Morgunblaðið - 08.10.2018, Page 23

Morgunblaðið - 08.10.2018, Page 23
og erlendra viðskipta frá 2008 og auk þess framkvæmdastjóri dóttur- félaga TM, Líftryggingamiðstöðvar- innar hf., Trygginga hf. og Íslenskr- ar endurtryggingar hf. Samhliða vinnu stundaði Hjálmar MBA-nám við HR frá 2006 og út- skrifaðist árið 2008. Hjálmar var keppnismaður í frjálsíþróttum fram undir þrítugt en hann keppti alla tíð undir merkjum HSH (Héraðssambands Snæfells- og Hnappadalssýslu) og æfði undir stjórn margra af bestu frjálsíþrótta- þjálfara landsins fyrr og síðar. Má þar nefna Gísla Sigurðsson og Þráin Hafsteinsson. Þegar synirnir byrjuðu í körfu- bolta hjá ÍR, árið 2005, hóf Hjálmar þátttöku í félagsstörfum ÍR, fyrst í körfuknattleiksdeildinni. Hann var varaformaður aðalstjórnar ÍR 2010- 2011 og formaður aðalstjórnar ÍR 2011-2014. Frá þeim tíma hafa fé- lagsmálin snúist um körfuknatt- leiksdeildina, en þar hafa báðir syn- irnir leikið upp alla flokka félagsins. Hjálmar var sæmdur silfurmerki ÍR 2014 og síðan gullmerki ÍR 2016. Auk þess er Hjálmar á kafi í tónlist: „Ég lærði á gítar hjá Lárusi Péturs- syni í Stykkishólmi á unglingsárun- um en tónlistarstarf í Hólminum var þá gríðarlega öflugt. Ég lék með hljómsveitum frá um 13 ára aldri og fram yfir tvítugt. Helstu hljómsveit- irnar voru Joe Gæ Band og síðasta hljómsveitin, Jójó, sem mikið lét að sér kveða á sínum tíma. Svo má geta þess að við hjónin er- um í ABBA-klúbbnum á Íslandi ásamt nokkrum vinahjónum.“ Ekki er allt upp talið því síðustu 20 ár hefur Hjálmar verið forfallinn stangveiðimaður: „Jú, jú. Einhverjir tugir laxa eru dregnir á land á hverju sumri. Í þessa tvo áratugi hef ég verið í veiðifélaginu Öngull í rassi, sem er félagsskapur fjögurra gamalla félaga úr Stykkishólmi. Í tengslum við veiðina hef ég hnýtt mikið magn af flugum en það er fátt skemmtilegra en að veiða lax á sína eigin flugu.“ Fjölskylda Eiginkona Hjálmars er Guðrún Margrét Ólafsdóttir, f. 27.2. 1965, starfsmaður hjá PWC í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Ólafur Guðmundsson, f. 19.12. 1934, d. 7.4. 2015, skipasmiður á Skagaströnd, og k.h., Guðmunda Hjálmfríður Sigur- brandardóttir, f. 2.10. 1943, d. 15.8. 2015, húsfreyja. Synir Hjálmars og Guðrúnar eru Friðrik Þór Hjálmarsson, f. 29.11. 1994, nemi í hugbúnaðarverkfræði við HR en sambýliskona hans er Klara Rún Hilmarsdóttir, nemi í við- skiptafræði við HÍ, og Hákon Örn Hjálmarsson, f. 18.3. 1999, nemi við MS. Bræður Hjálmars eru Hjörleifur Sigurþórsson, f. 22.10. 1972, bygg- ingarfræðingur í Kópavogi, og Atli Rúnar Sigurþórsson, f. 12.4. 1976, framkvæmdastjóri í Stykkishólmi. Foreldrar Hjálmars eru Sigurþór Hjörleifsson, f. 18.10. 1943, síðast framkvæmdastjóri í eigin fyrirtæki, og k.h., Magndís Alexandersdóttir, f. 24.3. 