Morgunblaðið - 15.10.2018, Side 2

Morgunblaðið - 15.10.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku Ath að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a 595 1000 Frá kr. 59.995 17 OKTÓBER Í 4 NÆTUR u. Ath .a ðv er ðg etu rb re yst án fyr irv ar a. . Ljubljana Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lengi hefur verið sagt að lengsta orð íslenskrar tungu sé Vaðlaheið- arvegavinnuverkfærageymslu- skúrslyklakippuhringurinn. Oftast hefur þessu verið haldið fram sem brandara og fæstir velt fyrir sér að þetta þarfaþing er til í raun og veru. En nú er stykki þetta loksins fundið og til á ljósmynd! Framkvæmdum við gerð Vaðlaheiðarganga lýkur eftir um mánuð og við munna þeirra Eyja- fjarðarmegin eru vinnubúðir og að- staða þeirra manna sem verkinu sinna. Þar er meðal annars skúr þar sem eftirlitsmenn með fram- kvæmdinni geyma tæki sín og verk- færi og í jakkavasa sínum er Stefán Geir Árnason, jarðverkfræðingur frá verkfræðistofunni Eflu, með á kippu lykla að skúrnum. Stefán er því meðal handhafa að hinum eina og sanna Vaðlaheiðarvega- vinnuverkfærageymsluskúrs- lyklakippuhring! „Við erum með nokkrar svona kippur hér tiltækar á snögum og kannski má segja að þetta séu lykl- arnir að íslenskri tungu. Ég er hins vegar jarðbundinn maður enda jarðverkfræðingur svo ég er nú ekki mikið að kippa mér upp við þetta,“ segir Stefán Geir sem hefur starfað við gangagerðina síðastliðin fimm ár. Sextán atkvæða þula Aldrei verður hægt að slá því föstu að „Vaðalheiðarvega- vinnuverkfærageymsluskúrs- lyklakippuhringurinn“ sé lengsta orð tungunnar, að sögn Ara Páls Kristinssonar, prófessors við Árnastofnun. Í eðli tungumálsins búi að hægt sé að bæta endalaust við einstök orð svo úr verði nokk- urskonar bandormur. Almennt verði orð á íslensku ekki meira en átta atkvæði. Ef þau verði lengri sé hætta á að þeir sem lesi eða heyri tapi þræði og athygli. Um- rætt orð, kennt við skúr vega- vinnumanna í Vaðalheiðinni, sé hins vegar 16 atkvæði og því upp- lifi fólk það sem þulu, tilbúning eða gerviorð. Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúrslyklakippuhringurinn Lengsta orð íslenskrar tungu nú á ljósmynd Ljósmynd/Valgeir Bergmann Lykilmaður Stefán Geir Árnason jarðverkfræðingur með kippuhring sem á eru lyklar að verkfærageymsluskúrnum í Vaðlaheiði. Þar inni eru meðal annars þau mælitæki sem verkfræðingar við gangagerðina nota. Þór Steinarsson thor@mbl.is Þjófnaðurinn á skútunni Inook úr Ísafjarð- arhöfn aðfaranótt sunnudags var vel skipu- lagður og krafðist aðkomu eins eða fleiri manna sem kunnu til verka. Þetta segir heim- ildarmaður Morgunblaðsins á Ísafirði. Fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöldi að varðskipið Þór og þyrla Landhelgisgæslu Ís- lands hefðu veitt skútunni eftirför í gær eftir að lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðstoð við að finna skútuna. Samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni var þyrlan send í loftið um tvöleytið í gær eftir að beiðni um aðstoð barst. Þyrlan fann skútuna fljótlega og í kjölfarið var varðskipið Þór sent á vettvang til að sigla í veg fyrir hana og fylgja henni til hafnar á Rifi á Snæfellsnesi. Þyrlan var svo send aftur til Reykjavíkur til að ná í tvo sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra og tvo frá séraðgerðasviði Landhelgisgæslunnar og flytja þá á Rif til að taka á móti skútunni. Skipstjóri skútunnar var handtekinn við komuna þangað um klukkan níu í gærkvöldi. Hann var einn á ferð, að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum, sem vill ekki gefa upp þjóðerni mannsins. Verður hann yfirheyrður í dag. Málið er sagt vera mjög dularfullt, meðal annars vegna þess að mjög erfitt var að fram- kvæma þjófnaðinn og eru aðrar skútur sagðar hafa legið betur við höggi í höfninni á Ísafirði. Auk þess vekur tímasetning þjófnaðarins spurningar en einungis eru nokkrir dagar síð- an eigandi skútunnar var staddur á Ísafirði. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði skútunni verið siglt til Ísafjarðar fyrr í haust og til stóð að geyma hana þar í vetur. Aðstæðum er lýst þannig að skútan Inook hafi verið bundin við tvær aðrar skútur aftast í höfninni á Ísafirði og fyrir framan þær hafi þrjár aðrar skútur legið bundnar saman. Til að koma Inook úr höfninni þurfti því að leysa skúturnar fyrir framan og færa að minnsta kosti eina þeirra frá. Gerandinn skilaði svo skútunni á sinn stað og batt skúturnar aftur saman nákvæmlega eins og eigendur þeirra gengu frá þeim. Það er því ekki talin tilviljun að Inook hafi verið stolið og gefur til kynna að þjófnaðurinn hafi verið vel undirbúinn. „Þegar ég kem um borð í bátinn hjá mér lít- ur allt eðlilega út og allt var bundið eins og ég gekk frá því. Það er eins og bátnum [Inook] hafi verið lyft upp og farið með hann í burtu. Þetta er hið undarlegasta mál,“ segir Halldór Sveinbjörnsson, sem á eina af skútunum sem voru nálægt Inook, í samtali við Morgunblað- ið. Veittu stolinni skútu eftirför  Þjófnaðurinn er talinn hafa verið vel undirbúinn  Einn maður var handtekinn grunaður um þjófn- aðinn og verður hann yfirheyrður í dag  Eigandi skútunnar var staddur á Ísafirði fyrir 4 dögum Morgunblaðið/Alfons Þjófnaður Skútan Inook kom að landi á Rifi um níuleytið í gærkvöldi. Einn maður var um borð. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lögin um að heimila ráðherra að veita fiskeldisfyrirtækjum rekstrar- leyfi til bráðabirgða ganga hvorki í berhögg við lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála né ákvæði Árósasamningsins. Kemur þetta fram í greinargerð með frum- varpi sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra en lögin voru samþykkt í síðustu viku. Jón Þór Ólason, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur og lektor við lagadeild Háskóla Ís- lands, og Sif Konráðsdóttir, lögmað- ur og fyrrverandi aðstoðarmaður umhverfisráðherra, gagnrýndu lagasetninguna og málsmeðferð við hana í viðtals- þætti Bjartar Ólafsdóttur, Þingvöllum, á út- varpsstöðinni K100 í gærmorg- un. Sif sagði að lögin græfu und- an sjálfstæði úr- skurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og Jón Þór sagði að lögfræðilega væri þetta stórslys. Úrskurðum ekki haggað Þessum athugasemdum var í raun svarað fyrirfram í greinargerð með fiskeldisfrumvarpinu. Þar kem- ur fram að ekkert tilefni sé til að ætla að það stangist á við stjórn- arskrá eða alþjóðlegar skuldbind- ingar. Bent er á að Árósasamningurinn leggur fyrst og fremst skyldur á ríkin að fylgja ákveðnum málsmeð- ferðarreglum í málum sem varða umhverfið. Með fullgildingu hans tóku gildi lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem sé sjálfstæð í sínum störfum og úr- skurðir hennar séu fullnaðarúr- skurðir á stjórnsýslustigi. „Með frumvarpi þessu er hvorki gengið í berhögg við umrædd lög né ákvæði Árósasamningsins. Þannig er gildi úrskurða nefndarinnar í engu haggað með frumvarpi þessu og þeir áfram fullnaðarúrskurðir á stjórnsýslustigi,“ segir í greinar- gerðinni. Brýtur ekki í bága við lög eða skuldbindingar  Lögfræðingar og áhugafólk um náttúruvernd gagnrýna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.