Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 24
✝ Ólafur Arn-björnsson fædd- ist í Keflavík 22. febrúar 1957. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 27. ágúst 2018. Foreldrar hans voru hjónin Arn- björn Hans Ólafsson, f. 1930 í Keflavík, og Jóna Sólbjört Ólafs- dóttir, f. 1932 í Grindavík, d. 2018. Systkini Ólafs eru Inga Þóra, f. 1951, d. 1997, Lára Hulda, f. 1954, Anna Jóna, f. 1956, Gylfi, f. 1958, Arnbjörn Hannes, f. 1965, og Ellert, f. 1967. Ólafur kvæntist Bergþóru Bertu Guðjónsdóttur, f. 1955. Þau skildu. Eignuðust þau tvo syni, dr. Guðjón Ólafsson, f. 1983, maki Henný Jóna Adólfsdóttir, f. 1983, og Hörð Ólafsson, f. 1985, maki Diljá Valsdóttir, f. 1985. Ólafur kvæntist Halldóru Júlíusdóttur, f. 1955. Stjúpbörn Ólafs eru fjögur. Anita Hafdís Björnsdóttir, f. 1971, Telma Dögg Guðlaugsdóttir, f. 1980, Heiða Birna Guðlaugsdóttir, f. 1983, og Íris Ósk Guðlaugsdóttir, f. 1992. Barnabörn Ólafs eru sjö. Ólafur ólst upp í Keflavík og bjó þar stærstan hluta ævi sinnar. Hann út- skrifaðist úr Stýrimannaskól- anum árið 1977 og sigldi sem skipstjóri og stýrimaður á ýmsum skipum. Ólafur rak um stund frystihús í Keflavík og starfaði um nokkurra ára skeið í Namibíu og Suður-Afríku sem skipstjóri. Þá var hann um árabil starfs- maður J. Hinriksson og Hampiðj- unnar og síðustu árin sinnti hann eigin rekstri í sjávarútvegi. Útför Ólafs fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 5. september 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku yndislegi Óli okkar, nú ertu loks frjáls og laus við allar þjáningar. Missirinn er mikill og hefur stórt skarð myndast í hjört- um okkar. Tæp tuttugu ár eru lið- in síðan þú komst inn í líf okkar og þið mamma hófuð samband ykk- ar. Þvílík lukka sem það var og verðum við ævinlega þakklát fyrir að þið hafið fundið hvort annað. Við duttum ekki aðeins í lukku- pottinn með stjúpföður heldur fengum við einnig þrjú dásamleg stjúpsystkini. Það var ávallt skemmtilegt og mikil gleði þegar við hittumst öll og alltaf lítið mál fyrir ykkur mömmu að slá upp 20 manna veislu. Þú hefur verið okkur frá- bær stjúpfaðir, tengdafaðir og afi – mikið eigum við eftir að sakna þín. Maðurinn sem eldaði eins og listakokkur, bakaði einhverjar bestu kræsingar sem maður hefur smakkað, sá allra handlagnasti og með grænustu fingur veraldar. Þið mamma, sem þú kallaðir alltaf drottninguna, áttuð svo fallegt samband, jafningjar og ástin mikil á milli ykkar. Minningarnar eru margar góðar og munum við varð- veita þær vel. Við munum sjá til þess að afabörnin, sem þér þótti svo vænt um, muni hvað afi Óli var dásamlegur og auðvitað að Man- chester United sé best. Hvíldu í friði elsku besti, minning þín lifir í hjörtum okkar. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín, Telma, Heiða, Íris, tengda- synir og afabörnin. Það brast á með roki og rign- ingu þegar hann Óli vinur minn og svili kvaddi þessa jarðvist 27. ágúst síðastliðinn, aðeins viku eft- ir að móðir hans var jarðsett. Það var aldrei lognmolla kring- um hann Óla og hló hann jafnan manna hæst þegar við vorum sam- an. Við stærðum okkur jafnan af því hvað þau systkinin, Pétur og Dóra, hefðu verið heppin að ná í okkur tvö. Það sem ég mat mest við vin minn var að alltaf gat ég leitað til hans á erfiðum