Morgunblaðið - 08.10.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018
R
GUNA
GÓÐAR
I
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Niðurrif rússneska togarans Orlik
í Helguvík í Reykjanesbæ er ekki
háð mati á umhverfisáhrifum, sam-
kvæmt ákvörðun Skipulagsstofn-
unar. Ákvörðunina má kæra til úr-
skurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála og er kærufrestur til
5. nóvember næstkomandi.
Orlik hefur legið í Njarðvíkur-
höfn frá haustinu 2014. Ítrekað
hefur staðið til að flytja skipið til
niðurrifs erlendis en engin þeirra
áforma gengið eftir. Hringrás hf.
hefur nú sótt um leyfi til að rífa
skipið hér á landi og er stefnt að
því að gera það í Helguvíkurhöfn.
Togarinn var smíðaður árið
1983. Hann er rúmlega 63 metra
langur, tæplega 14 metra breiður
og nettóþyngd hans tæp 700 tonn.
Gert er ráð fyrir að það taki 2-3
mánuði að rífa skipið, að því er
kemur fram í ákvörðun Skipulags-
stofnunar. Fyrirtæki sem er sam-
þykkt af Vinnueftirliti ríkisins
mun sjá um niðurrif á asbesti sem
er í togaranum. Starfsmenn
Hringrásar munu að öðru leyti sjá
um niðurrifið. Búið er að hreinsa
olíur og olíumengað vatn úr skip-
inu en starfsmenn Efnarásar
munu fjarlægja viðhaldsefni og
spilliefni sem kunna að vera eftir.
Tæplega 40 þúsund lítrum af olíu-
menguðu vatni var dælt úr skipinu
og 7 þúsund lítrum af úrgangsolíu.
Þá er búið að fjarlægja freon og
ekkert gas er í kælikerfum skips-
ins.
Dúkur og sandur undir
Lagður verður jarðvegsdúkur
yfir svæðið þar sem skipið verður
rifið og sandur og möl borin á dúk-
inn. Togarinn verður svo dreginn
upp á dúkinn. Leki einhver olía úr
skipinu fer hún ekki lengra en í
sandinn á dúknum. Fyrir aftan
skipið verður hlaðinn grjótgarður
til að varna því að rusl fari út í sjó.
Stórvirkar gröfur, búnar klipp-
um og kröbbum, munu búta skipið
niður. Efnið verður flokkað í
brotamálma, pappa, plast og
óendurvinnanlegan úrgang. Einnig
verður beitt logskurði þar sem
þess þarf. Allur laus úrgangur
verður flokkaður í gáma jafnóðum
og þeir fjarlægðir eftir þörfum. Að
lokum verður allt rusl og allur
búnaður fjarlægt af framkvæmda-
svæðinu.
Niðurrif togara ekki í umhverfismat
Rússneski togarinn Orlik verður rifinn í Helguvík Vel verður gætt að öllum mengunarvörnum
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu tilkynnti
á laugardag að
hún væri ekki að
sekta ökumenn
bifreiða sem
komnir eru á
nagladekk, þrátt
fyrir að slík dekk
séu almennt leyfð frá 1. nóvember til
15. apríl. Lögreglan hafði fengið
fyrirspurnir um nagladekk frá öku-
mönnum sem voru að koma til eða
frá höfuðborgarsvæðinu og undir-
strikaði að þeir sem væru á nöglum
ættu ekki sektir yfir höfði sér.
Nú þegar hafa ökumenn þurft að
glíma víða við hálku og snjó á götum
og vegum landsins. Á heimasíðu
Vegagerðarinnar mátti lesa í gær að
á Vestfjörðum væri hálka eða hálku-
blettir á flestum leiðum. Dynjand-
isheiði var einungis fær fjórhjóla-
drifsbílum á vetrardekkjum. Á
Norðurlandi var hálka á Öxnadals-
heiði og víða hálkublettir á fjall-
vegum líkt og á Norðausturlandi og
Austurlandi. Á Suðurlandi var hálka
eða hálkublettir á nokkrum leiðum í
uppsveitum.
