 3.9.
1987, bókari í Reykjavík.
Bræður Harðar eru Bjarni
Felixson, f. 27.12. 1936, og
Gunnar Felixson, f. 14.3. 1940.
Hinn 22. desember 1956
kvæntist Hörður Kolbrúnu
Skaftadóttur, f. 16.1. 1937. For-
eldrar hennar voru Sigurbjörg
Sigurðardóttir, f. 2.2. 1917, d.
4.4. 1992, og Skafti Þórarinsson,
f. 1.7. 1908, d. 13.6. 1936.
Börn Harðar og Kolbrúnar
eru: 1) Skafti, f. 10.9. 1956,
kvæntur Söru Magnúsdóttur, f.
23.6. 1956, þeirra börn eru Kol-
brún Ósk, Hanna Kristín og
Hjalti Þór. 2) Ágústa, f. 25.10.
1960, gift Eyjólfi Sigurðssyni,
þeirra börn eru Sigrún og Sig-
íþróttir og reyndist farsæll leik-
maður bæði í handbolta og fót-
bolta með KR. Hann varð Ís-
landsmeistari með KR í hand-
bolta árið 1958, auk þess að
spila fyrir Íslands hönd um tíma
sem fyrirliði landsliðsins. Á 18
ára farsælum ferli með meist-
araflokki KR í fótbolta varð
Hörður margsinnis Íslands- og
bikarmeistari, auk þess sem
hann lék 11 landsleiki fyrir Ís-
land. Síðasti leikurinn var sögu-
legur fyrir þær sakir að þann
leik léku þeir allir bræðurnir
Hörður, Bjarni og Gunnar gegn
Englendingum árið 1963 í und-
an-keppni Ólympíuleikanna í
Tókýó. Þetta var í fyrsta sinn í
knatt-spyrnusögunni sem þrír
bræður léku saman í landsleik
og var það skráð í heimsmeta-
bók Guinness.
KR naut krafta Harðar í ára-
tugi og var hann sæmdur gull-
merki fé-lagsins fyrir störf sín á
þeim vett-vangi. Þá var hann
sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ árið
2004 fyrir frábær störf. Auk
þess gegndi hann trúnaðarstörf-
um fyrir Sjálfstæðis-flokkinn,
sat lengi í kjörstjórn á Seltjarn-
arnesi og sinnti störfum fyrir
fleiri samtök og félög.
Útför Harðar fer fram frá
Neskirkju í dag, 5. september
2018, klukkan 15.
urður. 3) Hörður
Felix, f. 3.7. 1970,
kvæntur Guðrúnu
Valdimarsdóttur,
þeirra börn eru
Daníel, Mikael og
Kristel. Hörður og
Kolbrún eiga sjö
barnabarnabörn.
Hörður ólst upp
hjá foreldrum sín-
um á Bræðraborg-
arstíg 4 í Reykja-
vík og bjó þar ásamt bræðrum
sínum allt þar til hann hóf bú-
skap með Kolbrúnu. Þau Kol-
brún bjuggu fyrst á Birkimel
10, en síðar í Árbæjarhverfi
(þar sem Hörður tók m.a. þátt í
stofnun Fylkis), en loks lengst
af á Seltjarnarnesi, eða frá
árinu 1974.
Hörður greindist með
Alzheimer fyrir sex árum og bjó
á dvalarheimilinu Skjóli síðustu
tvö ár.
Hörður var stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík og
lauk prófum í viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands. Hann starfaði
alla tíð í Tryggingamiðstöðinni,
frá 1959 til 1999, lengst af sem
skrifstofu-stjóri.
Hann byrjaði ungur að stunda
Í dag kveð ég Hörð bróður eftir
nána samfylgd í gegnum allt mitt
líf. Við bræður Hörður, Bjarni og
ég ólumst upp í foreldrahúsum í
lítilli íbúð í vesturbæ Reykjavíkur,
nánar tiltekið á Bræðraborgarstíg
4. Allnokkur aldursmunur var á
milli okkar Harðar, eða átta og
hálft ár, þannig að þegar ég man
fyrst eftir Herði var hann orðinn
hálffullorðinn maður sem geislaði
af og þar að auki stórefnilegur
íþróttamaður.
