Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 2

Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vilja veð í útsvarstekjum  Lánasjóður sveitarfélaga vill örugga tryggingu fyrir láni til Félagsbústaða  Dýr gæluverkefni og framúrkeyrsla valda vandræðum, segir Eyþór Arnalds Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Borgarráð Reykjavíkur vísaði á fundi sínum á fimmtudaginn til borgarstjórnar erindi Félagsbú- staða hf. um að borgarstjórn veiti Lánasjóði sveitarfélaga veð í útsvarstekjum borgarinnar til tryggingar á ábyrgð á lántöku, and- virði eins milljarðs króna. „Okkur finnst margt vera að. Það kom fram í úttekt Innri endurskoð- unar Reykjavíkurborgar mikil framúrkeyrsla og fleira og til þess að fjármagna þessi mál þurfa Félagsbústaðir meira fé, en virð- ast ekki geta fjármagnað sig auðveldlega. Þá er gripið til þess ráðs að Reykja- víkurborg veiti veð í útsvars- tekjum sínum, sem er það allra heilagasta sem borgin á. Borgin er þá algjörlega ábyrg fyrir láninu, en það hvílir nú þegar 35 milljarða skuld á þessu dótturfélagi borgarinnar,“ segir Ey- þór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins, í samtali við Morgunblað- ið. Fram kemur í umsögn fjármála- stjóra borgarinnar vegna lánsins að um er að ræða verðtryggt lán með jöfnum afborgunum og ber lánið 2,5% fasta vexti. Lánið endurgreið- ist með 71 afborgun á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn í nóvember 2020 og síðasta sinn í nóvember 2055. Eyþór segir málið einn anga fjár- málaerfiðleika borgarinnar og að borgin hefði ef til vill getað fjár- magnað þetta án lántöku ef ekki hefðu komið til kostnaðarsöm gælu- verkefni og framúrkeyrslur „Það er óheppilegt að það sé verið að veðsetja útsvarstekjur borgar- innar fyrir hlutafélag. Það er verið að skuldsetja Reykvíkinga til fram- tíðar með þessu,“ bætir hann við. „Hugmyndin var að þetta væri sjálf- bært hlutafélag, en það er greinilegt að svo er ekki þar sem félagið leitar á náðir borgarinnar og er Reykja- víkurborg hinn endanlegi skuldari,“ segir Eyþór. Eyþór Arnalds Páll Ragnar Pálsson, doktor í tón- smíðum, segir fyrsta erindi ljóðs Matthíasar Jochumssonar tengjast strax þjóðsöngnum í huga fólks en erfitt sé að staðhæfa að ljóðið og lagið séu aðskilin. Frá því var greint í Morgunblaðinu í gær að RÚV braut ekki lög um þjóðsöng Íslands með dagskrárkynn- ingu sinni í aðdraganda heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu síðastliðið sumar, samkvæmt niðurstöðu fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins sem kom fram á fimmtudaginn síðasta. Aðeins hafi verið flutt upprunalegt ljóð Matthíasar. „Ég geri ráð fyrir því að þjóðsöng- urinn sé laglínan og ljóð Matthíasar Jochumssonar flutt saman. Þá býst ég við því að þetta sé óaðskiljanlegt, en ljóðið stóð þó sjálfstætt áður en það varð að þjóðsöngnum okkar,“ segir Páll Ragnar. Aðspurður hvort eðlilegt væri að gera hið gagnstæða, þ.e. nota laglínu þjóðsöngsins við lag með öðrum texta í auglýsingaskyni, segir Páll: „Ef lag- línan í þjóðsöngnum væri til dæmis spiluð án orða, þá færi ekki á milli mála að um þjóðsönginn væri að ræða. Til dæmis þegar forsetinn er búinn að tala á nýársdag, þá er leikin hljómsveitarútgáfa af þjóðsöngnum og það fer ekki á milli mála að það er þjóðsöngurinn,“ segir Páll. Guðrún Björk Bjarnadóttir, fram- kvæmdastjóri STEFs, segir að ljóð Matthíasar Jochumssonar, Lof- söngur, sé ekki lengur í höfundar- rétti, þó að sérlög gildi um þjóðsöng- inn. Hins vegar þegar höfundar- réttarvernd lýkur taki við svokölluð menningarvernd. „Sé brotið á henni getur mennta- og menningarmálaráðherra höfðað mál. Til dæmis ef hann telur að brotið sé á sæmdarrétti höfundar eða ef verk er sett í form sem myndi skerða heiður höfundarins. Sem dæmi, ef einhver myndi vilja gefa út Íslend- ingasögurnar og myndi snúa út úr þeim, þá væri hægt að koma í veg fyrir það,“ segir Guðrún. veronika@mbl.is Ekki einfalt að aðskilja lag og texta þjóðsöngsins  Þjóðsöngurinn eftir Matthías ekki lengur í höfundarrétti Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra fundaði í vikunni með breskum ráðamönnum um framgang samn- inga vegna út- göngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu. Fór Guðlaugur meðal annars á fund Dominic Raab, út- göngumálaráðherra Bretlands. „Við ræddum stöðu og horfur í Brexit-málum. Við vorum sammála um mikilvægi þess að tryggja áfram- haldandi góð samskipti Íslands og Bretlands, hver sem niðurstaða samninganna við Evrópusambandið verður,“ sagði Guðlaugur Þór í sam- tali við Morgunblaðið. Spurður um horfur á framtíðar- samningi við Breta um fríverslun sagðist Guðlaugur ánægður með þau skilaboð sem hann fengi frá Bretum. „Bretar eru ekki komnir á þann stað að þeir megi semja um þessa hluti en það sem við höfum gert, bæði gagnvart Bretum og síðan gagnvart ESB og EFTA-ríkjunum, er að við höfum verið í nánum samskiptum og erum mjög ánægð með þau skilaboð sem við erum búin að fá frá breskum ráðamönnum,“ segir Guðlaugur. Sameiginlegir hagsmunir „Þetta er annað mesta viðskipta- land okkar og auk þess eru sömu ör- yggis- og varnarhagsmunir á milli ríkjanna. Þeir eru meðvitaðir um þá miklu hagsmuni sem snúa að norður- skautsmálunum og svo höfum við átt gott samstarf á sviði rannsókna, vís- inda og menningar á milli landanna. Þetta er ekki bara eitthvað sem við viljum halda áfram með heldur sömuleiðis efla.“ Fundaði Guðlaugur Þór einnig með Liam Fox, utanríkisviðskipta- ráðherra Bretlands, og Michael Gove, ráðherra umhverfis-, byggða- og matvælamála. Til viðbótar við út- göngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu og framtíðarviðskipti land- anna ræddu Guðlaugur Þór og Liam Fox stöðu og horfur í alþjóða- viðskiptum. Á fundinum með Micha- el Gove ræddu ráðherrarnir einnig samráð á sviði fiskveiðimála, svo og norðurslóðamál sem bresk stjórn- völd hafa sýnt vaxandi áhuga. mhj@mbl.is Rætt við Breta um fríverslun  Áhersla lögð á framtíðarsamning Guðlaugur Þór Þórðarson Sumarið hefur kvatt og veturinn tekið við. „Kalt hefur verið miðað við það sem við höfum átt að venjast á þessari öld, fara þarf aftur til 1995 til að finna sama meðalhita og nú og aftur til 1993 til að finna kaldari tíð,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. Trausti tekur fram að í ár var svokallaður sumarauki og sumir hafi sagt að ekki hafi veitt af. Sumaraukinn gegnir sama hlutverki og hlaupársdagur í hefðbundna tíma- talinu, tryggir að vetur og sumar raskist ekki til langs tíma miðað við sól. „Sumaraukasumur eru lítillega verr sett en önnur í keppni um hita – þau eru viku lengri en að jafnaði – og þar með kald- ari ef ekkert annað kæmi til.“ Sumarauki var líka sumarið 1995, en það var álíka kalt og nú og 1979 reyndar líka. En þessi „kæliáhrif“ sum- araukans séu þó ekki mikil (um 0,2 stig). Trausti var ekki búinn að gera upp úrkomu sumarsins. Þegar Veðurstofan gerði upp „veðurstofu- sumarið“, þ.e. júní-september, var úrkoma í Reykjavík 20% umfram meðallag árin 1961 til 1990 og á Akureyri 60% umfram meðallag sömu ár. Sólskinsstundir voru undir meðallagi á báð- um stöðum. sisi@mbl.is Kaldasta sumarið á öldinni hefur kvatt Morgunblaðið/Árni Sæberg Frosin strá við Vífilsstaðavatn í gær TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.