Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Mál málsóknarfélagsins Náttúru- verndar 2 á hendur Matvælastofnun og Löxum fiskeldi ehf. verður flutt fyrir Héraðsdómi Reykjaness 15. nóvember. Krefst stefnandi þess að ógilt verði með dómi rekstrarleyfi sem Fiskistofa veitti Löxum fisk- eldi ehf. 15. mars 2012 til reksturs sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði. Upphaflega fóru Matvæla- stofnun og Laxar fiskeldi ehf. fram á að málinu yrði vísað frá. Í samtali við blaðamann segir Konráð Jónsson, lögmaður Náttúruverndar 2, að frávísunarkraf- an hafi byggst á að ekki væri hægt að sýna fram á lögvarða hagsmuni, en að þeirri kröfu hafi verið hrundið. Deilt um rekstrarleyfi Hann segir málið „byggjast meðal annars á því að þessi starfsemi sem slík brjóti gegn náttúruverndarlög- um, en svo snýr þetta einnig að máls- meðferðinni, sem sagt að rekstrar- leyfið hafi runnið út“. Þá kemur fram í stefnu málsóknarfélagsins að það telji að rekstrarleyfið sem var veitt 2012 væri samkvæmt þágildandi lögum skilyrt við að rekstur yrði hafinn inn- an tveggja ára. Einnig kemur fram að Matvælastofnun var heimilt að lengja þann frest um eitt ár sem myndi þýða að rekstrarleyfið ætti að hafa runnið út árið 2015. Í greinargerð Laxa fiskeldis ehf. segir hins vegar að þegar fyrirtækið afhenti Skipulagsstofnun greinargerð árið 2011 vegna fyrirhugaðs fiskeldis hafi komið fram að fyrirætlanir fyrir- tækisins hafi ávallt miðað við að „framleiðsla yrði komin á fullan skrið á árinu 2018“. Einnig segir að Fiskistofu hafi ver- ið kunnugt um þetta þar sem stofn- uninni hafi verið veittar allar upplýs- ingar þegar hún veitti umsögn um matsskyldu verksins ásamt því að rekstrarleyfið hafi verið veitt til tíu ára. Í stefnu Náttúruverndar 2 er tal- ið að framkvæmdir og rekstur hefðu átt að fara í umhverfismat, en fram kemur í greinargerð Matvælastofn- unar að Skipulagsstofnun hafi árið 2011 ekki talið slíkt mat nauðsynlegt fyrir fyrirhugað 6 þúsund tonna lax- eldi í Reyðarfirði. Vísaði Skipulags- stofnun til umhverfismats sem var gert árið 2002 vegna fiskeldis Sam- herja hf. í Reyðarfirði. Á þetta fallast málshefjendur ekki og segja það mat að miklu leyti úrelt þar sem fram hafa komið nýjar rann- sóknir sem sýna hættu sem fylgir sjó- kvíaeldi og áhrifum strokfiska á stofna villtra laxa. Bent er á að Norð- menn telji að einn eldislax sleppi fyrir hvert tonn sem framleitt er og er vís- að til erlendra rannsókna sem máls- hefjendur segja sýna mikla hættu. Óvissuþættir í málinu Laxar fiskeldi ehf. segir í greinar- gerð sinni „um að ræða staðhæfingar sem eru með öllu ósannaðar, enda byggjast þær í engu á vísindalegum gögnum eða staðreyndum“. Matvæla- stofnun tekur í sama streng og segir að fullyrðingar um yfirvofandi tjón og erlendar greinar og skýrslur sem vís- að er til taki ekki tillit til aðstæðna í Reyðarfirði og þeim laxveiðiám sem um ræðir. Jafnframt eru gögnin sögð hafa „umdeilt gildi“ og að um sé að ræða „óáþreifanlegar og óljósar til- gátur“. Konráð segir rétt að ekki sé vitað hvort umrædd starfsemi muni hafa skaðleg áhrif á íslenska laxastofna „en það er nefnilega málið, við vitum það ekki. Við hljótum að þurfa að byggja á reynslu sem er fengin ann- ars staðar og það eru til ritrýndar rannsóknir um það hvernig það hefur verið í Noregi. Það er nægilegt tilefni til þess að staldra við.“ Hann bætir við að í náttúruverndarlögum sé var- úðarregla sem lætur náttúruna njóta vafans þegar skortur er á rannsókn- um. Aðilar að málsóknarfélaginu Nátt- úruvernd 2 eru eigendur veiðiréttinda í laxveiðiám í Breiðdal og Vopnafirði sem telja hlunnindi sín skerðast nái laxeldi fram að ganga. „Menn halda að þetta séu einhverjir stóreigna- menn sem um er að ræða, en þetta eru bændur og þetta skiptir þá miklu máli,“ segir Konráð. Fiskeldi í Reyð- arfirði fyrir dóm  Deilt um gildistíma á rekstrarleyfi og umhverfismati fyrir Laxar fiskeldi ehf. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Málefni fiskeldisstöðva hafa verið mjög í umræðunni. Konráð Jónsson Flokksráð Vinstri grænna, flokks- stjórn Samfylkingarinnar og lands- stjórn og þingflokkur Framsóknar- flokksins komu saman hver í sínu lagi um helgina. Framsóknarmenn funduðu á Hellu og er fundurinn hluti undir- búnings fyrir miðstjórnarfund í nóv- ember. Á fundinum var ákveðið að leggja áherslu á húsnæðismál, kjara- mál, málefni barna, menntamál og fjölskyldur. Mótun stefnu í málefn- um aldraðra er í farvatninu og vill flokkurinn að áfram verði unnið að bættum kjörum öryrkja. Þá lagði fundurinn áherslu á að innleiða svissnesku leiðina í húsnæðismálum og að afnema verðtryggingu. Flokksráð VG fundaði í sal Breiða- bliks í Smáranum í Kópavogi. Álykt- aði fundurinn um að gera þurfti nauðsynlegar breytingar á lögum um keðjuábyrgð og starfsmannaleig- ur til þess að koma í veg fyrir fé- lagslegt undirboð. Fundurinn ítrek- aði einnig samþykkt landsfundar frá 2015 sem lagðist gegn hvalveiðum Íslendinga og ályktaði að ríkisstjórn Íslands ætti að leggja sitt af mörkum til að styðja við fyrirtæki sem byggj- ast á endurnýtingu, viðgerðum og ábyrgri framleiðslu, til þess að sporna gegn neyslumynstri þar sem hlutum er hent. Flokksráðsfundur- inn hvatti stjórnvöld til að tryggja að sveitarfélög í landinu öxluðu ábyrgð og gengjust við skyldum sínum gagnvart fötluðu fólki og heimilis- lausu og styddu við og hvettu til sam- vinnu sveitarfélaga um lögbundna velferðarþjónustu. Þá telur fundur- inn að kerfisbundið þurfi að hækka laun kvennastétta sem þátt í að leið- rétta kynbundinn launamun og fagn- aði hækkun barnabóta og persónu- afsláttar. Loks hvatti flokksráðsfundurinn til þess að vinnuvikan yrði stytt niður í 30 tíma. Samfylkingin fundaði á Reykjavík Natura. Þar sagði Logi Már Einars- son að þótt flokkurinn hefði áorkað miklu í ríkisstjórnartíð Jóhönnu Sig- urðardóttur hefði ekki náðst að klára stór mál og nefndi hann þar upptöku nýs gjaldmiðils, inngöngu í Evrópu- sambandið og upptöku nýs fiskveiði- stjórnunarkerfis. Á fundinum voru húsnæðis-, mennta- og framtíðarmál í brennidepli og kynnt var #metoo- aðgerðaáætlun innan flokksins. Trúnaðarmenn flokkanna funduðu  Formaður Samfylkingarinnar talaði fyrir ESB-aðild  Vinstri grænir vilja 30 stunda vinnuviku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.