Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 ✝ ElínbjörgKristjánsdóttir fæddist á Litla- Kálfalæk á Mýrum 28. júlí 1933. Hún lést 1. október 2018. Fyrstu ár ævi sinnar bjó hún á Litla-Kálfalæk en faðir hennar, Kristján Guð- mundsson, sem kenndi sig við Hítarnes, var grenjaskytta og selveiðimað- ur. Móðir Elínbjargar var Guðrún Ágústa Gottskálks- dóttir húsfreyja, frá Brúar- hrauni. Faðir hennar var Gott- skálk Björnsson, líkkistu- smiður í Borgarnesi. Börn þeirra, auk Elínbjargar, voru Guðrún Elísabet, Þorsteinn mundur, f. 1962, k.h. Sóley Guðmundsdóttir og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Sigurður Þorsteinn, f. 1965, sem á þrjú börn, k.h. Manuela Madsen. Bragi Már, f. 1966, sem á eitt barn. Ester Rut, f. 1968, m.h. Þórir Sigurhansson og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. Guðrún Ágústa, f. 1970, m.h. Guðmundur Jóh- ansson og eiga þau þrjú börn. Davíð Haukur, f. 1971, k.h. Vigdís Viðarsdóttir og eiga þau tvö börn. Kári Freyr, f. 1974, k.h. Margrét Ósk Gunn- arsdóttir og eiga þau þrjú börn. Elínbjörg og Unnsteinn bjuggu mestallan sinn búskap í Breiðási 5 í Garðabæ. Eftir að Unnsteinn féll frá flutti Elínbjörg í Hafnarfjörð og seinna til Hveragerðis. Að síð- ustu flutti Elínbjörg að Boða- hlein í Garðabæ þar sem hún bjó til æviloka. Elínbjörg verður jarðsungin frá Garðakirkju í dag, 9. októ- ber 2018, klukkan 13. Valtýr, Sesselja Aníta og Sara Hulda Björk, sem er ein eftirlifandi af þeim syst- kinum. Elínbjörg giftist á nýársdag árið 1956 Jóni Unn- steini Guðmunds- syni en hann lést árið 1988. Þau eignuðust tíu börn: Pétur Ágúst, f. 1956, k.h. Jóna Kristín Freysteins- dóttir og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. Sigrún El- ísabet, f. 1957, sem á fjögur börn og fjögur barnabörn, m.h. Árni Hafþór Guðnýj- arson. Kristján Trausti, f. 1958, sem á eitt barn, k.h. Asela Cimafranca. Einar Guð- Elskuleg tengdamóðir mín, Ella, er látin, hún fór svo hljóð- lega frá okkur. Það koma upp ótal minningar um þessa merku lista- konu. Hún var glæsileg kona, hlý og góð manneskja, sem vildi öllum vel. Það lék allt í höndum hennar, hún hafði næmt auga fyrir list og allri sköpun. Hún átti verðlauna- garða, vann til verðlauna fyrir málverk sín og bútasaumsteppi. Hún saumaði dúka og prjónaði fallegar lopapeysur. Tengdafor- eldrar mínir eignuðust 10 börn, þau voru afskaplega stolt af þeim, Ella vann á saumastofu og saum- aði einnig mikið heima og börnin hennar sofnuðu við vélargný saumavélarinnar, ný flík að morgni, var eitt af hennar verk- efnum. Barnabörnin voru í pöss- un hjá ömmu, sem sagði svo skemmtilegar sögur. Það var dimman dag í mars- mánuði 1988 að tengdapabbi minn Unnsteinn Guðmundsson varð bráðkvaddur, stórt skarð var höggvið í fjölskylduna á Breiðási. Ella varð ekkja 53 ára gömul, en lífið hélt áfram. Tárin voru skilin eftir í koddanum á kvöldin, sorgarferlið hafði sinn gang. Hún var kletturinn í lífi barnanna sinna og okkar allra, það voru tvær vikur í fermingu yngsta barnsins, það þurfti að klára að sauma jakkafötin og mála stofuna og ýmislegt sem tengdist ferm- ingarundirbúningi. Elsku Ella mín, það er