Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
EFNAVARA FRÁ VWR
Fastus hefur nú hafið innflutning og sölu á efnavöru frá VWR.
Efnavörurnar frá VWR samanstanda af þeirra eigin framleiðslu sem býðst
nú á einstaklega góðu verði, ásamt efnavöru frá J.T.Baker, Honeywell,
Alfa Aesar og Acros Organics.
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér finnst að þér sótt úr öllum áttum.
Nú skaltu setjast niður og semja áætlanir um
framkvæmd þeirra hluta, sem þú hefur hing-
að til aðeins látið þig dreyma um.
20. apríl - 20. maí
Naut Óvæntar uppákomur á vinnustað koma
þér úr jafnvægi. Farðu á þínar uppáhalds-
slóðir og finndu þann frið og þá ró sem end-
urnýja þig til frekari athafna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt gott með að skoða umheim-
inn af eilítið meiri næmleika en ella. Fylgdu
eðlisávísun þinni og þá munu réttu svörin
birtast þér fyrr en síðar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert óvenju afkastamikill og ættir
að reyna að nota tækifærið til að koma skipu-
lagi á hlutina. Notaðu eigin dómgreind og
fylgdu þínu hjarta er taka þarf ákvörðun.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það ætti ekki að vera svo erfitt að finna
til ákefðar gagnvart lífinu. Gleymdu ekki að
vera til staðar og aðstoða vini þína sem á því
þurfa að halda.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnast öll spjót standa á þér og
langar mest að draga þig í hlé. Skoðaðu mál-
ið frá öllum hliðum og varastu að draga taum
eins aðila umfram annars.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekki við aðra að sakast, þótt allt
virðist ganga á afturfótunum. Efastu ekki um
hæfileika þína því þú ert baráttumaður og
hefur þann stuðning sem þú þarft á að halda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engu líkara en einhverju
moldviðri hafi verið þyrlað upp í kringum þig
og það er hætt við að viðskipti gangi brösug-
lega í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Útlitið er gott hvað varðar við-
skiptahugmyndir og áætlanir fyrir framtíðina.
Skemmtilegar fréttir berast þér frá vini.
Mundu bara að svo tekur alvaran við aftur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leyfðu velgengni annarra að vera
þér innblástur í stað þess að láta hana fara í
taugarnar á þér. Talaðu hreint út við vinnu-
félaga þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur átt erfitt með að einbeita
þér í vinnunni að undanförnu og þarft að
beita þig meiri aga. Kannski er nóg að þú
breytir viðhorfinu til vinnunnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þrátt fyrir aðdáun fjölskyldunnar og
vinnufélaga, hefurðu ekki alltaf nógu mikið
sjálfstraust. Á leið þinni að markmiði færðu á
tilfinninguna að þú sért að missa af ein-
hverju.
Sigurlín Hermannsdóttir segirfrá því á Leir að hún hafi fyrir
stuttu verið á ferð í Slóveníu og
heimsótt m.a. dropasteinshellana í
Postojna. – „Þeir eru ótrúlegt
undur, risahvelfingar sem fyrr á
árum voru notaðar sem dansleikja-
og tónlistarsalir. Í á sem rennur þar
neðan jarðar lifir undarlegt kvik-
indi sem menn trúðu að væri af-
kvæmi dreka,“ segir hún og birtir
þetta prýðis vel orta kvæði:
Lestin mig flytur lengst inní fjöll
á litlum teinum.
Í myrkrinu dansa dvergar og tröll
úr dropasteinum.
Ofar mér fljúga flögur og spjót
með flugbeittum eggjum.
Ég trúi því ekki að aðeins sé grjót
utan á veggjum.
Salir mér birtast hér, hvelfingar, hólf
svo hverfa sjónum.
Liggja þar stígar, lagt er í gólf
og með ljósakrónum.
Hér dönsuðu kóngar og drottningar
við dýrðarbeina.
Og tónlist sem galdrað menn geta
fram
þar er greypt í steina.
Verkið er unnið af aldanna kvörn
með ördropa laugun.
Í djúpinu leynast þar drekabörn
með dulin augun.
Þessa vísu Vatnsenda-Rósu
þekktu allir Íslendingar til skamms
tíma:
Enginn lái öðrum frekt
einn þó nái falla,
heldur gái að sinni sekt,
syndin þjáir alla.
