Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.10.2018, Blaðsíða 32
„Áhrif spænsku veikinnar á barns- hafandi konur á Íslandi árið 1918“ nefnist erindi sem Erla Dóris Hall- dórsdóttir og Magnús Gottfreðsson flytja í fyrirlestrasal Þjóðminja- safns Íslands á morgun, þriðjudag, kl. 12:05. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræð- ingafélags Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafnið undir þemanu hörmungar. Spænska veikin og barnshafandi konur MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 288. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Selfoss er eina íslenska liðið sem komst áfram í 3. umferð EHF-bikars karla í handbolta um helgina. Í 3. umferðinni mæta til leiks stórlið á borð við Kiel og Füchse Berlín frá Þýskalandi. Selfyssingar slógu út slóvenska andstæðinga sína en ÍBV féll úr leik í Frakklandi og FH tapaði leikjum sínum í Portúgal sem báðir fóru fram um þessa helgi. »4 og 5 Selfoss í hópi með Kiel og Füchse Berlín ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Okkur tókst að vinna í St. Gallen í mikilvægum leik en leikurinn á morgun [í kvöld] verður allt öðru- vísi. Við þurfum að mæta einbeittir og til- búnir til leiks því íslenska liðið vill ná fram hefnd- um,“ segir Ric- ardo Rodríguez, leikmaður sviss- neska landsliðs- ins í knattspyrnu, fyrir leikinn við Ís- land á Laugardals- velli í kvöld í Þjóða- deildinni. Sviss vann stórsigur á heimavelli í fyrri leik liðanna, 6:0. »1 Leikurinn í kvöld verði allt öðruvísi leikur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Kvenfélög hafa nú sem endranær mikilvægu hlutverki að gegna. Í ýms- um líknar- og velferðarmálum úti um allt land hefur mjög munað um fram- lag kvenfélaganna, enda er starfsemi félaganna öflug mjög víða, og áherslumál að styðja góð málefni í nærsamfélaginu. Á árabilinu 2007 til 2017 var þetta samanlagt stuðningur upp á einn milljarð króna,“ segir Guð- rún Þórðardóttir, formaður Kven- félagasambands Íslands. Konur fylgi hjartanu Nú um helgina var 38. landsþing sambandsins haldið á Húsavík og var umsjón þess á hendi Kvenfélaga- sambands Suður-Þingeyinga. Það er eitt 17 héraðs- og svæðasambanda KÍ. Alls eru aðildarfélögin 152 og inn- an vébanda þeirra um 4.500 konur. Segja má að þinghaldið á Húsavík hafi verið í bleiku ljósi, enda sett 12. október sem gjarnan er nefndur bleiki dagurinn, í tilefni af árvekni- átaki Krabbameinsfélags Íslands í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Annars bar þingið yfirskriftina Fylgdu hjartanu en undir þeim orð- um var vakin athygli á málefnum hjartans og hjartasjúkdómum kvenna, en einkennin þar eru oft duldari en þegar karlar eiga í hlut. „Heilsa, streita og kulnun eru mál sem eru ofarlega á baugi núna og mikilvægt að fræðast um þessi atriði og ræða,“ útskýrir Guðrún. Hún seg- ir að sömuleiðis hafi kvenfélagskonur látið umhverfismál og baráttuna gegn sóun til sín taka með ýmsu móti. Verkefni um matarsóun hafi verið í gangi síðustu misserin og mælst vel fyrir; það er vakning um að nýta í stað þess að sóa. Á þinginu nú var sjónum svo beint að fatasóun, en æ fleiri gera sér nú ljóst að allt of mikið af klæðum og flíkum fer í sorpgáma og landfyllingar þótt þær heilar séu og enn í tísku. Laga saumsprettur og gera við rennilása „Ungt fólk sem ég tala við segir stundum að það hendi fötum af því að það finni engan sem geti lagað saumsprettur, gert við rennilása og slíkt. Það er hins vegar nokkuð sem fjöldi kvenna í okkar röðum bæði kann og getur, enda hefur hagsýni oft verið sögð íslenskum húsmæðrum nánast í blóð borin. Við getum svo sannarlega bjargað okkur,“ segir Guðrún sem býr á Selfossi og hefur tekið virkan þátt í starfi kvenfélaga á Suðurlandi. Auk trúnaðarstarfa hér heima er hún svo formaður Nordens kvinneförbund; það er samband kvenfélaga á Íslandi, í Noregi, Sví- þjóð og Finnlandi. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Landsþing Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mætti á þingið á Húsavík og var leystur út með góðum gjöfum, svo sem svuntu, sem ætti að koma sér vel við eldhússtörfin. Með á myndinni er Guðrún Þórðardóttir, formaður KÍ. Hagsýni er kvenfélags- konum í blóð borin  Gáfu einn milljarð króna til velferðarmála á tíu árum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.