varla hægt að lýsa því hversu þakklát við Pétur erum fyrir hjálpsemi þína varðandi börnin okkar, frumburðurinn okkar, Guðlaug Ósk, dvaldi hjá þér um helgar á meðan ég var í vinnu og Pétur að vinna eða læra. Ævintýrin á Breiðásnum gerast bara í sögu- bókum. Þið Unnsteinn keyrðuð austur á Höfn til okkar við hin ýmsu tækifæri eða bara til að skoða náttúruna, sem var þér svo hugleikin, hvítir jöklar grænar grundir og úfinn sjór, haustlitir voru þínir uppáhaldslitir. Það var allt svo fallegt í þínum huga. Brynjar Þór naut nærveru ömmu eins og hin barnabörnin, hann eignaðist eitt af þínum dýrgrip- um, bútasaumsteppi sem þú saumaðir og gafst honum í ferm- ingargjöf. Fjársjóð minninganna geymd- ir þú í kommóðunni þinni í fallega svefnherberginu þínu, þú skrifað- ir dagbækur í tugi ára, þessar bækur skilur þú eftir handa börn- um þínum og barnabörnum. Með tár á hvarmi höfum við lesið og rifjað upp alla góðu tímana. Boða- hleinin er nú samverustaður okk- ar allra. Stærsti fjársjóðurinn ykkar Unnsteins eru börnin ykk- ar 10, fallegt og gott fólk, sem syrgja ykkur nú. Við fjölskyldan erum svo þakklát fyrir tímann með þér 1. september við skírn Elddísar Helgeyjar. Þú hafðir orð á því hvað presturinn væri skemmtilegur og góður, séra Guðni Már mun nú jarðsyngja þig, blessa þig og varðveita minn- ingu þína. Ein af þínum síðustu dagbók- arfærslum var 29. september, Pétur hringdi, fæddur er drengur í Kaupmannahöfn, sonur Brynj- ars og Louise, við erum svo þakk- lát fyrir að þú sást mynd af litla drengnum þeirra nýfæddum. Það veit ég að hún er að passa litla drenginn og hugsa vel um hann. Nú er komið að leiðarlokum og þið Unnsteinn eruð sameinuð á ný. Takk fyrir allt og allt, elsku Ella mín. Kveðja frá okkur, Jóna Kristín Freysteins- dóttir, Pétur Ágúst Unn- steinsson. Elsku amma mín. Nú ertu far- in frá okkur, enn í blóma lífsins, hress og kát, þótt þú værir komin vel á níræðisaldurinn. Ég er svo innilega þakklát fyrir að hafa heimsótt þig í síðustu viku og tek- ið gott spjall að vanda. Ég mun sakna spjallanna okkar um allt milli himins og jarðar, ekkert var heilagt í umræðuefnum okkar og hreinskilnin alger sem einkenndi okkur báðar og gerði umræðuefn- in líflegri. Mér fannst stundum eins og ég væri að tala við unga konu sem ætti allt lífið fram undan, þú varst alltaf fordómalaus, vildir öllum vel og varst með puttann á púls- inum um málefni líðandi stundar. Ég vildi óska að við hefðum haft meiri tíma því mig langar enn að vita svo margt um þig og hvernig þú fórst að með öll þín tíu börn og afi mikið í burtu. Öll eru þau enn hér, heilbrigð og hraust og það er þér að þakka. Ég veit að þú varst afar stolt af þeim og mátt líka vera það. Ég átti líka eftir að læra svo mikið af þér því að listakona varstu mikil og málverkin þín urðu fleiri og vandaðri eftir því sem tímanum leið og endalaust gat ég dáðst að handverkinu þínu og get aldrei þakkað þér nægilega fyrir alla hjálpina með mitt eigið. Ég átti alltaf eftir að biðja þig að mála fyrir mig landslagsmynd af fjalla- og jökladýrðinni heima á Höfn en það verður þá verkefni fyrir mig sjálfa í framtíðinni. Ég mun aldrei gleyma því