Morgunblaðið - 09.10.2018, Page 36
Tónlistarmennirnir Daníel Friðrik
Böðvarsson og Megas halda tón-
leika í Iðnó í kvöld sem eru hluti af
Mengi Series, tónleikaröð menn-
ingarhússins Mengis í Iðnó. Á efnis-
skránni verða ný og eldri lög sem
ekki hafa birst alþýðu manna með
einum eða öðrum hætti, hafa ekki
verið réttu lögin á þessa eða hina
efnisskrána eða líkt og fallið milli
skips og bryggju og orðið útundan
án þess að hafa nokkuð til þess
unnið, eins og segir í tilkynningu.
Enn fremur verða nokkur sýnishorn
frá verkum í vinnslu.
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Vonir standa til þess að karlalið
Gróttu fái heimild til þess að leika
sinn fyrsta heimaleik í Olísdeild
karla í handknattleik á þessu
keppnistímabili á sunnudaginn, en
mistök við hönnun og viðbyggingu í
sumar urðu þess valdandi að
keppnissalur félagsins er ekki lög-
legur eins og sakir standa. Var
salurinn styttur í sumar. »1
Stórkostlegt klúður
á Seltjarnarnesi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Eins og staðan er í Garðabæ um
þessar mundir virðist sem Sebast-
ian Alexandersson, þjálfari liðsins,
sé nánast að byggja lið upp frá
grunni. Að fá á sig 47 mörk í einum
leik er svo sannarlega eitthvað sem
má vinna út frá. Hvað sem hver
segir er ljóst að það ríkir kreppa í
meistara-
flokksliði
Stjörnunnar
um þessar
mundir,“ segir
meðal annars í
umfjöllun um síðustu
umferð í Olísdeild
kvenna í handknatt-
leiknum. Lið umferð-
arinnar er jafnframt
birt í blaðinu í dag.
»4
Kreppa ríkir hjá
konunum í Garðabæ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókabankinn í Kolaportinu á sína
föstu viðskiptavini og Rúnar Sig-
urður Birgisson fornbókasali segir
að þeim fari stöðugt fjölgandi. „Það
er mikilsvert hvað við höfum góðan
aðgang að menningararfinum og
góðum og gömlum bókum. Fram-
tíðin í bóksölu er mjög björt, þótt
stundum megi heyra einhverja
halda öðru fram,“ segir hann.
Rúnar segist hafa byrjað að safna
bókum þegar hann var sjö ára og
bækur um þjóðlegan fróðleik hafi
átt hug hans allan. „Það var það
óvanalegt að konurnar á bókasafn-
inu þar sem ég grúskaði fyrst
hringdu alltaf í mömmu og spurðu
hvort ég mætti fá tilteknar bækur
eða ekki,“ rifjar hann upp. „Síðan
hef ég verið forfallinn bókaáhuga-
maður.“
Tilviljun réð því að Rúnar varð
bóksali í Kolaportinu upp úr alda-
mótunum. Hann segist hafa byrjað
smátt en bætt við jafnt og þétt.
„Salan hefur stöðugt vaxið,“ segir
hann. „Bóklestur á Íslandi hefur
enda ekkert minnkað heldur hefur
fólkinu fjölgað.“
Unga fólkið mikilvægt
Rúnar segist alla tíð hafa lagt
áherslu á að sinna unga fólkinu.
Áhuginn hafi verið endurgoldinn
margfalt, því þess séu mörg dæmi
að krakkar sem hafi byrjað að koma
í Bókabankann í grunnskóla hafi
haldið því áfram. „Ég er enn að
fóðra þessa krakka, sem eru orðnir
fullorðnir, jafnvel búnir með há-
skólanám og komnir með heimili, á
bókum. Þetta er mjög gefandi og
það er gaman að geta boðið öllum til
veislunnar í Kolaportinu.“
Mest eftirspurn er eftir þjóð-
legum fróðleik og ljóðum, að sögn
Rúnars. „Þjóðlegi fróðleikurinn er
góður spegill á þjóðarsálina á hverj-
um tíma,“ segir hann. Íslendinga-
sögurnar, þjóðsögur og sagnaþættir
gangi líka alltaf enda mjög áhuga-
vert efni. Rúnar segir að mikil
gróska sé í miðaldafræðum og út-
lendingum sem hafi áhuga á íslensk-
um bókmenntum fjölgi ört. Margir
tali íslensku og enn fleiri skilji hana
og lesi. „Erlendir fræðimenn og
safnarar vita hvað þeir vilja og hafa
oft samband, því að fenginni reynslu
er þeim kunnugt um að þeir geta átt
von á að fá ýmislegt hjá mér sem
þeir hafa gefist upp á að finna, með
það í huga að lengi er von á einni.“
Erlendir ferðamenn láta sitt ekki
eftir liggja. Rúnar segir að þeir
kaupi oft íslenskar bækur frekar en
minjagripi. Ljóðabækur séu vinsæl-
ar hjá þeim og þeir biðji gjarnan um
bækur með ástarljóðum. „Aðal-
atriðið hjá mér er að velja réttu bók-
ina fyrir viðskiptavininn og þá skipt-
ir ekki máli hvort hann er íslenskur
eða erlendur,“ segir Rúnar. „Mestu
skiptir að vera heiðarlegur í því sem
maður er að gera, því þá eru allir
vegir færir og það verður alltaf
pláss fyrir bækur og pappír í
hillum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bókabankinn Rúnar Sigurður Birgisson fornbókasali á sínum stað í Kolaportinu í miðbæ Reykjavíkur.
Mikill áhugi á ljóðum
og þjóðlegum fróðleik
Rúnar Sigurður Birgisson segir framtíðina bjarta í bóksölu
DUCA Model 2959
L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,-
L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 295.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
MENTORE Model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 299.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 329.000,-
Daníel og Megas í Iðnó