Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 7

Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 T- Roc. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 4.590.00 kr. Tiguan Allspace. 7 manna og rúmgóður. Verð 7.635.000 kr. Tilboðsverð 6.990.000 kr. fjölskyldan. Bíll ársins 2019 í flokki minni jeppa. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Formaður Landssambands kúa- bænda reiknar með því að umræður skapist um viðskipti með greiðslu- mark á haustfundum forystumanna með kúabændum. Arnar Árnason segir að núverandi kerfi sé gallað og útbúa þurfi nýtt kerfi í kjölfar at- kvæðagreiðslu um framtíð kvótakerf- is í mjólkurfram- leiðslu sem efnt verður til á næsta ári. „Við kynnum hvað er í gangi á vegum stjórnar- innar og hlerum grasrótina,“ segir Arnar þegar hann er spurður um verkefni haust- fundanna, en fyrstu tveir fundirnir voru haldnir í gær í Eyjafirði og Skagafirði. Fundahrinan stendur til 26. október. Samkvæmt gildandi búvörusamn- ingi í nautgriparækt eiga Bænda- samtök Íslands að efna til almennrar atkvæðagreiðslu meðal kúabænda á næsta ári um framtíð kvótakerfis í mjólkurframleiðslu. Arnar Árnason segir mikilvægt að flýta atkvæða- greiðslunni eins og hægt er. Núver- andi kerfi sé gallað og vísar þar til viðskipta með mjólkurkvóta sem fram fer fyrir milligöngu búnaðar- stofu Matvælastofnunar. Afar lítið magn er boðið fram og bændur reyna að óska eftir svo miklum kvóta, allt að þrefaldri landsframleiðslu, til að þeir fái eitthvað í sinn hlut. Arnar segir að það komi ekki á óvart að lítið magn sé í boði. Í búvöru- samningi sé kveðið á um stiglækk- andi innlausnarverð en það er á þessu ári rúmlega 120 krónur á lítra og lækkar niður í um 90 krónur á næsta ári. „Það er ekki óeðlilegt að menn sem hugsa sér að hætta haldi í sér og bíði eftir nýju kerfi. Það hamlar mjög framþróun og skaðar greinina ef greiðslumatið getur ekki leitað frá þeim sem vilja hætta til þeirra sem hafa byggt upp og vilja bæta við sig. Við þurfum að finna lausn á því,“ segir Arnar. Í samþykkt aðalfundar LK sl. vor kom fram stuðningur við framleiðslu- stýringu í formi greiðslumarks, ekki ósvipaða því kerfi sem nú er, en að móta þyrfti viðskipti með greiðslu- mark að nýju með þaki á verðið. LK og Bændasamtökin fengu Háskólann á Akureyri til að fara yfir núverandi kerfi hér og í nágrannalöndunum. Vonast Arnar til að niðurstaðan liggi fyrir áður en efnt verður til atkvæða- greiðslu um framtíð kvótakerfisins. Áfram kvóti eða ekki? Ekki er búið að ákveða hvernig bændur verða spurðir í atkvæða- greiðslu um kvótakerfið. Arnar reikn- ar með að spurt verði hvort viðkom- andi vilji áfram framleiðslustýringu í formi greiðslumarks. Ef svarið verði játandi verði boðið upp á einhverja valmöguleika sem frekar verði litið á sem skoðanakönnun um framhaldið. Ef svarið verður neitandi sé það ósk um að framleiðslustýring í núver- andi mynd verði lögð niður í sam- ræmi við gildandi búvörusamning. Segir Arnar að verði það niðurstaðan muni framleiðslutengdar bein- greiðslur færast úr því að miðast við greiðslumark yfir í greiðslur á alla framleidda mjólk. Það muni gerast í áföngum til ársins 2026. Innflutningur eykst Spurður um helstu áskoranir kúa- bænda nefnir Arnar aukinn innflutn- ing á mjólk og kjöti. Og hann bætir við: „Vegna þurrka í Evrópu og skógarelda í Bandaríkjunum mun framboð af nautakjöti aukast mjög á heimsmarkaði og innflutt kjöt verður ódýrara. Það mun hafa áhrif hér, eins og annars staðar. Þjóðir heims verða að gera það upp við sig hvernig þær ætla að standa þetta af sér. Slíkur innflutningur getur hæglega skaðað innlenda framleiðendur það mikið að þeir eigi ekki afturkvæmt á mark- aðinn þegar framboðið minnkar aftur,“ segir Arnar. Nýtt kerfi þarf fyrir kvótaviðskipti  Atkvæðagreiðsla um framtíð kvótakerfis í mjólkurframleiðslu er á dagskrá haustfunda kúabænda  Fyrirkomulag innlausnar mjólkurkvóta virkar ekki og skaðar greinina að mati formanns Morgunblaðið/Eggert Kýr á beit Kúabændur ræða hagsmunamál sín þessa dagana og vikurnar. Forystumenn þeirra nota tækifærið á haustfundum til að segja frá stöðu ýmissa mála, meðal annars sölu- og markaðsmálum, og kvótamálin eru rædd. Arnar Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.