Morgunblaðið - 15.10.2018, Side 12

Morgunblaðið - 15.10.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 mánudaginn 15. október, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Jóhann Briem Listmunauppboð nr. 112 Forsýning á verkunum mánudag kl. 10–17 Jó a e N ín a Tr yg gv ad ót tir yg g Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fuglalífið í Hrísey hefursjaldan verið blómlegraen nú. Þegar sumrin erugóð og áfallalaus verður viðkoma fuglanna góð og lífið dafn- ar. Alls verpa um 40 tegundir fugla í eynni og mér finnst alltaf ævintýrið eitt að fylgjast með lífi þeirra,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, fugla- áhugamaður á Akureyri. Hann á sín- ar rætur í Hrísey og hefur síðan í æsku fylgst vel með fuglalífinu þar. Mældir og merktir Fyrir helgina fór Þorsteinn út í Hrísey við þriðja mann til að athuga með mófugla: auðnutittlinga, mús- arrindla og glókolla. Strengd voru net og fuglarnir lokkaðir í þau með hljóðum; þeir mældir og merktir en svo sleppt aftur að upplýsingum fengnum. „Aðeins örfá ár eru síðan gló- kollur sást fyrst í eynni en stofninn hefur mjög verið að styrkjast. En það má ekkert út af bera; glókolllur- inn er minnsti fugl Evrópu, er ekki nema 5-7 grömm og komi til dæmis mikil hret á veturna verða mikil af- föll,“ segir Þorsteinn. Bætir við að í Hrísey séu uppvaxtarskilyrði fugla himinsins býsna góð. Á norðanverðri eynni sé nú sprottinn upp hávaxinn og skjólgóður birki- og barrskógur þar sem fuglar verpi víða. Hins veg- ar sé útbreiðsla lúpínu, kerfils og hvannar áhyggjuefni, því verpi fugl- ar í því stóði fari þeir fljótt af hreiðri og afræki eggin. Rjúpan er ráðandi í Hrísey En það er rjúpan sem er ráð- andi í Hrísey. Það var um 1930 sem eyjarskeggjar tóku sig saman um að þyrma fuglinum og veiða í hennar stað sjófugl til matar. „Rjúpan hér er afar gæf. Hér er óráðlegt að hafa útidyr opnar því annars er fuglinn kominn inn í stofu áður en við er lit- ið,“ segir Þorsteinn sem telur að um 200 karrar séu í Hrísey, „hver þeirra er gjarnan með 2-3 kvenfugla í tak- inu sem samanlagt verpa á bilinu 10- 13 eggjum,“ segir Þorsteinn og held- ur áfram: „Það var um 1960 sem ég fór að fylgjast með fuglalífi hér í Hrísey og var þá aðstoðarmaður Finns Guð- mundssonar fuglafræðings í rann- sóknarferðum hans um landið. Þetta átti strax hug minn. Rjúpan og allt hennar líf er eftirtektarvert svo sem hve spakur fuglinn er hér í friðlandi sínu. Fyrir vikið er rjúpan héðan úr eynni sem öllum treystir auðveld bráð þegar veiðimenn fara á stjá.“ Skipta á milli sín afkvæmum Steindepillinn er kvikur og lif- andi fugl sem gaman er að fylgjast með, segir Þorsteinn, spurður um sinn eftirlætisfugl. „Þá er hrossa- gaukurinn eftirtektarverður. Egg hans eru yfirleitt fjögur og þegar ungar skríða úr skurn skipta karl- og kvenfuglinn afkvæmunum á milli sín, halda síðan hvor í sína áttina og sjást aldrei aftur,“ segir Þorsteinn sem margir á Akureyri kalla Fugla- Steina en aðrir tala um Steina rjúpu. Músarrindill, glókollur og rjúpa Í Hrísey á Eyjafirði er fjölbreytt fuglalíf sem Þorsteinn Þorsteinsson hefur fylgst með í um 60 ár. Karrar af kyni rjúpu eiga sér marga maka og viðkoman er mikil. Þá er nokkuð af sjaldgæfum mófuglum í eynni. Ljósmynd/Aðsend Fuglavinur Þorsteinn Þorsteinsson í Hrísey fyrir nokkrum dögum og hér heldur hann á glókollum tveimur. Þetta eru minnstu fuglar Evrópu og eru ekki nema 5-7 grömm að þyngd – og sáust hér á landi fyrst fyrir fáum árum. Ljósmynd/Aðsend Rjúpa Alfriðuð í Hrísey og því er hún einkar gæf. Sest meðal annars á gluggasyllur húsa og er í stóískri ró þótt allt í kring hamist heimsins stríð. Ljósmynd/Þorsteinn Þorsteinsson Músarrindill Fallegur smáfuglinn blakar vængjum og vill á loft. Fjórir nemendur í stærðfræði við Há- skóla Íslands hafa hlotið viðurkenn- ingu úr Verðlaunasjóði Sigurðar Helgasonar prófessors fyrir frábæran námsárangur. Heildarupphæð verð- launanna er 8.000 Bandaríkjadalir, jafnvirði nærri 900 þúsund króna. Verðlaunahafar eru Dagur Tómas Ás- geirsson, Garðar Andri Sigurðsson, Hjalti Þór Ísleifsson og Sölvi Rögn- valdsson. Allir hafa þeir sýnt af- burðaárangur og lokið prófum í flest- um greinum með 10 í einkunn. Garðar Andri lauk BS-prófi í stærð- fræði síðastliðið vor og hyggst út- skrifast næsta vor með BS-próf í tölvunarfræði. Sölvi útskrifast nú í október með BS-próf í hagnýttri stærðfræði. Þess má geta að hann hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Ís- lands í fyrra fyrir þátt sinn í verkefni sem heitir Áhættureiknir við með- höndlun sjúklinga með mergæxli. Dagur Tómas og Hjalti Þór hafa lokið tveimur námsárum í stærðfræði og erfiðum námskeiðum, sem venjulega eru tekin á þriðja ári. Tilgangur fyrr- nefnds sjóðs er að verðlauna stærð- fræðinema og nýútskrifaða stærð- fræðinga fyrir góðan árangur og styrkja þá til frekari afreka í námi og rannsóknum. Sjóðinn stofnaði Sig- urður Helgason, sem varð prófessor við MIT árið 1965 og eftir hann liggja fjölmargar bækur og vísindagreinar um stærðfræði. Hann hefur er heið- ursdoktor við HÍ og heiðursfélagi Ís- lenska stærðfræðifélagsins. Stærðfræðiverðlaun við Háskóla Íslands Hafa sýnt afburðaárangur Stærðfræðingar Frá vinstri talið eru á myndinni Sölvi Rögnvaldsson, Dagur Tómas Ágeirsson, Hjalti Þór Ísleifsson og Garðar Andri Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.