Hörður byrjaði að spila í
meistaraflokki KR 1949, Bjarni
árið 1956 og ég árið 1960. Við
bræðurnir náðum að spila allir
saman í meistaraflokki í sex ár.
Þetta voru sigursæl ár fyrir KR
og unnum við saman marga Ís-
lands- og bikarmeistaratitla.
Hörður var frábær knattspyrnu-
maður, líkamlega sterkur, spark-
viss og afbragðs skallamaður.
Lengst af lék Hörður í miðju
varnarinnar og stjórnaði henni af
miklu öryggi enda var leikskiln-
ingur hans á knattspyrnunni ein-
staklega góður. Hörður var gegn-
heill KR-ingur og þótti afar vænt
um sitt gamla góða KR.
Í ársbyrjun 1959 hóf Hörður
störf hjá Tryggingamiðstöðinni
,sem þá var með örfáa starfsmenn
undir stjórn Gísla Ólafsonar. Ég
hóf störf hjá TM einu og hálfu ári
síðar og unnum við saman hjá TM
allt þar til Hörður fór á eftirlaun í
ársbyrjun 1999 eftir 40 ára starf.
Hörður var lengst af skrifstofu-
stjóri félagsins auk þess að sinna
almennum vátryggingastörfum.
Engum vafa er undirorpið að
Hörður átti stóran þátt í vel-
gengni TM með störfum sínum.
Margt ungt fólk réðst til starfa
hjá TM sem var yfirleitt fyrsti
vinnustaður þess að loknu skóla-
námi og hafði Hörður mikil áhrif á
það. Hörður skóp strax í upphafi
þann starfsanda sem einkenndi
TM og kom því inn hjá hinu nýja
starfsfólki að í TM mætti fólk á
réttum tíma til vinnu, væri snyrti-
legt til fara og gengi vel um skrif-
stofuna. Í fyrstu fannst sumum
Hörður full smámunasamur og
gamaldags í viðhorfum sínum, en
smátt og smátt kunni þetta unga
fólk að meta stjórnunarhætti hans
betur og betur því staðreyndin er
sú að ungt fólk kann að meta aga
ef honum er beitt af mildi og
stjórnandinn hagar sér í samræmi
við boðun sína og þannig var
Hörður. Hann vísaði ekki bara
veginn heldur fór eftir honum
sjálfur, þótt það gæti gerst hjá
honum eins og öðrum að það mis-
tækist einstaka sinnum. Einu
sinni þegar Hörður mætti of seint
einn morguninn gekk einn starfs-
maðurinn inn á skrifstofu Harðar
og benti honum á armbandsúr sitt
og sagði við Hörð í umvöndunar-
tón „Hörður í TM, mætum við á
réttum tíma“. Þá var Herði
skemmt. Hörður var heilsteyptur
og vandaður maður sem reyndist
TM og starfsfólki þess ómetanleg-
ur. Hann hafði þann góða hæfi-
leika að kunna að hlusta á fólk og
veit ég að margir leituðu ráða hjá
honum þegar vandi steðjaði að
eða fólk vissi ekki hvernig taka
ætti á málum og það á ekki síst við
þann sem þessar línur skrifar.
Hörður kveður nú að loknu
góðu og gæfuríku lífi, en hans
mesta gæfa var að kynnast og
eignast frábæra konu, hana Kol-
brúnu. Kolbrún og Hörður voru
glæsileg hjón svo tekið var eftir og
var Kolbrún stoð hans og stytta
alla tíð.
Gunnar bróðir.
Ég elska þig, stormur, sem geisar um
grund
og gleðiþyt vekur í blaðsterkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir um leið og þú þýt-
ur.
Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
og neistann upp blæs þú og bálar upp
loga
og bryddir með glitskrúði úthöf og
voga.
Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
og birtandi, andhreinn um jörðina fer;
þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
og lífsanda starfandi hvarvetna vekur.
