Morgunblaðið - 15.10.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.10.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Innanríkisráðherra Ítalíu hefur skipað hundruðum flóttamanna að yfirgefa smábæinn Riace, í Cal- abria-héraðs á Ítalíu. Ákvörðunin, sem kemur í kjölfar handtöku á bæjarstjóra Ricae, Domenico Lucano, hefur í för með sér að verkefni sem færði bæði flóttafólki og Ítölum atvinnu verður lagt niður. Bæði Lucano og Mario Oliverio, héraðsstjóri Calabria, hafa mót- mælt ákvörðun innanríkis- ráðherrans. Oliviero sagði að ákvörðunin væri „fáránleg og óréttmæt“. Lucano, sem hefur hlotið verð- laun fyrir vinnu sína í flóttamanna- málum, var handtekinn fyrir að hvetja til ólöglegs innflutnings flóttafólks. Aðalásökunin á hendur bæjar- stjóranum er sú að hann hafi skipu- lagt hagkvæmnishjónabönd. Sú ásökun varð til eftir að upp komst að hann hjálpaði nígerískri konu og ítölskum manni að gifta sig svo konan slyppi við að vera þvinguð í vændi í Napólí. ÍTALÍA AFP Hundruðum skipað að yfirgefa landið Fimm suðurkór- eskir fjall- göngumenn og fjórir nepalskir leiðsögumenn létu lífið í grunn- búðum í Hima- lajafjöllunum á laugardag þegar stormur eyði- lagði búðir þeirra. Slysið er sagt versta fjallgönguslys í Nepal á síð- ustu tveimur árum. Borin hafa verið kennsl á öll líkin en meðal hinna látnu er Kim Chang-ho sem er frægur fyrir að hafa verið sá fyrsti til að klífa fjór- tán hæstu fjöll heims án þess að nota auka-súrefnisbirgðir. Chang-ho leiddi gönguna en hóp- urinn var í 3.500 metra hæð þegar stormurinn skall á. Átta af fjórtán hæstu fjöllum heims eru í Nepal og afla tindarnir landinu mikilla tekna. NEPAL Níu manns létust í Himalajafjöllum Bæverskir bandamenn An- gelu Merkel, kanslara Þýska- lands, í Kristi- lega sósíal- sambandinu (CSU), fengu sögulega lélega kosningu í kosn- ingum í Bæjaralandi í gær. Flokkurinn hlaut 35,5% atkvæða sem er 12 prósentum minna en í síð- ustu kosningum. Hann missir þar með meirihluta sinn og þarf að reyna að mynda nýjan meirihluta með öðrum flokkum. Flokkurinn hefur nánast verið einráður í Bæj- aralandi síðan 1960. Flokkurinn Annar kostur fyrir Þýskaland, sem talar gegn múslim- um og fyrir afsögn Merkel, fékk 11% atkvæða. Sósíaldemókratar misstu stöðu sína sem næststærsti flokkurinn. ÞÝSKALAND Slæmt gengi bandamanna Merkel Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Um 300.000 heimili í Portúgal urðu rafmagnslaus eftir að leifar fellibyls- ins Leslie skullu á norðurhluta og miðju landsins seint á laugardags- kvöld. Leifarnar höfðu í för með sér mikla rigningu, snarpar vindhviður og talsverðan öldugang. Vegum lokað og flugi aflýst Að minnsta kosti 27 manns slösuð- ust lítillega en enginn alvarlega sam- kvæmt BBC. Þúsundir trjáa rifnuðu upp með rótum, aðallega í strandbæjum norð- an við höfuðborg Portúgals, Lissabon. Trén skullu á rafmagnslínum og þver- uðu vegi. A1, aðalþjóðvegi Portúgals, var lok- að tímabundið vegna trés sem hafði fallið á hann. Mörgum flugferðum var einnig aflýst vegna óveðursins. Svæðin í kringum Lissabon fóru einna verst út úr óveðrinu ásamt um- dæmunum Combra og Leiria. Borg- irnar Aviero, Viseu og Porto urðu einnig fyrir tjóni en þær eru í Norður- hluta landsins. Stormurinn er einn sá kraftmesti sem hefur skollið á Portúgal en vind- hraðinn mældist allt að 50 metrar á sekúndu þegar mest lét. Það er mjög sjaldgæft að fellibyljir af Atlantshafi skelli á Íberíuskagan- um. Einungis er vitað til þess að það hafi gerst fimm sinnum. Rúlluskautahokkí stöðvað Þakið fauk af íþróttaleikvangi þar sem Evrópumót kvenna í rúllu- skautahokkíi fór fram. Viðburðurinn var stöðvaður af þeim sökum. Tæplega tvö þúsund atvik voru skráð hjá viðbragðsaðilum en yfir- maður almannavarna í landinu, Luis Belo Costa, sagði í gær að versta óveðrið væri yfirstaðið. Fellibylurinn myndaðist 23. sept- ember en var skilgreindur sem hita- beltisstormur áður en hann skall á Portúgal seint á laugardag. Yfirvöld höfðu þá hvatt íbúa til að dvelja innandyra og halda sig frá strandsvæðum. Þúsundir trjáa rifnuðu upp  27 manns slösuðust þegar leifar fellibylsins Leslie skullu á Portúgal  Einn kraftmesti stormur í sögu Portúgals  Vindhraði allt að 50 metrar á sekúndu AFP Björgunarstarf Slökkviliðsmenn fjarlægja fallin tré af vegi í Portúgal eftir að leifar af fellibylnum Leslie skullu á landinu á laugardagskvöld. Salvadoríski erkibiskupinn, Óscar Romero, komst í dýrlingatölu þeg- ar Frans páfi veitti honum þann heiður við athöfn í Vatíkaninu um helgina. Romero var myrtur af her- mönnum þegar hann messaði árið 1980. Morðingjarnir hafa aldrei verið sóttir til saka. Biskupinn talaði fyrir friði í borgarastyrjöld í El Salvador sem stóð frá 1980 til 1992. Í síðustu pre- dikun sinni sagði Romero: „Ég hvet ykkur, ég bið ykkur, ég skipa ykk- ur í nafni Guðs: hættið kúguninni.“ Daginn eftir að Romero flutti pre- dikunina var hann skotinn til bana. Frans páfi lofaði Romero fyrir að tala fyrir friði og einnig fyrir að fórna eigin öryggi til þess að vera nærri fátæku fólki og söfnuði sín- um. Við athöfnina var Frans með sama belti og Romero hafði verið með þegar hann var myrtur. Athöfn í Vatíkaninu AFP Friðar- sinni í dýr- lingatölu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.