Helga Halldórsdóttir frá Dag-
verðará segir frá því að Skáld-Rósa
hafi ort þessa vísu á morgunverðar-
stund eftir að unglingur kom inn í
baðstofuna og fjasaði um arnarflug
yfir líklega Straumfjarðará:
Lífsins heim við lítið skiljum,
lýðum gleymast fyrstu sporin.
Ernir sveima yfir hyljum
og þá dreymir lax á vorin.
Það er mér í fersku minni þegar
við Ari Jósefsson í 3. bekk Mennta-
skólans á Akureyri lærðum þessa
stöku Sigurðar Nordals, svo upp-
numdir vorum við:
Yfir flúðir auðnu og meins
elfur lífsins streymir
sjaldan verður ósinn eins
og uppsprettuna dreymir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í dropasteinshellum
og sitthvað fleira
„ÞAÐ ER RÉTT HJÁ HENNI. ÞÚ ERT MEÐ
STJÓRNUNARÁRÁTTU.“
„ÞÚ GETUR EKKI ÆTLAST TIL AÐ ÉG LÆRI
ALLT UM STARFIÐ Á TÍU MÍNÚTUM!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sækja í mjöllina.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER SEM SAGT AÐ
VERÐA FER TUGUR
SENNILEGA ÆTTI ÉG AÐ LÍTA
Á BJÖRTU HLIÐARNAR...
EFTIR TÍU ÁR FÆ ÉG ELDRI
BORGARA AFSLÁTT Í
KLEINUHRINGJABÚÐINNI!
VIÐ
DEYJUM
ALLIR!
AF HVERJU
GERIRÐU
ÞETTA?
VEGNA SLÆMRAR
HEGÐUNAR
YKKAR!
EN ÞÚ
SKAPAÐIR
OKKUR!
VIÐ ERUM
AFTURKALLAÐIR
Enn ríkir gleði á heimili Víkverjaeftir að Valsmenn lyftu Íslands-
meistarabikarnum í fótbolta. Það
mun vera annað árið í röð sem það
gerist og í 22. skiptið alls. Og verð-
skuldað var það, maður lifandi.
Smiðurinn geðþekki hefur sett sam-
an einstakt lið. Keppinautarnir voru
að þessu sinni úr Garðabæ og Kópa-
vogi en vaskir rauðliðar kláruðu
dæmið með stæl og þurfti Víkverji
litlar áhyggjur að hafa af loka-
umferðinni. Það setti að vísu smá
blett á fagnaðarlætin að KR-ingar
læddust einhvern veginn bakdyra-
megin í Evrópusæti. En Víkverji er
ekki að fara að missa svefn yfir þeim
tíðindum.
x x x
Helgin reyndist hin ágætasta fyrirVíkverja og hans fólk. Brugðið
var á það ráð að keyra austur fyrir
fjall og njóta síðustu daganna áður
en veturinn skellur á fyrir alvöru. Á
Flúðum var troðfullt bílastæðið við
Gömlu laugina sem ferðamönnum
hefur verið kennt að heiti Secret
Lagoon. Sú markaðssetning virkar
greinilega vel því þeir stóðu í röðum
Dacia-arnir. Bílastæðið á eþíópska
veitingastaðnum Minilik var sömu-
leiðis fullt á föstudagskvöldi. Greini-
legt er að ferðamannatímabilið er
engan veginn búið þótt komið sé
fram í október. Og þá er eftir að
minnast á stuttan bíltúr að Geysi á
laugardegi. Umferðin þar er orðin
eins og á millilandaflugvelli.
x x x
Víkverji hugsaði sér síðan gott tilglóðarinnar á sunnudag. Hug-
myndin var að klára helgina með
stæl yfir enska boltanum. Á dagskrá
var stórleikur Liverpool og Man-
chester City. Leikurinn reyndist svo
sem bærileg skemmtun en engin
voru mörkin. Þá hefði nú verið betra
að veðja á leik Fulham og Arsenal
fyrr um daginn sem skilaði sex
mörkum. Víkverja hættir til að
gleyma að leikir þessara minni liða
eru oft frábær skemmtun.
x x x
Besta ákvörðun helgarinnar var þólíklega sú að halda sig alfarið frá
fréttatímum og umræðuþáttum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður sem leitar hælis hjá
honum.
(Sálm: 34.9)