Morgunblaðið - 08.10.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.10.2018, Blaðsíða 10
10 ár frá bankahruninu10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is FORD KUGA TITANIUM nýskr. 05/2016, ekinn 98 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 2.890.000 kr. Raðnúmer 258473 CITROEN C4 CACTUS nýskr. 06/2016, ekinn 35 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 1.890.000 kr. Raðnúmer 380161 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI MINI COUNTRYMAN nýskr. 07/2014, ekinn 55 Þ.km, bensín, 6 gíra. Verð 2.490.000 kr. Raðnúmer 257394 SUBARU XV nýskr. 06/2015, ekinn aðeins 33 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.980.000 kr. Raðnúmer 258545 LAND ROVER DISCOVERY SPORT nýskr. 03/2017, ekinn 77 Þ.km, dísel, sjálfskiptur (9 gíra). Verð 4.850.000 kr. Raðnúmer 258544 Bílafjármögnun Landsbankans Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Miklar áhyggjur voru um að brota- tíðni færi að aukast í kjölfar efna- hagshrunsins 2008. Hins vegar varð aðeins lítil tímabundin fjölg- un brota árin 2008 og 2009 og hefur hegning- arlagabrotum al- mennt fækkað árin 2006 til 2016. Þetta er meðal þess sem kom fram í er- indi Helga Gunn- laugssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands, á ráðstefnunni „Hrunið, þið munið“ sem haldin var í háskólanum á laugardag. Dregur úr brotum Þá sagði Helgi að síðastliðin ár hefðu hegningarlagabrot verið um 15 prósent skráðra brota á Íslandi en umferðarlagabrotin eru lang- flest eða um 75 prósent allra skráðra brota. Í aðdraganda og strax í kjölfar bankahrunsins árið 2008 fjölgar málum, einkum inn- brotum og þjófnuðum. Innbrotin samanstanda að meginhluta af innbrotum í bíla, fyrirtæki eða stofnanir. Umfang mála af þessu tagi hefur orðið til þess að fleiri telja nauðsynlegt að kaupa sér ýmiss konar öryggis- kerfi og hafa fyrirtæki sem sér- hæfa sig í lausnum af því tagi styrkt sig í sessi á síðustu árum. Eftir 2010 fækkar brotum aftur á móti, ekki síst áðurnefndum auðg- unarbrotum, staðhæfði Helgi. Ef þróunin er skoðuð út frá mannfjöldabreytingum hefur dreg- ið úr fjölda allra hegningarmála á þessu tímabili, að sögn Helga. Hann benti á að fækkunin ætti sér- staklega við um auðgunarbrot, sem eru stærsti hluti brotanna. Ein- hverjar sveiflur eiga sér þó stað í einstökum flokkum hegningar- lagabrota en fátt bendir til að fjöldi afbrota hafi farið úr bönd- unum síðan árið 1999, sagði Helgi. Vitundarvakning Tveir brotaflokkar skera sig þó úr. Ofbeldisbrotum fjölgar þrátt fyrir sveiflur og kynferðisbrotum sömuleiðis, að því er fram kom í erindi prófessorsins. Hann sagði erfitt að útskýra fjölgun kynferðis- brota og ofbeldisbrota, en að breytt verklag í meðferð heimilis- ofbeldismála gæti þó útskýrt fjölgun ofbeldisbrota árin 2015 og 2016 að einhverju leyti. Eins hefur Bætt uppvaxtarskil- yrði fækka brotum  Innbrot, þjófnaðir og kannabisræktun jukust við hrunið Fjöldi kynferðis-, ofbeldis- og fíkniefnabrota 2006-2016 miðað við 10 þús. íbúa 80 60 40 20 0 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 Heimild: Embætti ríkislögreglustjóra Fíkniefnabrot Kynferðisbrot Manndráp og líkamsmeiðingar 14,8 55,8 47,8 Morgunblaðið/Júlíus Verðmætt þýfi Í aðdraganda og strax í kjölfar bankahrunsins árið 2008 fjölgaði innbrotum og þjófnuðum. Helgi Gunnlaugsson Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 12. sinn á morgun, 9. október klukkan 20.00, á fæðingardegi Johns Lennon. Hún mun lýsa upp í himininn til 8. desember sem er dánardagur Lennons. Boðið verður upp á fríar ferjusiglingar og strætóferð- ir fyrir og eftir tendrunina. Þá munu Listasafn Reykja- víkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri annast dag- skrá sem hefst klukkan 17.45 og stendur til klukkan 21.30. Högni Egils flytur tónlist fyrir gesti frá 19.00- 19.30 og tónlistarkonan GDRN flytur tónlist fyrir gesti frá 20.30-21.00. Tónleikarnir fara fram í Naustinu við Friðarsúluna. Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir Viðeyjarsund. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17.30 til 19.30. Fríar strætóferðir verða milli Hlemms og Skarfabakka fyrir og eftir athöfnina. gudni@mbl.is Friðarsúlan í Viðey tendruð í 12. sinn Viðey Friðarsúlan tendruð á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.