1945, síðast fulltrúi hjá RARIK. Úr frændgarði Hjálmars A. Sigurþórssonar Hjálmar A. Sigurþórsson Magndís Benediktsdóttir húsfreyja í Miklaholtsseli Bjarni Ívarsson sjóm. og b. í Miklaholtsseli Kristjana Bjarnadóttir húsfreyja á Stakkhamri Magndís Alexandersdóttir fulltrúi í Stykkishólmi Alexander Guðbjartsson b. á Stakkhamri Guðbranda Þorbjörg Guðbrandsdóttir húsfreyja á Hjarðarfelli Sigfús Sigurðsson ólympíukeppandi í kúluvarpi í London 1948 Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir hússtjórnar- kennari í Rvík Sigfús Sigurðsson fv. landsliðsm. í handbolta ólympíufari 2004 og ólympíufari og silfurmethafi 2008 Sigurður Grétar jörleifsson trésmiður og körfuboltaþjálfari H Jakob Örn Sigurðsson atvinnum. og landsliðsm. í körfubolta Gunnar Guðbjartsson form. Stéttarsambands bænda Hallgerður Gunnarsdóttir lögfr. í Stykkishólmi Elínborg Sturludóttir prestur í Dómkirkjunni Gunnar Sturluson lögmaður í Rvík Böðvar Sturluson framkvstj. í Stykkishólmi Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri áAkureyri Ríkharður Hrafnkelsson fv. landsliðsm. í körfubolta Hrafnkell Alexanders- son húsasmiður í Stykkishólmi Magnús Stefánsson fv. alþm. og ráðherra Guðrún Alexandersdóttir húsfreyja í Ólafsvík Þóra Sigurbjarnardóttir húsfreyja á Selhóli Hans Bjarni Jensson sjóm. og b. á Selhóli á Hellissandi Kristín Hansdóttir húsfreyja og þúsundþjalasmiður í Rvík Hjörleifur Sigurðsson umdæmisstj. hjá Vegagerðinni í Ólafsvík Margrét Oddný Hjörleifsdóttir húsfreyja í Hrísdal Sigurður Kristjánsson b. í Hrísdal í Eyja- og Miklaholtshr. Sigurþór Hjörleifsson framkvstj. í Stykkishólmi Guðbjartur Kristjánsson b. á Hjarðarfelli Hulda Þorkels- dóttir hjúkrunar- kona í Rvík Eggert Gunnarsson dýralæknir í Rvík Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Guðbrandur Þorkelsson lögregluvarðstjóri Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir áAkureyri Friðrik Kristján Guðbrandsson háls-, nef- og eyrnalæknir Theodóra Kristjánsdóttir húsfreyja í Rvík ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA Guðrún Gísladóttir fæddist 8.október 1868 að Stóra-Botni íHvalfirði. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Gíslason, f. 1827, d. 1912, bóndi og sýslunefndarmaður í Stóra-Botni og Stóru-Fellsöxl, og Jórunn Magnúsdóttir, f. 1838, d. 1912, húsfreyja. Guðrún lærði og tók ljósmóðurpróf hjá Scierbeck landlækni í Reykjavík árið 1892. Hún var ljósmóðir í Andakíls- umdæmi 1892-1894, Leirár- og Mela- sóknarumdæmi 1894-1902 og Akra- nesumdæmi 1902-1938. Eftir það tók hún öðru hverju á móti börnum og síðast 5.5. 1945. Alls tók Guðrún á móti 1.166 börnum. Þegar Guðrún sagði lausu Leirár- og Melasóknarumdæmi sótti hún um Flateyjarsund á Breiðafirði. Um- sóknin misfórst og bað héraðslæknir- inn hana þá um að taka við Akranes- umdæmi. Þar bjó hún síðan. Guðrún átti lengst af heima á Mið- Söndum, frá 1919 til 1952. Hún var greind, glaðvær, fróðleiksfús og hag- mælt. Annáluð voru störf Guðrúnar í spænsku veikinni 1918 á Akranesi og sagði Guðrún þau hjúkrunarstörf hafa reynt mest á hana á starfsferlinum. „Það voru fullar þrjár vikur, sem ég naut ekki hvíldar í þann tíma, en það vildi til að ég þoldi vel að vaka. Á þessu tímabili var það í mesta lagi aðra hverja nótt, sem ég gat lagt mig annars var ég alltaf þar sem erfið- leikarnir voru mestir og dauðsföll verandi og verðandi. Þetta voru óhugnanlegir tímar,“ sagði Guðrún í blaðaviðtali árið 1948. Íbúar Akra- ness voru þá 897 manns og munu um 600 hafa orðið rúmfastir. Alls létust 28 úr spænsku veikinni á Akranesi. Guðrún var sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar 1945, var útnefnd heiðursfélagi Kvenfélags Akraness og Slysavarnardeildarinnar þar 1947 og kjörin heiðursborgari Akraness 1948. Fósturdóttir Guðrúnar frá fimm ára aldri var Margrét Sigurðardóttir, en Guðrún var ógift. Guðrún lést 1.3. 