tíma í lífi mínu. Við hin fjögur fræknu ferð- uðumst mikið saman og aldrei bar skugga á vináttu okkar. Maður sagði stundum við Óla að erfitt væri að komast að í samræðum þegar hann var nærri, hann hafði skoðanir á öllu. Svo brast tilveran þegar Óli greindist með krabbamein. Lengi vel héldum við að þetta myndi nú hafast og þvílíkt æðruleysi sem hann sýndi. Einu sinni sem oftar þegar ég sat hjá honum spurði ég hann hvernig honum litist á þennan vágest sem herjaði á hann og svarið var: svona er þetta bara Stína mín, svona er þetta. Ég hafði á orði að ef ég fengi einhvern sjúkdóm yrði hann Óli fyrirmyndin mín. Oft sát- um við vinirnir og horfðum út um gluggann, búin að átta okkur á því að góðir vinir geta þagað saman og liðið vel, því eins og Óli sagði er það samveran sem gildir. Að baki hverjum góðum manni stendur góður maki. Ég hef alla tíð vitað hvaða mann hún Dóra mín hefur að geyma, enda hef ég sjálf verið hluti af fjölskyldunni í tæp 38 ár. Í veikindum Óla hefur hún staðið eins og klettur þétt við bakið á manni sínum, vakin og sofin yfir velferð hans. Eiginkona, hjúkrun- arkona, sálusorgari og alveg ein- stakur vinur. Já, maður er þakklátur fyrir þau bæði. Með þessum orðum vil ég þakka honum Óla mínum fyrir vináttuna og allar stundirnar okkar saman og veit að nú er hann laus úr viðjum veikinda og líður vel. Elsku Dóra mín og fjölskylda, missir ykkar er mikill, ég bið Guð að vernda ykkur og blessa. Við Óla minn vil ég að lokum segja takk fyrir allt og allt. Þinn vinur, Kristín (Stína). Nú kveðjum við góðan vin, Óla hennar Dóru. Óli var nokkuð hrjúfur við fyrstu kynni en við fundum strax að hann var maður að okkar skapi. Óli hafði skoðanir á málefnum dagsins og má segja að blár hafi ekki verið uppáhalds- litur hans. Það var alltaf gaman þegar við hittumst. Eitt áhugamál áttum við vinirnir í sameiningu – að borða góðan mat. Óli var í meira lagi góður kokkur og höfðingi heim að sækja. Dóra mín, eins og Óli kall- aði hana alltaf, skemmdi svo sann- arlega ekki fyrir á slíkum góm- sætum vinafundum. Aðalsmerki hans var sú trausta vinátta sem við fundum fyrir og kærleikurinn sem hann bjó yfir gagnvart fjölskyldunni sinni. Samheldni þeirra hjóna var fal- leg og erum við þakklát fyrir þá vináttu sem við höfum deilt. Við sendum fjölskyldunni okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs vinar. Jóhanna Kristín (Hanna Stína) og Sigurður (Siggi). Ólafur Arnbjörnsson 24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,amma og langamma, AÐALHEIÐUR HELGADÓTTIR, Hjaltabakka 8, lést á Grund fimmtudaginn 23. ágúst. Útför hennar fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 30. ágúst. Starfsfólki á deild V-3 á Grund eru færðar alúðarþakkir fyrir góða umönnun. Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Harpa Jósefsdóttir Amin Vigfús Amin Torfi Karl Antonsson Díana Jósefsdóttir Úlfur Eggertsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra, SÓLRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR listamaður og kennari, lést fimmtudaginn 30. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. september klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið styrktarsjóð. Börn, barnabörn eiginmaður, systkini og nánustu vinir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BERGSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á Landspítalanum 25. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnar Sveinbjörn Jónsson Sara Gunnarsdóttir Þorkell Jóhannsson Bergur Gunnarsson Hrönn Arnarsdóttir Ólöf Gunnarsdóttir Ragnar Þór Jörgensen Auður Gunnarsdóttir Gunnar Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs sonar okkar, stjúpsonar, bróður og barnabarns, BIRKIS FANNARS HARÐARSONAR. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans fyrir frábæra umönnun, umhyggju og hlýju. Hörður Guðjónsson María B. Johnson Jón Axel Ólafsson Jökull Freyr Harðarson Hildigunnur Johnson Rafn F. Johnson Ástkær bróðir okkar og mágur, ELÍAS BERGMANNSSON Fögruhlíð, Skálatúni, lést fimmtudaginn 30. ágúst á Landspítalanum Í Fossvogi. Útför fer fram frá Lágafellskirkju föstudaginn 7. september klukkan 14. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Skálatún í Mosfellsbæ. Soffía E. Bergmannsdóttir Einar Jónsson Ólöf S. Bergmannsdóttir Guðjón Kr. Harðarson og aðrir aðstandendur Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS TÓMASSON, Engjahlíð 3b, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi sunnudaginn 26. ágúst. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 7. september klukkan 13. Sigríður Sigursteinsdóttir Steinunn Jóhanna Sigfúsd. Björgvin Sigmar Stefánsson Sigurður Tómas Sigfússon Sigfús Ægir Sigfússon Guðbjörg Jóna Sævarsdóttir Þórir Sigfússon María Unnur Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA PÁLSDÓTTIR, Sunnubraut 26, Kópavogi, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 30. ágúst, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 7. september klukkan 13. Arnar Arinbjarnar Arnfríður Tómasdóttir Halldór Arinbjarnar Karin Palsson Guðrún Arinbjarnar barnabörn og barnabarnabörn ✝ GuðmundurBogi Breið- fjörð fæddist í Reykjavík 22. nóvember 1938. Hann lést 22. ágúst 2018. Foreldrar hans voru Agnar G. Breiðfjörð, f. 14. október 1910, d. 19. júní 1983, og Ólafía Bogadóttir Breiðfjörð, f. 9. nóvember 1914, d. 9. október 1998. Bræður Guðmundar eru: 1) Eiður, f. 17. ágúst 1933. 2) Leifur, f. 24. júní 1945. 3) Gunnar, f. 8. janúar 1947. Guðmundur kvæntist Berthu Ragnheiði Langedal 11. apríl 1990. Börn þeirra eru Agnar Knut, f. 12. september 1988, og Kristjana Ólafía, f. 20. júní 1990. Guðmundur ólst upp við Hringbraut til níu ára aldurs en þá fluttist fjölskyldan á Lauga- teig. Hann gekk í Laugarnes- skóla og tók svo landspróf í Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1956. Hann hóf nám hjá föður sínum í Breiðfjörðs blikk- smiðju og stundaði jafnframt nám í Iðnskólanum 1957- 1960. Árin 1962- 1963 stundaði Guð- mundur iðn sína í Esslingen í Þýska- landi. Eftir heim- komu starfaði hann í Breið- fjörðs blikksmiðju þar sem hann var meðeigandi frá 1969. Guðmundur ferðaðist mikið bæði innan- og utanlands. Hann fórmeð konu sinni og börnum til eyjunnar Fedje á vestur- strönd Noregs þar sem Bertha er fædd og uppalin. Guðmundur var vinnusamur og hafði alltaf eitthvað fyrir stafni heima fyrir allt þar til Alzheimers-sjúkdómurinn tók völdin. Útför Guðmundar fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 5. september 2018, klukkan 13. Guðmundur Bogi Breiðfjörð frændi minn hefur nú kvatt þenn- an heim. Við vorum