Morgunblaðið - 05.09.2018, Side 32

Morgunblaðið - 05.09.2018, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Sýningar hefjast í Bíó Paradís í kvöld á heimildarmyndinni Söngur Kanemu eftir Önnu Þóru Steinþórs- dóttur. Myndin hlaut bæði áhorf- endaverðlaun og dómnefndar- verðlaun heimildarmynda- hátíðarinnar Skjaldborgar á Patreksfirði í maí sl. og fjallar um leit hinnar söngelsku Ernu Kanemu að söngvum frá Sambíu, heimalandi föður síns. Erna öðlast um leið skiln- ing á tónlistarhefð forfeðra sinna og tekur brot af henni með sér heim til Íslands. Erna Kanema er 18 ára og alin upp í Reykjavík með yngri syst- ur sinni og foreldrum, íslenskri móð- ur og sambískum föður. Tónlistar- áhuginn leiðir hana af stað í ferð sem opnar augu hennar á tónlistar- menningu og hefðum í Sambíu, þar sem margt er talsvert ólíkt því sem hún þekkir á Íslandi. Á sama tíma öðlast hún sterkari sjálfsmynd og dýpri skilning á sjálfri sér. Frumsýning verður á myndinni í Bíó Paradís í kvöld kl. 20. Verðlaunamynd Söngur Kanemu hlaut tvenn verðlaun á Skjaldborg. Söngur Kanemu í Bíó Paradís Fyrsti formlegi fundur Sænsku aka- demíunnar (SA) eftir sumarfrí verð- ur á morgun, 6. september. Sem stendur er SA enn óstarfhæf og óljóst hvenær hægt verður að full- manna akademíuna. Frá stofnun SA árið 1786 hafa meðlimirnir 18 verið skipaðir til æviloka og þurft hefur 12 atkvæði sitjandi meðlima til að taka allar meiriháttar ákvarðanir, s.s. að velja inn nýja meðlimi og verðlauna- hafa. Fyrr á árinu breytti Karl XVI. Gústaf Svíakonungur, verndari SA, stofnsáttmála akademíunnar með konunglegri tilskipun og í kjölfarið ákváðu þau Lotta Lotass, Sara Stridsberg, Klas Östergren og Kerstin Ekman að hætta formlega. Kjell Espmark, Peter Englund, Sara Danius og Katarina Frosten- son hafa frá aprílmánuði ekki tekið þátt í störfum SA en halda enn sæt- um sínum. Fyrr í sumar hafði SvD eftir Per Wästberg að þau Espmark, Englund og Danius hefðu frest til 1. september til að upplýsa hvort þau hygðust yfirgefa SA og eftirláta öðr- um sæti sín. Þremenningarnir höfðu sett það sem skilyrði fyrir þátttöku sinni að Horace Engdahl myndi víkja, en þá brást Kristina Lugn ókvæða við og hótaði að hætta ef Engdahl hætti. Réttarhöldin senn að hefjast Seint í síðustu viku hafði SVT Nyheter eftir Espmark að þremenn- ingarnir myndu taka þátt í atkvæða- greiðslum um val á nýjum með- limum. „Við höfðum sett það sem skilyrði að Horace myndi víkja, en við setjum hagsmuni SA ofar en okkar eigin,“ sagði Espmark. Carl- Henrik Heldin, talsmaður Nóbels- stofnunarinnar, og Anders Olsson, starfandi ritari SA, fögnuðu þessum tíðindum og sögðu þetta fyrsta skrefið í enduruppbyggingu SA. Adam var hins vegar ekki lengi í Paradís, því daginn eftir þvertóku bæði Danius og Englund fyrir að þau myndi snúa aftur til starfa hjá SA. „ENGIN ÁFORM UM AÐ SNÚA AFTUR,“ skrifaði Sara Dan- ius með hástöfum í færslu á Face- book-síðu sinni og bætti við: „Í gær birtu sænskir fjölmiðlar fréttir þess efnis að ég hefði ákveðið að snúa aft- ur til starfa hjá SA. Þetta eru rangar upplýsingar. Ég áforma ekkert slíkt á núverandi tímapunkti,“ skrifaði Danius og hvatti fólk til að deila færslunni. Í viðtali við SVT Nyheter í maí ítrekaði Danius að 12 atkvæði þyrfti til að velja inn nýja meðlimi. „Fáist það ekki er akademían sjálf- dauð, enginn vill það.