Og þegar þú sigrandı́ um foldina fer,
þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig, kraftur, sem öldurnar
reisir,
ég elska þig, máttur, sem þokuna leysir.
Ég elska þig, elska þig, eilífa stríð,
með ólgandi blóði þér söng minn ég
býð.
Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður;
hugur minn fylgir þér, djarfur og glaður.
(Hannes Hafstein)
Við kynntumst Herði og Kol-
brúnu, konu hans, er börnin okkar
Sara og Skafti felldu hugi saman.
Vináttuböndin bundust fast.
Tímans tönn tifar hratt, vinir
kveðja, harpan hljóðnar. Rúmlega
40 ára samleið er lokið. Ljúft er að
minnast stundanna er við áttum
saman með börnunum okkar,
barnabörnum og barnabarna-
börnum og lífið var gott. Oft
minntist Hörður þess, þegar hann
fyrst sá Kolbrúnu sem seinna
varð konan hans. Hann var á
gangi í miðbænum með kunningja
sínum, hnippti í hann og sagði
„Sérðu þessa, maður.“ Þar með
var hann fallinn fyrir fallegu kon-
unni, sem seinna varð eiginkona
hans. Og aðdáunin leyndi sér ekki
þó árin færðust yfir.
Það eru forréttindi að hafa átt
samleið um 40 ára æviskeið með
þeim Kolbrúnu og Herði og fjöl-
skyldu okkar saman. Slíkt ber að
þakka af alhug.
Bros Harðar var fallegt, ein-
lægt og bjart og þannig tók hann á
móti okkur fagnandi þó þrekið
færi þverrandi. Slík kveðja er ljúf
minning.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
(Einar Benediktsson)
Elsku Kolbrún og fjölskylda.
Hjatans samúðarkveðjur.
Með þakklæti,
Hanna Elíasdóttir og
Ingvar Sveinsson.
Góður maður er genginn.
Þann 29. ágúst síðastliðinn lést
öðlingurinn Hörður Felixson.
Hörð hef ég þekkt frá unga
aldri, fyrst sem flottan íþrótta-
mann í KR, í fremstu röð bæði í
fót- og handbolta, síðar sem hús-
vörð í KR-heimilinu í aukavinnu
og þá leyfði hann okkur strákun-
um oft að leika í salnum þegar
dagskrá var lokið, þá vorum við
samstarfsmenn í TM í 30 ár.
Skemmst er frá því að segja að
traustari og vænni manni hef ég
varla kynnst á lífsleiðinni og er
þakklátur fyrir að hafa átt hann
að vini öll þessi ár.
Á yngri árum var Hörður einn
af bestu íþróttamönnum landsins,
landsliðsmaður í fót- og hand-
bolta. Hann var lykilmaður í KR,
margfaldur Íslands- og bikar-
meistari í fótboltanum og einnig
Íslandsmeistari í handboltanum í
eina skiptið sem KR vann þann
titil.
Í TM gegndi hann lengst af
stöðu skrifstofustjóra og var
reyndar fyrsti starfsmaður fé-
lagsins að undanskildum Gísla
Ólafssyni sem var þar forstjóri.
Fljótlega bættist Gunnar bróðir
hans í hópinn og lögðu þeir fé-
lagar grunninn að vexti og vel-
gengni félagsins, sem innan fárra
ára varð eitt öflugasta trygginga-
félag landsins.
Í starfi skrifstofustjóra reyndi
mikið á mannleg samskipti og
lagni við að leiðbeina og ná því
besta út úr starfsfólkinu og þar
var Hörður svo sannarlega rétti
maðurinn. Aldrei heyrði ég hann
skamma nokkurn mann og ef eitt-
hvað þurfti athugunar við kom
hann því á framfæri með ljúf-
mannlegum hætti og allir voru
sáttir.
Hann naut mikillar virðingar í
tryggingageiranum og mátti einu
gilda hvort um var að ræða sam-
starfsmenn í TM eða keppinaut-
ana, enda treystu allir Herði Fel.
