Morgunblaðið - 05.09.2018, Page 29

Morgunblaðið - 05.09.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eitthvað vill ekki ganga upp hjá þér og þú kynokar þér við því að leita ástæðu þess. Innst inni veist þú svörin við þeim spurningum sem herja á þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert kraftmikil/l og kemst yfir allar hindranir sem á vegi þínum verða. Leggðu þitt af mörkum til að bæta umhverfi þitt og fáðu vini þína til liðs við þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sannleikurinn er sagna bestur og það skaltu hafa í huga allavega gagnvart þín- um nánustu. Einhver leitar eftir leiðsögn þinni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér býðst tækifæri til að fá útrás fyrir sköpunarhæfileika þína og skalt nýta þér það til fulls. Leggðu hart að þér framan af degi og taktu það svo rólega í eftirmiðdaginn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú dugar ekkert annað en setja saman tossalista, vinna eitt verk af öðru og strika yfir jafnóðum. Þú ert hvorki betri né verri en þú vilt vera og átt því að horfast í augu við sjálfan þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er svo sem gott og blessað að telja sig geta lesið í hug annarra. Gættu þess að tala skýrt svo að aðrir þurfi ekki að velkjast í vafa um meiningu þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er líklegt að einhvers konar ruglingur komi upp í samskiptum þínum við fjölskyldu- meðlimi í dag. Stoppaðu við, brettu upp erm- arnar og taktu á þeim málum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur báða fæturna á jörðinni og vilt framkvæma hlutina að vel hugsuðu máli. Orð geta hitt í mark svo farðu þér hægt og mundu að aðrir eiga líka rétt á sínum skoð- unum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt að setjast niður og gera þér grein fyrir því, hvað það er sem þú raunveru- lega sækist eftir í lífinu. Vonir þínar og fram- tíðardraumar skipta þig miklu máli. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að horfast í augu við vandamál liðins tíma. Sýndu stórt hjarta þitt og siðfágun og taktu því sem að höndum ber með kímnina að vopni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hlustaðu vel á þinn innri mann, þegar þú veltir fyrir þér verkefnum dagsins. Ef þú gerir það ekki þá fyllistu á endanum var- anlegum starfsleiða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki værðina ná svo sterkum tök- um á þér að þú hafir ekki dug í þér til að vinna þau verk sem þarf að vinna. Aðrir þarfnast þín og þú ert nógu sterk/ur til að deila með þér. Kötturinn Jósefína Meulen-gracht Dietrich malaði á sunnudaginn: „Nú hef ég gáð til veðurs“: Golan strýkur gulan vanga og gæti farið ögn að hlýna. Upp í trýnið tungu langa teygir skáldið Jósefína. Unnur Guttormsdóttir svaraði og sagði: „Þegar ég var peð þótti mér það ógn leiðinlegt að ná ekki með tungunni upp í nefið á mér. Það var nl. sagt að þeir sem það gætu væru skáld, og þar með fékk ég staðfestingu á því að það var ég ekki. Gott að þú getur sleikt á þér trýnið, Jósefína mín.