Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 1
L A U G A R D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 253. tölublað 106. árgangur
HVAÐ LES FÓLK
Í KULDA OG
MYRKRI?
KARLARNIR
TRÓÐU SÉR
Í VERKIN
SÝNING GUÐMUNDAR 46ALLSKONAR 12
Vinsæll Humar þykir herramannsmatur.
Talsvert vantaði upp á að humar-
kvótinn næðist á síðasta fiskveiðiári
og vertíðin var sú lélegasta frá upp-
hafi. Veiðibann á humri er til um-
fjöllunar en ráðgjöf er væntanleg í
janúar.
Aflinn varð um 820 tonn á fisk-
veiðiárinu sem lauk í lok ágúst, en
heimilt var að veiða um 1.500 tonn
að meðtöldum heimildum frá fyrri
árum. Árið 2010 náði aflinn 2.500
tonnum, 2016 var hann tæp 1.400
tonn og á fiskveiðiárinu 2016/17
veiddust 1.186 tonn af humri. Sókn
hefur verið nokkuð stöðug frá
árinu 2009 en aflabrögð farið
versnandi.
Gögn úr fæðugreiningu í maga
þorsks og ýsu á humarslóð fyrir
sunnan og suðvestan land að vor-
lagi benda til þess að á þeim tíma sé
humar algeng fæða þorsks. »10
Lélegasta humar-
vertíðin og veiði-
bann til skoðunar
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verkefni komandi vetrar verða þung
en það veltur á viðsemjendum verka-
lýðshreyfingarinnar og stjórnvöld-
um hvort átök verða eða ekki.
Þetta sagði Drífa Snædal þegar
hún ávarpaði þing Alþýðusambands-
ins, en í gær var hún fyrst kvenna
kjörin forseti þess. Hlaut hún 65,8%
atkvæða. Talsverð spenna ríkti á
þinginu vegna kjörs forseta og vara-
forseta. Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness,
var kjörinn fyrsti varaforseti eftir að
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, dró framboð sitt til baka. Krist-
ján Þ. Skarphéðinsson var kjörinn 2.
varaforseti án mótframboðs.
Mikil endurnýjun varð einnig í
miðstjórn ASÍ. Flest atkvæði fékk
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Meðal
þeirra sem ekki náðu kjöri voru Ingi-
björg Ósk Birgisdóttir, fyrrverandi
varaforseti ASÍ, og Sverrir Mar Al-
bertsson sem einnig var í framboði
við forsetakjör.
Þingið samþykkti ályktun þar sem
hafnað er ofurbónusum og óhófleg-
um arðgreiðslum til eigenda fyrir-
tækja. Starfsfólk fyrirtækja eigi að
njóta þeirra ekki síður en hluthafar.
Þá eigi fulltrúar verkalýðshreyfing-
arinnar í stjórnum lífeyrissjóða að
vinna í samræmi við stefnu hennar.
Ennfremur samþykkti þing ASÍ að
leiðrétta þyrfti skattatilfærslu
stjórnvalda sem hefði létt sköttum af
hinum hæstlaunuðu og aukið skatt-
byrði lág- og millitekjuhópa.
Drífa kosin með yfirburðum
Fyrsta konan sem verður forseti Alþýðusambandsins Segir framvindu kjara-
mála í vetur velta á viðsemjendum og stjórnvöldum Mikil endurnýjun miðstjórnar
MNý forysta í öll ... »6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsti kvenforsetinn Drífa Snædal fagnar sigri í forsetakjöri á þingi ASÍ. Með henni er Gylfi Arnbjörnsson, fráfarandi forseti, sem ekki gaf kost á sér.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjölskyldan Fanney, Ragnar Snær
og fjögurra vikna sonur þeirra.
„Ég byrjaði í lyfjameðferð þótt ég
væri ólétt og ekki væri alveg vitað
hvaða áhrif krabbameinslyfin hefðu
á barnið, við urðum að taka þá erfiðu
ákvörðun í ljósi þess á hvaða stig
krabbameinið var komið, það var það
mikið í húfi að það þoldi ekki bið. Von
læknanna var að meðferðin myndi
annaðhvort halda þessu í skefjum
eða minnka það en það varð þver-
öfugt og það stækkaði þrátt fyrir
meðferðina. Því varð að grípa fyrr
inn í og koma drengnum í heiminn
með keisara svo ég gæti undirgeng-
ist geislameðferð,“ segir Fanney Ei-
ríksdóttir en í 21. viku meðgöngu
greindist hún með leghálskrabba-
mein. Í viðtali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins segja Fanney og
eiginmaður hennar, Ragnar Snær
Njálsson, frá baráttu sinni en sonur
þeirra kom þegar Fanney var gengin
rúmlega 29 vikur með barnið. „Þeg-
ar við erum búin að sigra viljum við
finna út hvernig krabbamein á stærð
við bolta á þessum stað, sem mynd-
ast hjá fullkomlega heilbrigðri konu
sem fór í allar sínar skoðanir, upp-
götvast ekki fyrr en á þessu stigi,“
segir Ragnar í viðtalinu.
Greindist á meðgöngu
Keisaraskurður á 29. viku vegna krabbameins móður
Þrír af fjórum
sveitarstjórum
sem ræddu við
Morgunblaðið
segjast ósáttir
við samgöngu-
áætlun sem nú er
til umfjöllunar á
Alþingi. Tveir
þeirra segja
vandamálin upp-
söfnuð vegna
fjárskorts fyrri ára.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, lýsir vonbrigðum, en
flokkssystir hans Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri Hveragerðis,
segist ánægð og hrósar ráðherrum
fyrir að leggja fram fullfjármagn-
aða áætlun til fimm ára. »4
Samgönguáætlun
sætir gagnrýni
Ármann Kr.
Ólafsson
Bæjarráð Bolungarvíkur skorar á
stjórnvöld að beita sér fyrir breyt-
ingu á úthlutun línuívilnunar og
tryggja að hún haldi áfram að styðja
við störf í sjávarbyggðum. Breyttar
forsendur og ytri aðstæður í um-
hverfi útgerða í krókaaflamarks-
kerfinu hafa leitt til fækkunar út-
gerða sem gera út á handbeitta línu
og á móti hefur bátum með beitn-
ingavélar fjölgað en þeir síðarnefndu
njóta ekki ívilnunar.
Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri
segir að reynst hafi óhagkvæmara
en áður að handbeita og erfitt að
manna þessi störf. Í bókum bæjar-
ráðs kemur fram að þörfin fyrir
þessa ívilnun sé enn fyrir hendi og
það sé löng og bitur reynsla sjáv-
arútvegssveitarfélaga að þegar
störfin hverfa, þá hverfi fólkið með.
Jón Páll telur að um 30 störf hafi
verið við beitningu í Bolungarvík,
þegar mest var, og ef hún legðist al-
veg af gæti það orsakað að bæjarbú-
um fækkaði um 100. Í framhaldi af
þessari umræðu var samþykkt að
undirbúa átak í nýsköpun í Bolung-
arvík til að fjölga störfum og íbúum á
vinnufærum aldri. »14
Störf í sjávarbyggð-
um sögð í hættu