Morgunblaðið - 15.10.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2018
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
SMÁRALIND – KRINGLAN
Veturinn
nálgast
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stór og mikil brú er komin yfir
Norðlingafljót í Hallmundarhrauni,
skammt ofan við Helluvað. Þegar
brúin verður tilbúin og vegir að
henni hafa verið lagfærðir opnast
leið fyrir almenna ferðamenn úr
Borgarfirði og inn á Arnarvatns-
heiði og slysahætta við vaðið minnk-
ar.
Vestfirskir verktakar eru að
byggja brúna. Búið er að steypa
stöplana og hífa stálbitana á sinn
stað. Brúarmenn eru að leggja
timburbita og timburgólf yfir. Eftir
er að fylla að brúarstöplunum og
laga veginn að brúnni.
Brúin er 27 metra löng, einbreið
bílabrú, og stendur hátt yfir Norð-
lingafljóti. Kostnaður er áætlaður
um 60 milljónir kr.
Vinsæl veiðivötn
Arnarvatnsheiði er nokkuð nýtt
til ferðaþjónustu, einkum þó í
tengslum við veiðivötnin. Greiðfært
er upp úr Miðfirði en leiðin úr Borg-
arfirði hefur verið talin ófær öðrum
en jeppum vegna Norðlingafljóts og
oft alveg ófær á vetrum.
Aðgengi að heiðinni mun því
aukast þegar framkvæmdum verður
lokið, væntanlega um næstu mán-
aðamót, og slysahætta mun minnka
þegar ekki þarf að nota Helluvað.
Vegurinn upp úr Borgarfirði þarfn-
ast þó lagfæringa sem og vegurinn
inni á heiðinni.
Hugmyndir um friðun
Arnarvatnsheiði er eitt stærsta,
eða stærsta, samhangandi votlend-
issvæði á hálendi í Evrópu og er þá
miðað við um 400 metra hæð og yfir.
Verkefnishópur á vegum Húnvetn-
inga og Borgfirðinga lagði til í
skýrslu á árinu 2015 að kannað yrði
hvort til greina gæti komið að Arn-
arvatnsheiði yrði tilnefnd sem friðað
votlendissvæði, samkvæmt Ramsar-
samningnum. Jafnframt var í
skýrslunni lögð áhersla á að friðlýs-
ing mætti ekki skerða núverandi
nýtingu sem beitiland og veiðisvæði.
Brúin við Helluvað komin á sinn stað
Kemur í stað Helluvaðs í Norðlingafljóti Leiðin úr Borgarfirði og inn á Arnarvatnsheiði opnast
fyrir almennt ferðafólk Búist við því að framkvæmdum ljúki um næstu mánaðamót
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Norðlingafljót Brúin stendur hátt. Yfir gnæfir Eiríksjökull með sínum hvíta kolli sem nú er hulinn skýjum.
Helluvað Einstaka ferðamenn hafa farið flatt á því að leggja á Helluvað.
Vegir til allra átta Skiltið og varðan vísa ferðafólki til vegar við Helluvað.