“ Og það getur Jósefína svo sannarlega: Teygi ég í trýnið á mér tungu langa ort því get ég eikin spanga. Og fyrir tveim vikum eða þrem vikum lá vel á Jósefínu: Bústnum músum brott að vísa er bilun sem ég aldrei skil því góðan mat er gott að hýsa og gaman er að vera til. Hallmundur Guðmundsson yrk- ir á Boðnarmiði um „raunir bruggara krækiberjavíns“: Mér í sinni síst er rótt þó sé ég klár með gerið, því ferlega þá fór í nótt; – það frysti’ á krækiberið. Dagbjartur Dagbjartsson finn- ur til með honum: Getur enginn garpurinn gefið til að hugga fáein ber sem frændi minn fengi til að brugga. Helgi Ingólfsson er kominn á bragðið: Drykk minn ærið ört ég vil og ís með honum taka. Þá er bara að búa til berjavín með klaka. Krummi Hrafns vill leggja gott til: Ef að bregst þér berjagnótt best er þá – til vara, leggi að taka, leggja í skjótt lög úr rabarbara. En ekki líst Hallmundi Guð- mundssyni á það: Svoddan lög að sulla með, síst ég mundi gera. Frekar ergja önd og geð, edrú bara vera. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kattartunga og krækiberjavín „SJÓÐURINN ER HORFINN, EN VIÐ ERUM ENN MEÐ VOGUNARGERÐIÐ.“ „ÉG HELD EKKI AÐ ALLUR ÞESSI NÁTTÚRULEGI MATUR SÉ AÐ GERA ÞÉR NOKKUÐ GOTT!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera dekruð endalaust! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HÆ, LÍSA! Ó, EKKI NEITT GÆTIRÐU GERT EKKI NEITT MEÐ HANDKLÆÐI Á ÞÉR? KONAN MÍN GLEYMIR ALDREI NEINU! EKKI MÍN HELDUR! ÞETTA ER BÖLVUN HINS GIFTA, SEGI ÉG! Í ALVÖRUNNI? ÉG KANN VEL VIÐ ÞAÐ AÐ HELGA MAN MEIRA EN 300 UPPSKRIFTIR! Víkverji var meðal 9.636 áhorfendaá Laugardalsvelli á laugardag þegar íslenska kvennalandsliðið tók á móti því þýska í undankeppni heims- meistaramótsins, sem fram fer í Frakklandi á næsta ári. Með sigri hefði íslenska liðið getað tryggt sig beint á HM eins og flestir vita, en það var alltaf ljóst að á brattann yrði að sækja. Íslenska liðið var líklegt í upp- hafi leiks til að skáka Þjóðverjum og fékk stórgott færi til að jafna mínútu eftir að þær þýsku skoruðu. Íslenska liðið tryggði sér í gær annað sætið í sínum riðli með jafntefli við Tékka, en það dugði ekki til umspils og fór þar draumurinn um HM. x x x Þýska liðið hefur átt mikilli vel-gengni á fagna í áranna rás og hefði þótt hneisa hefði það misst af HM. Liðið skipti um þjálfara eftir tapið gegn Íslandi úti – eina tapi liðs- ins í riðlinum – og setti Horst Hrub- esch í þjálfarasætið. Hrubesch gerði garðinn frægan með Hamburger Sportverein og þýska landsliðinu og fékk viðurnefnið skallaskrímslið. x x x Þýska liðið hafði vissulega nokkrayfirburði á vellinum, en að einu leyti höfðu Íslendingar betur. Á þennan eina leik komu tæplega tíu þúsund manns að sjá liðið spila og hefðu ugglaust bæst við nokkur þús- und hefði völlurinn tekið fleiri í sæti. Á fjóra heimaleiki þýska liðsins í riðl- inum komu alls 14.175 áhorfendur. x x x Víkverja fannst leiknum reyndarekki gert sérlega hátt undir höfði í þýskum fjölmiðlum. Vissulega var um hann fjallað, en hefði karlalands- liðið átt í hlut og farmiði á HM verið í húfi hefðu fjölmiðlar þar í landi verið undirlagðir. Víkverji hefur notað smáforrit þýska tímaritsins Kicker til að fylgjast með úrslitum leikja. Þar mátti hann skrolla ansi langt niður áður en kom að leik Íslands og Þýska- lands. Fyrst kom þýska deildin, svo enska, spænska og ítalska deildin, síðan önnur og þriðja deild í Þýska- landi, tennis og kappakstur og þá loks birtist leikurinn í Laugardal. Öllu meira fór fyrir leiknum í íslenskum miðlum. vikverji@mbl.is Víkverji Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti (Síðara Tímóteusarbréf 3.16) HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástSnickers vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.