Morgunblaðið - 08.10.2018, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
Guðrún Arthúrs-dóttir, sem fagn-ar 60 ára afmæli
sínu í dag, er Sandgerð-
ingur í húð og hár, er
fædd þar og uppalin og
hefur ávallt búið þar.
Guðrún er flugöryggis-
vörður hjá Isavia og
tekur á móti öllu starfs-
fólki sem þarf að fara
inn á flugvöllinn.
„Þetta er mjög svipuð
öryggisgæsla og þegar
fólk fer í flug nema að
hér koma einnig bílar í
gegn sem þurfa að fara í
öryggisleit.“
Eitt ár er liðið síðan
Guðrún hóf störf hjá
Isavia en fyrir það rak
hún Shell-skálann í
Sandgerði með manni
sínum í þrettán ár.
„Við ákváðum að
hætta því vegna þess að
þetta er svo mikil vinna.
Það er gott að geta
mætt í vinnuna og fara
svo bara heim þegar hún er búin.“
Þegar heim er komið þá nýtur Guðrún þess að vera með fjölskyld-
unni, börnum og barnabörnum og svo hefur hún gaman af því að
ferðast.
Guðrún hefur látið sig bæjarmálin varða í Sandgerði og var bæjar-
fulltrúi 1994 til 1998, tók sér síðan hlé í fjögur ár en varð síðan aftur
bæjarfulltrúi frá 2002 til 2014.
„Samfélagið hér er frábært og til að mynda erum við með mjög
góða grunnskóla og leikskóla. Hér er gott að ala upp börn svo ég
myndi segja að það sé gott að búa í Sandgerði.“
Eiginmaður Guðrúnar er Eggert Þór Andrésson, en hann vinnur
hjá A. Óskarssyni sem er verktaki í flugstöðinni. Börn þeirra eru
Arna Vala, Andrés Magnús og Thelma Dís og barnabörnin eru orðin
fimm.
Guðrún verður heima í faðmi fjölskyldunnar í dag en síðar í mán-
uðinum fara þau hjónin til Dublin. „Við ætlum á tónleika þar með
Andrea Bocelli, ég er ekki mikið í klassíkinni en mér finnst hann of-
boðslega góður.
Hjónin Guðrún og Eggert á Spáni fyrir fjór-
um árum þegar Eggert varð sextugur.
Flugöryggisvörður
á Keflavíkurflugvelli
Guðrún Arthúrsdóttir er sextug í dag
H
jálmar A. Sigurþórs-
son fæddist í Stykkis-
hólmi 8.10. 1968 og
átti heima í Lynghaga
í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi fyrstu sex árin: „For-
eldrar mínir byggðu húsið að Lyng-
haga árið 1967 en árið 1974 flutti fjöl-
skyldan í Stykkishólm og byggði þar
annað hús að Lágholti 21a. Þar hafa
foreldrar mínir búið síðan. Þau eru
bæði úr Miklaholtshreppi, pabbi frá
Hrísdal og mamma frá Stakkhamri.
Fjölskyldan hefur því alltaf haft
sterkar taugar til sveitarinnar og
mannlífsins þar sem ræturnar
liggja.“
Hjálmar gekk í grunnskólann í
Stykkishólmi, var eitt ár í framhalds-
deildinni þar og lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
1988: „Þessi skólaár voru viðburða-
rík, spennandi og skemmtileg og
ýttu undir ábyrgð og sjálfstæði.“
Á æskuárunum vann Hjálmar í
fiski í Rækjunesi og Þórsnesi og við
netavinnu á veturna, en í Skipavík á
framhaldsskólaárunum.
Hjálmar hóf störf hjá Trygginga-
miðstöðinni hf. haustið 1988 og hefur
starfað þar síðan. Hann sinnti al-
mennum störfum í tjónadeild félags-
ins til 1994, varð þá deildarstjóri
tjónadeildar, framkvæmdastjóri
tjónaþjónustu frá 2005 en fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu
Hjálmar A. Sigurþórsson, framkvæmdastjóri hjá TM – 50 ára
Fjölskyldan Hér eru Hjálmar og Guðrún Margrét með Friðriki Þór og Hákoni Erni í ítalska fiskiþorpinu Portofino.
Íþróttir, tónlist, veiði,
ÍR og fluguhnýtingar
Stangveiðimenn Hjálmar með sonum sínum á bökkum Straumfjarðarár.
Brynja Dís Axels-
dóttir og Arnrún
Eva Guðmunds-
dóttir seldu perlur
fyrir utan Bónus,
Undirhlíð á Akur-
eyri, og gáfu Rauða
krossinum við Eyja-
fjörð afraksturinn,
15.917 krónur.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón