Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 fyrir öll tölvurými og skrifstofur Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk Veður víða um heim 8.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Akureyri 2 rigning Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 8 rigning Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 10 þoka Helsinki 8 rigning Lúxemborg 17 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 15 skýjað Glasgow 13 rigning London 15 skýjað París 17 heiðskírt Amsterdam 14 léttskýjað Hamborg 14 heiðskírt Berlín 13 heiðskírt Vín 17 heiðskírt Moskva 4 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 19 léttskýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 18 rigning Róm 22 þrumuveður Aþena 20 léttskýjað Winnipeg 6 skýjað Montreal 8 alskýjað New York 18 þoka Chicago 23 þoka Orlando 30 léttskýjað  9. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:01 18:30 ÍSAFJÖRÐUR 8:10 18:31 SIGLUFJÖRÐUR 7:53 18:14 DJÚPIVOGUR 7:31 17:59 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á miðvikudag Sunnan 5-10 m/s og rigning eða slydda með köflum, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Víða þurrt um kvöldið. Hiti 1 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 3-8 með skúrum eða slydduéljum en rofar smám saman til um landið norðanvert. Hiti 0 til 7 stig. Meirihlutaflokkarnir í borgar- stjórn Reykjavíkur vísuðu frá til- lögu um að taka upp þá megin- reglu að nýta verkbókhald til að fylgjast með kostnaðarþróun verk- efna á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara þegar málið var tekið í borgarráði sl. fimmtudag. Sjálf- stæðismenn lögðu tillöguna fram í borgarráði, en í henni segir m.a.: „Tillagan er lögð fram í ljósi þeirra fyrirspurna sem lagðar hafa verið fram um einstök verkefni á skrif- stofu borgarstjóra og borgarritara sem ekki var unnt að svara vegna þes að ekki hefur verið haldið verkbókhald og því ekki hægt að sýna fram á kostnað við einstök verkefni.“ Meirihlutinn vill meta þörf Borgarráðsfulltrúar Samfylking- ar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna greiddu fjögur atkvæði með því að vísa tillögunni frá gegn þremur atkvæðum borgarráðsfull- trúa Sjálfstæðis- flokksins. Í bók- un meirihlutans segir að verk- bókhald sé þegar í notkun á ýms- um stöðum og það sé til skoð- unar að taka það upp á fleiri stöð- um. „Mat á þörf á því hvort skrif- stofa borgarstjóra og borgarritara þurfi á verkbókhaldskerfi að halda myndi því fara fram að undan- gengnu mati mannauðsstjóra og yfirmanna á skrifstofu borgar- stjóra og borgarritara,“ segir í bókun meirihlutans. Liður í að fara betur með fé Eyþór Arnalds, oddviti sjálf- stæðismanna, segir að á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara starfi 55 manns og kostnaðurinn sé yfir 800 milljónir kr. á ári. „Það hefur borið á því að stjórnkerfið er ekki skilvirkt og þá er eðlilegt að við séum með verkbókhald þannig að hægt sé að fá skýrari sýn á rekst- urinn og meiri árangur,“ segir hann. „Við sjáum á mörgu í kring- um borgina að það veitir ekki af góðu verkbókhaldi í stjórnkerfinu eða framkvæmdum. Þetta er liður í því að fara betur með fé. Þetta er annarra manna fé,“ segir Eyþór. Spurður út í bókun meirihlutans segir Eyþór rökstuðninginn engan vera. „Það eru auðvitað rök fyrir því að halda vel utan um verkin. Skuldir borgarsjóðs hafa verið að vaxa og stjórnkerfið að þyngjast.“ Segir algengt að málum sé vísað á ný og ný skrifborð „Meirihlutinn er að drepa mál- inu á dreif. Tillagan er skýr um að hafa verkbókhald eins og menn með nútímaupplýsingatækni geta mjög auðveldlega gert. Ég hef séð það oft í borginni að það er farið af stað í að skoða mál frá svo mörg- um hliðum að þau komast aldrei í verk,“ segir hann. „Það er mjög algengt að málum sé vísað á ný og ný skrifborð sem er ekkert nema kostnaðarauki og þynging á kerfinu. Það er miklu betra að taka af skarið og klára málin.“ Tillögu um verkbókhald vísað frá  Meirihlutinn í Reykjavík vísaði frá tillögu um að taka upp verkbókhaldskerfi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara  Eyþór Arnalds segir verkbókhald auka gagnsæi og skilvirkni í stjórnsýslunni Eyþór Arnalds Morgunblaðið/Valli Borgarráð Meirihlutinn segir verkbókhald þegar í notkun á ýmsum stöðum. Umræður hafa vaknað í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vegna heræfingar sem fyrirhuguð er í Þjórsárdal síðar í mánuðinum og hefur skrifstofa sveitarfélagsins fengið fyrirspurnir vegna þess. Björgvin Skafti Bjarna- son oddviti segir að málið hafi ekki verið borið undir sveitarstjórn og telur ekki ástæðu til að gera veður út af því í ljósi fjöldans sem tekur þátt og fyrri heræfinga í Þjórsárdal. Hann hefur þó þegið boð um að fulltrúi frá ríkislögreglustjóra komi og skýri út hvað fyrirhugað er að gera. Dagana 19. og 20. október verður haldin í Reykjavík skipulagsráð- stefna vegna varnaræfingar Atlants- hafsbandalagsins, Trident Juncture í Noregi. Von er á tíu herskipum hingað til lands með alls 6 þúsund sjóliða. Um leið verður efnt til svo- kallaðrar vetraræfingar í Þjórsárdal með 400 landgönguliðum hvorn dag. Skafti segir að lögreglan á Suður- landi hafi látið hann vita um fyrir- hugaða æfingu en vegna fyrirspurna sem bárust frá íbúum hafi hann haft samband við utanríkisráðuneytið til að fá nánari upplýsingar. Telur hann þetta ekki það mikinn fjölda her- manna sem komi til að ganga með bakpoka og byssur án skotfæra að ástæða sé til að gera athugasemdir. Þar sem þetta sé vetraræfing kveðst Skafti vona að það snjói eitthvað áð- ur en þeir koma. Þá verði lögreglu- menn með og gæti þess að allt fari vel fram. Heræfingar fóru oft fram í Þjórs- árdal á meðan varnarliðið var á Keflavíkurflugvelli. helgi@mbl.is Landgöngulið- ar í Þjórsárdal  Undirbúningur æfingar NATO Morgunblaðið/Ómar Hjálparfoss Landgönguliðar æfa í Þjórsárdal síðar í mánuðinum. Ökumenn sem ekki geta geymt bíla sína innandyra þurftu að skafa bílrúðurnar í gærmorgun. Hætt er við því að það þurfi einhverjir einnig að gera í dag. Spáð er suðaustanátt með skúrum eða slydduéljum, en að þá rofi smám saman til um landið norðanvert. Reiknað er með hlýnandi veðri þegar líður á vikuna þannig að þá geta geta ökumenn lagt sköfunum og kústunum í bili. Ökumenn hafa undanfarna daga verið hvattir til að undirbúa vetrarakstur með því að huga að dekkjaskipt- um og kaupa ísvara. Veturinn nálgast Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rúðusköfutímabilið er hafið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.