hvernig það var að koma og heimsækja þig á Brei- ðásinn þegar ég var lítil, það var eins og að koma í annan heim, smekkfullt hús af fólki og dýrum í hverju herbergi hússins og meira að segja dúfnakofi á þakinu um tíma og ég gleymi aldrei nag- grísunum inni á baðherbergi því það var jú hver krókur og kimi nýttur vel. Ég var handviss um að það væru ekki til skemmtilegri heimili. Þú talaði alltaf svo vel um dýr- in þín, fólkið þitt, barnabörnin og barnabarnabörnin þín fannst þér öll svo dugleg og klár og þú gast endalaust talað um þau. Meiri hundaunnanda hef ég ekki hitt og ég hef ekki tölu á hvað þeir voru margir sem fylgdu þér á lífsleið- inni, en eitt er víst að Bjössi er með þér núna. Ég er svo glöð að hafa fengið að hafa þig nær mér síðustu árin og var farin að hlakka til að fá þig með mér í hugmynda- vinnu fyrir garðinn næsta sumar því að þú varst einstaklega mikill fagurkeri þegar kemur að falleg- um görðum og viðhaldi þeirra og átt jú mörg verðlaun fyrir. En við fengum þó dýrmætar stundir saman síðustu ár eftir að styttra var á milli okkar og stelp- urnar mínar fengu að kynnast þér og knúsa áður en þú fórst og það er ómetanlegt. Við eigum eftir að hittast aftur á öðrum stað og þá tökum við upp þráðinn aftur. Elsku amma mín, takk fyrir allt og hvíldu í friði. Hvíldu í friði elsku amma mín með afa ert nú aftur stóra ástin þín. Tíminn þinn hér liðin, en ekki afrek þín, börnin þín og kraftur, aðeins í augsýn. Þín bíður annar staður, ný útsýn. Í dvala þinn lífskraftur. Ég mun sakna þín. Þín Guðlaug Ósk, Stefán, Frey- dís Sóley og Elddís Helgey. Elsku amma. Okkur þykir svo óendanlega vænt um þig. Þú varst svo um- hyggjusöm, skilningsrík og já- kvæð, og hafðir svo hlýja og góða nærveru. Þú áttir svo margar skemmtilegar sögur. Við gátum setið endalaust og hlustað á þig. Það var svo yndislegt að koma í heimsókn til þín, því manni leidd- ist aldrei. Þú fannst alltaf eitt- hvað sniðugt og öðruvísi til að gera, og gerðir fallegustu fíflakr- ansana fyrir okkur. Við eigum svo margar góðar minningar um þig, sem ylja okkur um hjartarætur. Eins og þegar þú settir málningu í spreybrúsa og leyfðir mér að mála í snjóinn og við bjuggum til svo fallegan garð fyrir utan hjá þér í stóran snjóskafl. Það var svo notalegt andrúms- loft hjá þér að okkur langaði aldr- ei að fara heim. Ég man eftir því þegar við fórum í heimsókn til þín og ég sofnaði í sófanum hjá þér og þú breiddir yfir mig teppi. Svo vaknaði ég við það að Kofri var að sleikja á mér puttana. Mér þykir svo leitt að ég náði ekki að koma til þín til að læra að sauma. Ég lofa þér að ég ætla að halda áfram að sauma, fyrir þig. Þú hlóst aldrei að okkur heldur alltaf með okkur, og hvattir okkur til að halda áfram að vera við sjálf. Við elskum þig og söknum þín að eilífu. Theodóra Líf Káradóttir og Unnsteinn Rúnar Kárason. Elínbjörg Kristjánsdóttir ✝ Bára Angan-týsdóttir fædd- ist í Keflavík 31. október 1944. Hún andaðist á Hrafn- istu í Kópavogi 29. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Angantýr Guðmundsson skipstjóri, f. 1. júlí 1916, d. 21. maí 1964, og Arína Þórlaug Íbsensdóttir ritari, f. 11. september 1923, d. 14. október 1994. Systkini Báru eru: a) Íbsen, fyrrverandi skip- stjóri, kvæntur Huldu Guð- mundsdóttur. b) Auður hjúkrunarfræðingur, látin. c) Haukur efnafræðingur, látinn. d) Ólafur Óskar fjölmiðlafræð- ingur, látinn. e) Guðrún fram- haldsskólakennari, gift Viðari Má Matthíassyni. Uppeldis- systir Báru var Soffía Jóna Vatnsdal Jónsdóttir, látin. Bára giftist Einari B. Sigur- geirssyni, f. 22. júní 1943, þann 30. ágúst 1969 í Reykjavík. Börn þeirra eru: a) Angantýr, f. 21. janúar 1970, kvæntur Þórunni Ragnarsdóttur, börn þeirra eru Andri Þór, kærasta Nicole Curtis, Lísa Margrét, Einar Örn og Arína Bára. b) Sigríður, f. 29. janúar 1973, gift Þorsteini Jóhannessyni, synir þeirra eru Helgi Freyr, kærasta Margrét Dögg Vigfús- ardóttir, og Hafsteinn Snær. c) Ragna Björk, f. 10. janúar 1975, gift Heiðari Sigurðssyni, dætur þeirra eru Anna Regína, í sambúð með Hlyni Kristjáns- syni og eiga þau óskírða dóttur, f. 2. september 2018, og Elín Ása, í sambúð með Marteini Ei- ríkssyni. Bára flutti fjög- urra ára gömul á Flateyri með fjöl- skyldunni þar sem þau bjuggu næstu fimm árin. Þegar Bára var níu ára flutti fjölskyldan aftur til Keflavík- ur, þar sem Bára ólst upp í stórum systkina- og vinahópi. Það var svo árið 1961 þegar faðir hennar fór að starfa fyrir Ísbjörninn að fjöl- skyldan flutti í Goðheimana í Reykjavík. Nokkrum árum síð- ar lét Bára draum sinn um snyrtifræði rætast þegar hún fór til náms í snyrtifræði í London og starfaði á snyrti- stofunni í Bændahöllinni (Hótel Sögu). Árið 1968 setti hún á laggirnar litla snyrtistofu við Grenimel í Reykjavík. Stuttu síðar kynntist hún eiginmanni sínum, Einari Sigurgeirssyni, þegar hún leysti af á Gullfossi sem þerna og skömmu síðar voru þau gefin saman og hófu búskap og stofnuðu fjölskyldu. Frá árinu 1970 til 1980 var Bára heimavinnandi, en hóf svo störf við ræstingar í Lands- bankanum og fljótlega upp úr því var hún ráðin við almenn afgreiðslustörf í bankanum. Hún óx svo í starfi innan bank- ans og sinnti þar ýmsum störf- um þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útför Báru fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti í dag, 9. október 2018, klukkan 13. Í dag verður Bára systir mín lögð til hinstu hvílu og langar mig að minnast hennar í fáein- um orðum. Bára átti góða bernsku. Hún fæddist í Keflavík en flutti ung að árum til Flateyrar með fjöl- skyldunni. Pabbi var skipstjóri á fiskibát og fjölskyldan flutti með þangað sem fiskinn var að hafa. Þegar hún var níu ára flutti fjölskyldan aftur til Keflavíkur og þar ólst hún upp í stórum systkina- og vinahópi. Eftir gagnfræðapróf fór Bára að vinna sem skipsþerna á Gull- fossi. Hún vann þar um tíma en fór síðan og lærði snyrtifræði í London. Mér fannst ævintýri líkast að fá að fylgjast með systur minni í siglingum og í snyrtinámi í út- löndum. Þegar hún sneri heim aftur vann hún á snyrtistofu á Hótel Sögu, en stofnaði síðan eigin stofu sem hún rak um skeið. Bára kynntist eiginmanni sín- um, Einari Sigurgeirssyni, árið 1968 og voru þau gefin saman ári seinna. Einar og Bára voru alla tíð samhent hjón. Fyrir 50 árum þurfti að hafa mikið