Samkvæmt spá Veðurstofunnar
fyrir vikuna gæti myndast hálka
víða á vegum, ekki síst fjallvegum,
fram eftir vikunni. Á fimmtudag má
búast við frostleysu að minnsta kosti
á láglendi en svo fer aftur að kólna á
laugardaginn kemur, gangi spáin
eftir. En eins og reyndir ökumenn
vita getur myndast hálka á votum
vegi þótt hitamælirinn í bílnum sýni
1-3 stiga hita. gudni@mbl.is
Ekki sektað fyrir
nagladekk í borginni
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gunnar Smári Egilsson, einn for-
ystumanna í Sósíalistaflokki Íslands,
skrifaði um helgina grein í vefritið
Miðjuna og á færslur á Facebook
um launuð störf Öldu Lóu Leifs-
dóttur, eiginkonu sinnar, fyrir Efl-
ingu. Þar nafngreindi hann Kristj-
önu Valgeirsdóttur, fjármálastjóra
Eflingar, og vændi hana um að hafa
gert greiðslur til Öldu Lóu að frétta-
efni vegna deilna við yfirmenn sína á
skrifstofu félagsins. Hann sakaði
einnig Kristjönu um spillingu í
starfi.
„Ég mótmæli þeim ásökunum
sem á mig eru bornar,“ sagði Kristj-
ana Valgeirsdóttir í samtali við
Morgunblaðið. „Það er mjög at-
hyglisvert að starfsmaður stéttar-
félags til 36 ára, sem unnið hefur
undir stjórn þeirra Guðmundar J.,
Halldórs Björnssonar og Sigurðar
Bessasonar, þurfi að ráða sér lög-
mann til að verja sig þegar stéttar-
félagið hefur það hlutverk sam-
kvæmt lögum að verja launamenn.“
Kristjana kvaðst ekki vilja svara
ásökunum Gunnars Smára á þessu
stigi. Það væri í höndum lögmanns
hennar. Þá vildi hún ekki heldur tjá
sig neitt um andrúmsloftið á skrif-
stofu Eflingar eftir að ný forysta tók
við í félaginu. Kristjana kvaðst
aldrei hafa hitt Gunnar Smára og
ekkert þekkja til hans.
Fram kom í Morgunblaðinu á
laugardag að ekki væri allt með
felldu á skrifstofu Eflingar. For-
maður og framkvæmdastjóri félags-
ins voru sögð stjórna með harðri
hendi og formaðurinn hafa neitað að
svara því efnislega hvers vegna tveir
af reyndustu starfsmönnum félags-
ins, fjármálastjóri og bókari, væru
komnir í veikindaleyfi. Ein ástæðan
var sögð sú að fjármálastjórinn hefði
neitað að greiða háa reikninga frá
Öldu Lóu vegna vinnu hennar fyrir
félagið nema fá samþykki stjórnar
Eflingar fyrir greiðslunum.
Mótmæla fréttaflutningi
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, og Viðar Þorsteinsson
framkvæmdastjóri birtu á laugar-
dag yfirlýsingu á heimasíðu Eflingar
í tilefni af frétt Morgunblaðsins. Þar
segir m.a. að í fréttinni sé „slegið
fram staðlausum fullyrðingum um
meinta framkomu stjórnenda Efl-
ingar við starfsfólk félagsins“.
Einnig segja þau að umrætt starfs-
fólk hafi ekki tjáð sig sjálft við blaða-
mann og frásagnirnar séu því
óstaðfestar. Þá sögðu þau að
greiðslur til Öldu Lóu hefðu verið í
fullkomnu samræmi við ákvörðun
stjórnar Eflingar.
Yfirlýsingunni lýkur á orðunum:
„Stjórnendur Eflingar vísa frétta-
flutningi Morgunblaðsins á bug.
Þess er óskað að blaðið láti af því að
gera starfsfólki félagsins upp til-
hæfulaus klögumál og fara með
dylgjur um starfsemi félagsins.“
Fjármála-
stjórinn ræður
sér lögmann
Borin sökum í skrifum Gunnars
Smára Mótmælir ásökununum