“ „Á núverandi tímapunkti er ekki inni í myndinni að ég snúi aftur til starfa og ég mun ekki taka þátt í neinum fundum. Ég vil samt gjarn- an taka virkan og uppbyggilegan þátt í því að endurreisa þessa stofn- un. Í því felst að ég gæti MÖGU- LEGA tekið þátt í væntanlegum at- kvæðagreiðslum um nýja meðlimi,“ skrifar Englund á Instagram. Í sam- eiginlegri tilkynningu sem þremenn- ingarnir sendu sænsku fréttaveit- unni TT stendur: „Því hefur verið slegið upp í sænskum fjölmiðlum að við þrjú myndum snúa eftir til starfa hjá SA. Það er rangt. Við munum mögulega – mögulega – taka þátt í mikilvægum atkvæðagreiðslum.“ Ófremdarástandið sem nú ríkir innan SA er afleiðing af því að síð- asta vetur var Jean-Claude Arnault sakaður um kynferðislegt ofbeldi og óeðlileg fjárhagsleg tengsl við SA gegnum eiginkonu sína, Frostenson, og vin, Engdahl sem var ritari SA 1999-2009. Í júní var Arnault ákærð- ur fyrir tvær nauðganir á sömu kon- unni árið 2011. Réttarhöldin yfir honum hefjast í Stokkhólmi 19. sept- ember. silja@mbl.is AFP Staðföst Sara Danius þegar hún lét af störfum sem ritari SA í vor. „Engin áform um að snúa aftur“  Fyrsti formlegi fundur Sænsku aka- demíunnar eftir sumarfrí er á morgun Nýjar hendur - Innan seilingar Bíó Paradís 18.00 Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 22.20 Kvíðakast Bíó Paradís 20.00, 22.00, 22.20 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Whitney Bíó Paradís 17.40, 20.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 18.00 Lof mér að falla 16 Þegar 15 ára Magnea kynn- ist 18 ára Stellu breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Smárabíó 19.40 KIN 12 Sambíóin Álfabakka 17.15, 17.30, 19.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 17.20, 19.40, 22.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Alpha 12 Metacritic 63/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 14.50, 17.20, 19.05, 21.40, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 22.00 Crazy Rich Asians Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 20.00 The Happytime Murders 16 Laugarásbíó 20.00, 22.00 Smárabíó 20.00, 22.00 Mile 22 16 Laugarásbíó 22.15 Smárabíó 22.10 Háskólabíó 20.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.30 Slender Man 16 Smárabíó 19.50, 22.00 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.40 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.30 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 22.00 Össi Össi er mjög heppinn hund- ur. Hann býr hjá góðri fjöl- skyldu sem elskar hann af- skaplega mikið og lifið er gott. En einn góðan veð- urdag fer fjölskyldan í ferða- lag og skilur Össa eftir í pössun. Laugarásbíó 18.00 Smárabíó 15.00, 17.10 Borgarbíó Akureyri 17.30 Christopher Robin Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.15 Úlfhundurinn Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 17.30 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 14.50 Draumur Smárabíó 15.30 Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í neðansjávarrannsóknarstöð Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 The Meg 12 Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir um fortíð móður sinnar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.30, 19.50 Smárabíó 16.30, 17.10, 19.30 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 Mission Impossible -Fallout 16 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni misheppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.30, 21.45 Sambíóin Egilshöll 18.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 22.00 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.