fyrir því að eignast húsnæði og lán í banka var ekki sjálfgefið. Bára var útsjónarsöm í að afla tekna. Meðal annars fór hún aftur sem þerna á Gullfoss um sex mánaða skeið til að geta fengið lífeyrissjóðslán. Þá fékk ég sem unglingur það hlutverk ásamt mömmu að annast litla drenginn þeirra, Angantý. Þegar Bára rak snyrtistof- una ferðaðist hún um Vestfirði. Fengu margir fótalúnir bót á meinum sínum og frúrnar hand- og andlitsnyrtingu. Þeg- ar hún var í þessum vinnuferð- um gisti Angantýr hjá okkur mömmu og Óla bróður. Þannig kynntist ég vel ungu fjölskyldunni, dugnaði þeirra hjóna og samheldni. Oft á ung- lingsárum mínum þegar hjónin þurftu að bregða sér af bæ passaði ég börnin, sem fljótlega urðu þrjú. Bára launaði mér greiðann nokkrum árum seinna þegar ég var í kennaranámi og þurfti að fá pössun fyrir nýfæddan elsta son minn, Loga. Bára var góð móðir og amma. Heimili hennar var ávallt snyrtilegt og fallegt. Þegar hún fór aftur út á vinnumarkaðinn eftir að börnin voru komin í skóla vann hún í Landsbank- anum. Þar vann hún fram að starfslokum. Við systkinin og fjölskyldur ásamt mömmu (meðan hún lifði) vorum samhentur hópur og komum oft saman. Margra samverustunda er ljúft að minnast, en fyrir mér voru minnisstæðastar þær stundir sem þau Bára og Einar áttu með okkur stórfjölskyldunni í Ármúla við Ísafjarðardjúp. Seinasta heimsókn þeirra og Auðar systur var berjaferð haustið 2014. Þá voru þær syst- ur báðar orðnar veikar og hvor- ug átti þess kost að koma aftur vestur. Bára glímdi við erfið veikindi seinustu árin og var aðdáun- arvert að sjá hve vel Einar og Sigríður dóttir hennar, sem býr í Reykjavík, hugsuðu um hana. Það hlýtur að vera skelfilegt að vera fangi í eigin líkama og geta hvorki tjáð sig né hreyft. Bára tók þessum örlögum sín- um með æðruleysi. Hún var alltaf glöð þegar ég kom í heim- sókn. Nú er hún farin og ekki leng- ur gestur „á Hótel jörð“. Ég og fjölskylda mín vottum Einari, börnum þeirra, barna- börnum og langömmubarninu okkar dýpstu samúð. Með söknuði kveðjum við Báru en erum þakklát fyrir öll árin sem við áttum saman. Hvíl í friði, kæra systir. Guðrún Angantýsdóttir. Bára Angantýsdóttir Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og sonur, ÞORSTEINN HELGI MAGNÚSSON, Lækjartúni 3, Mosfellsbæ, lést á Brákarhlíð í Borgarnesi föstudaginn 14. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki Brákarhlíðar einstaka hlýju og nærgætni. Guðrún Margrét Jóhannsdóttir Áslaug Erlín Þorsteinsdóttir Arnar Proppé Erlín Hrefna Arnarsdóttir Arnþór Björn Arnarsson Helga Guðbjörnsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDUR SIGURÐARDÓTTIR, Stella, til heimilis á Dvalarheimili Stykkishólms, lést á St. Fransiskusspítala, Stykkishólmi 4. október. Útför verður auglýst síðar. Aðstandendur Ástkær sambýliskona mín, móðir, dóttir, tengdamóðir, amma og systir, BERGLIND GUÐMUNDSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn 28. september. Hún verður jarðsungin frá Bessastaðakirkju fimmtudaginn 11. október klukkan 13. Geir Magnússon Linda María Geirsdóttir Freyja Björk Geirsdóttir og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.