1954 á Akranesi. Merkir Íslendingar Guðrún Gísladóttir 90 ára Auðunn Haraldsson Gunnar Guðjónsson Sveinbjörn Þ. Egilson Una Gísladóttir 85 ára Guðmundur Jóhannes Guðmundsson Magnús Guðmundsson Ottó Ragnarsson Sveinn Guðjónsson 80 ára Helga Benediktsdóttir Pálmi Jónsson 75 ára Guðmundur Garðarsson Guðrún Helga Hauksdóttir Gyða Þorgeirsdóttir Kolbrún Jóna Hilmisdóttir Sigríður G. Kristjánsdóttir Sigríður H. Einarsdóttir Úrsúla Elísabeth Sonnenfeld Þorgerður Sigurvinsdóttir 70 ára Guðrún Þorsteinsdóttir Sigurður Örn Baldvinsson Svanhvít Eydís Egilsdóttir Þorvaldur Pálmason Þórdís Hulda Hreggviðsdóttir 60 ára Bjarni Frans Viggósson Guðlaug Vilbogadóttir Guðrún Arthúrsdóttir Karen Gígja Karlsdóttir Kristín Birgisdóttir Marta Lilja Sigurbjarnadóttir Sigríður K. Sigurðardóttir Sigurpáll Sigurbjörnsson Þórunn Stefánsdóttir 50 ára Ásgeir Gísli Gíslason Berglind Helgadóttir Brynhildur Georgsdóttir Charles Edward McCabe Fylkir Þór Guðmundsson Hans Ragnar Þór Hildur Steinunn Magnúsdóttir Hjálmar A. Sigurþórsson Ingimar Oddsson Jóhann Eyjólfsson Rúnar Vigfússon Amin Sigrún Helga Sigurðardóttir Sigurður Árnason 40 ára Elísabeth Saga Pedersen Georgeta Liana Bora Guðjón Davíð Pétursson Gyða Björk Aradóttir Hjörvar Jóhannesson Iskra Angelova Yordanova Marinella R. Haraldsdóttir Sigurður Borgar Bjarnason Sigurrós Ingigerðardóttir 30 ára Birna Mjöll Guðlaugsdóttir Bjarni Tómas Helgason Bryndís Þorsteinsdóttir Casandra Landayan Caamic Fanney Finnbogadóttir Guðmundur Ingi Hall- dórsson Jón Sverrir Jónsson Katarzyna Pisanska Kristofer Rodriguez Svönuson Piotr Waldemar Brykalski Súsanna Karlsdóttir Sveinn Halldór Helgason Þórarinn Reynir Valgeirsson Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur er Dalvíkingur en býr í Reykjavík. Hann er þjónn á Jómfrúnni, tónlistarmaður og stundar nám í mann- fræði og ferðamálafræði við HR. Dóttir: Freyja Ösp, f. 2012. Foreldrar: Halldór Sig- urður Guðmundsson, f. 1959, forstöðumaður öldr- unarheimila á Akureyri, og Ingileif Ástvaldsdóttir, f. 1964, skólastjóri Þela- merkurskóla. Guðmundur Ingi Halldórsson 40 ára Sigurður er Kefl- víkingur og er sölumaður í áfengisdeildinni í Frí- höfninni. Maki: Björk Guðmunds- dóttir, f. 1978, bókari hjá byggingaverktakanum Sparra. Börn: Ásgerður María, f. 2015, stjúpdætur: Vilborg Ronja, f. 2007, og Ragn- hildur Lóa, f. 2009. Foreldrar: Bjarni Sigurðs- son, f. 1956, og Hansborg Þorkelsdóttir, f. 1957. Sigurður Borgar Bjarnason 40 ára Sigurrós er Kefl- víkingur en býr á Akra- nesi. Hún er leiðbeinandi í eldhúsinu í Fjöliðjunni. Maki: Albert Ingi Gunn- arsson, f. 1971, liðsstjóri hjá Norðuráli. Börn: Ingvi Þór, f. 2000, og Hafþór Blær, f. 2004. Foreldrar: Gissur Bach- mann Bjarnason, f. 1957, vinnur hjá Elkem, og Ingi- gerður Guðmundsdóttir, f. 1960, leiðbeinandi. Þau eru búsett á Akranesi. Sigurrós Ingi- gerðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.