Það sem hann sagði stóð eins og
stafur á bók.
Þær voru margar stundirnar
þegar við sátum og ræddum sam-
eiginlegt áhugamál okkar KR og
eftir að Hörður hætti að keppa
starfaði hann með ýmsum hætti
fyrir félagið, sat í ýmsum stjórn-
um og nefndum og var alltaf boð-
inn og búinn að taka til hendinni ef
þess var óskað.
Hörður var mikill sögumaður
og gaman var að hlusta á hann
rifja upp ýmis ævintýri frá
íþróttaferlinum, enda hafði hann
frá mörgu að segja, svo sem
keppnisferðum innanlands og ut-
an með KR og landsliðinu, minn-
isstæðum leikjum sem hann hafði
tekið þátt í, liðsfélögunum í KR og
einnig keppinautum á vellinum,
sem hann bar alltaf virðingu fyrir
og talaði um af hlýju, enda voru
þeir margir góðir vinir hans og
komu oft í heimsókn til hans í TM.
Hörður var gæfumaður í einka-
lífinu, átti yndislega konu, mann-
vænleg börn og fjölda afkomenda,
sem nú kveðja elskulegan eigin-
mann, föður, afa og langafa. Sama
á við um bræður hans Bjarna og
Gunnar, enda vinátta þeirra og
samheldni öllum ljós, einlæg og án
skilyrða og eru þeim öllum sendar
innilegar samúðarkveðjur, með
bæn um styrk á erfiðri stund.
Lengst af var Hörður heilsu-
góður, en síðustu árin voru þó vini
mínum erfið þegar alzheimer-
sjúkdómurinn fór að herða tökin.
Á kveðjustund hrannast minn-
ingarnar upp og eru þær allar
góðar og forsjóninni þakkað fyrir
að hafa fengið að vera honum
samferða um stund.
Blessuð sé minning Harðar
Felixsonar.
Guðmundur Pétursson.
Gættu þess vin, yfir moldunum mínum,
að maðurinn ræður ei næturstað
sínum.
Og þegar þú hryggur úr garðinum geng-
ur
ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei leng-
ur.
En þegar þú strýkur burt tregafull tárin
þá teldu í huganum yndisleg árin
sem kallinu gegndi ég kátur og glaður,
það kæti þig líka, minn
samferðamaður.
(James McNulty)
Fullur þakklætis fyrir gengnar
stundir mun ég leyfa hlýjum
minningum að græða sárin.
Kynni okkar hófust fyrir
nokkrum áratugum og höfum við
fetað veginn saman, sem vinir og
AA-félagar. Þannig safnaðist í
fjársjóð sem eigi fyrnist.
Ég minnist allra kvöldanna á
þínu fallega heimili við ljóðalestur
og tónlist. Ég minnist allra AA-
fundanna okkar saman.
Sorg og eftirsjá hreiðra um sig
í brjóstinu svo undan svíður en
fullvissan um að hann lifir þar sem
ljósið ekki deyr léttir sorgina.
Við hittumst í landinu
þangað sem fuglasöngurinn fer
þegar hann hljóðnar.
(Jökull Jakobsson)
Hendrik (Binni).
Kveðja frá Knattspyrnu-
félagi Reykjavíkur
Í dag kveðjum við góðan KR-
ing, Hörð Felixson. Hörður var
einn mesti afreksmaður KR fyrr
og síðar. Glæsimenni innan vallar
sem utan. Hörður átti glæstan
íþróttaferil og það eru fáir ís-
lenskir knattspyrnumenn sem
eiga jafnglæstan feril með liði sínu
og Hörður. Hann var einn af mátt-
arstólpunum í Gullaldarliði KR,
hann lék með KR alls 17 keppn-
istímabil, samtals 249 leiki þar
sem hann skoraði 25 mörk. Ís-
landsmeistari varð hann sjö sinn-
um og bikarmeistari fimm sinn-
um. Hörður skoraði fyrstu þrennu
KR-inga í 7-0 sigri liðsins á Vík-
ingi árið 1955 og tók það hann að-
eins sjö mínútur að skora þessi
þrjú mörk. Hann var fyrirliði KR í
handbolta og skytta liðsins þegar
liðið varð Íslandsmeistari árið
1958. Hörður var einnig Íslands-
meistari í handknattleik utanhúss
árið 1952. Hann var landsliðsmað-
ur í knattspyrnu og handbolta.
Hörður var í liði KR þegar liðið
varð Íslandsmeistari árið 1959
með fullu húsi stiga. Nokkuð sem
aldrei hefur verið leikið eftir hér á
landi. Markatalan 41-6 í tíu leikj-
um. Þetta var í fyrsta skipti sem
leikin var tvöföld umferð á Ís-
landsmótinu í knattspyrnu hér á
landi. Hann varð tvöfaldur meist-
ari, Íslands- og bikarmeistari
1961 og 1963 með bræðum sínum
Gunnari og Bjarna og árið 1963
voru þeir bræður valdir í lands-
liðið. Hörður tók þátt í fyrsta Evr-
ópuleik KR-inga gegn Liverpool
árið 1964.
Hörður var ötull félagsmaður
og studdi alltaf við bakið á sínum
gamla félagi. Hann var formaður
stjórnar knattspyrnudeildar á ár-
unum 1953- 1954. Einn af drif-
kröftunum í stofnun „Bakvarða
KR“ sem studdu vel við bakið á
starfinu í knattspyrnudeildinni og
var hann formaður „Bakvarða
KR“ um skeið. Hörður var sæmd-
ur gullmerki KR fyrir störf sín í
þágu félagsins.
Þegar ég hóf æfingar og keppni
með KR í byrjun áttunda áratug-
arins voru nokkur ár liðin frá því
að leikmenn Gullaldarliðs KR
höfðu lagt skóna á hilluna. Við
ungu KR-ingarnir vissum af þess-
um miklu íþróttaköppum og bár-
um mikla virðingu fyrir þeim,
Hörður var vitaskuld einn þeirra.
Eftir að ég tók við formennsku í
KR hitti ég Hörð oft í KR-heim-
ilinu. Hann var duglegur að mæta
á laugardagsmorgnum í get-
raunakaffi með bræðrum sínum
Gunnari og Bjarna, jafnvel þótt
heilsu hans hrakaði. Hörður hélt
alltaf tryggð við félagið sitt.
Við KR-ingar minnumst Harð-
ar með miklu þakklæti fyrir allt
sem hann gerði fyrir gamla góða
KR og þökkum honum samfylgd-
ina í gegnum tíðina. KR-ingar
senda eiginkonu hans Kolbrúnu,
börnum, öðrum ættingjum og að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Gylfi Dalmann Að-
alsteinsson, formaður KR.
Margt kemur upp í hugann um
Hörð frænda nú þegar hann er
fallinn frá. Hann varð mér mikill
mentor þann tíma er ég vann með
honum í TM í um 15 ár. Ég byrjaði
að vinna í tölvudeildinni 1984 sem
forritari og eitt af fyrstu tölvu-
kerfunum sem ég skrifaði tengd-
ist vátryggingum sem Hörður sá
um. Við sátum því oft saman og
Hörður Felixson
Bróðir minn,
HALLGRÍMUR SIGURÐUR SVEINSSON,
er látinn.
Kveðjuathöfn verður frá Fossvogskirkju
föstudaginn 7. september klukkan 13.
Björg Sveinsdóttir
Látinn er í Hornafirði
ÞORLEIFUR HJALTASON,
fyrrverandi hreppstjóri og bóndi
í Hólum.
Jarðarförin fer fram frá Bjarnaneskirkju
laugardaginn 8. september klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Aðstandendur
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts og útfarar
ÞÓRÖNNU KRISTÍNAR
HJÁLMARSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks.
Þórður Steinar Lárusson Þorbjörg Bergsdóttir
Einar Jóhannes Lárusson Sólveig Birna Gísladóttir
Steinunn Daníela Lárusd. Sigrjón V. Leifsson
barnabörn og barnabarnabörn