systrasynir á líku reki, hann aðeins eldri. Með honum var gott að vera, hann var skemmtilegur og drengur góður. Flestar minningar mínar um hann tengjast bernsku og æskuárum. Hann bar nöfn afa sinna beggja, Guðmundar Breiðfjörð og Boga Benediktssonar. Á þessum árum var mest samband með móður- fólki okkar í jólaboðum og barna- afmælum. Þegar Bogi afi okkar lést árið 1947 voru barnabörn þeirra ömmu, Elínar Sigurðar- dóttur, tólf talsins en hefur fjölgað síðan. Eins og gengur minnkaði samgangur þessa fólks með árun- um. Svo var það á árinu 2006 að við vildum halda ættarmót og hóf- um undirbúning þess með fundi heima hjá Guðmundi Boga að Laugateigi 27, æskuheimili hans, en hann var þar orðinn húsráð- andi. Þar skipulögðum við sam- komu allra afkomenda afa okkar og ömmu, ásamt mökum. Úr þessu varð hið ágætasta ættar- mót, sem við héldum í Skíðaskál- anum í Hveradölum og minnt- umst þar afa okkar og ömmu og þeirra stóra heimilis að Öldugötu 9. Guðmundur Bogi var blikk- smíðameistari og rak ásamt Eiði bróður sínum fyrirtæki föður þeirra, Breiðfjörðsblikksmiðju, að honum látnum. Guðmundur Bogi var hagleiksmaður hinn mesti og gat sér á þeim vettvangi afar gott orðspor. Allir sem hann þekktu töluðu um hann með hlýju og virð- ingu. Með þessum fáu og fátæklegu orðum kveð ég bernskuvin minn og frænda og votta nánustu að- standendum hans mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Guðmund- ar Boga Breiðfjörð. Kjartan Sigurjónsson. Þann 30. ágúst árið 1879 fædd- ist lítill drengur í Hrappsey á Breiðafirði og þann 14. júlí árið eftir lítil stúlka að Hörgslandi á Síðu. Þetta voru amma og afi okk- ar Guðmundar Boga, einkar glæsilegt par en umfram allt ynd- islegar manneskjur. Guðmundur Bogi bar nöfn afa sinna beggja, var mikill uppá- haldsfrændi og kær vinur. Hann passaði alltaf upp á litlu frænku og vildi allt fyrir hana gera. Það er því margt sem nú þarf að þakka og hans er sárt saknað. Hann gerðist blikksmiður og fetaði þar í fótspor afa síns og föð- ur. Starfaði við blikksmiðju Breið- fjörðs sem afi stofnaði, tók síðar við rekstrinum og var þar allan sinn starfsferil sem var honum til mikils sóma. Guðmundur Bogi var einstakur maður, ljúfur, glaðlyndur og skemmtilegur en umfram allt ávallt reiðubúinn að rétta öðrum hjálparhönd. Ljúf lund hans og umhyggjusemi birtist ekki síst í því hversu vel hann hugsaði um foreldra sína, þau Agnar og Ólaf- íu, á þeirra eldri árum. Þegar Agnar féll frá studdi Guðmundur Bogi móður sína af einstakri elskusemi. Stærsta hamingjan í lífi frænda míns var hún Berta, eiginkona hans, og börnin þeirra tvö þau Kristjana Ólafía og Agnar Knud. Berta er einstök manneskja með fallegt hjartalag sem leyndi sér ekki á þeirra ástríka heimili að Laugateigi 27 í Reykjavík. Guð- mundur Bogi var alinn upp í þessu húsi og þar bjuggu þau saman alla sína gæfuríku tíð. En nú kveðjum við góðan dreng og þökkum af öllu hjarta fyrir allt, sérstaklega það þegar hann bjargaði litlu frænku frá því að steypast í sýrukerið í smiðjunni forðum daga. Ég læt hér staðar numið, þó svo að frá mörgu sé að segja og margar fallegar minning- ar að ylja sér við, og kveð minn góða frænda með þakklæti og söknuð í hjarta. Ég, synir mínir og Guðmundur Bogi Breiðfjörð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.