Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 6

Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikil endurnýjun varð á forystu Al- þýðusambands Íslands í kosningum sem fram fóru á lokadegi þings sambandsins í gær. Drífa Snædal var kjörin nýr forseti ASÍ með af- gerandi meirihluta atkvæða. Er Drífa fyrsta konan sem er kjörin í embætti forseta ASÍ í 102 ára sögu þess. Nýir fulltrúar taka við æðstu embættum forseta og báðum vara- forsetaembættum sambandsins eftir kosningarnar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akra- ness, var kosinn 1. varaforseti ASÍ og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís- lands, var sjálfkjörinn 2. varaforseti. Í forsetakjörinu var kosið á milli Drífu og Sverris Mar Albertssonar, framkvæmdastjóra AFLs. Úrslitin urðu þau að Drífa hlaut 192 atkvæði eða 65,8% en Sverrir Mar fékk 100 atkvæði eða 34,2%. Drífa sagði þegar hún ávarpaði þingið í gærmorgun að verkefni vetrarins yrðu þung en það ylti á viðsemjendum verkalýðshreyfingar- innar og stjórnvöldum hvort stefndi í átök eða ekki. „Þær kröfur sem landssambönd verkafólks og versl- unarmanna hafa kynnt eru sann- gjarnar en við eigum eftir að sjá hversu sanngjörn þau eru sem sitja hinum megin við borðið. Á þeim veltur framvinda vetrarins og fram- haldið,“ sagði Drífa. Spenna vegna kjörs forystu Mikil spenna og eftirvænting var meðal þingfulltrúa þegar gengið var til kosningar 1. varaforseta en breytingar urðu á framboðum til varaforsetaembættanna við upphaf þingfundar í gærmorgun. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sem hafði einn boðið sig fram til 1. vara- forseta lýsti því yfir að hann drægi framboð sitt til baka. Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja og Land- sambands ísl. verslunarmanna, til- kynnti framboð sitt í embættið í gærmorgun og Vilhjálmur Birgis- son sem hafði gefið kost á sér til 2. varaforseta ákvað einnig að bjóða sig fram í embætti 1. varaforseta. Ragnar sagði að það væri ein- kennilegt að fara þyrfti í umræður og karp í kjörstjórn vegna þess að hann hefði tekið ákvörðun um að draga sitt framboð til baka ,,til þess að reyna að skapa einhverja sátt innan hreyfingarinnar, sem því mið- ur er ennþá uppfull af vondri pólitík og taumlausu hatri“. Guðbrandur sagði að þegar hann hefði heyrt að formaður VR hefði tekið þá ákvörðun að draga framboð sitt til baka hefði hann ákveðið að gefa kost á sér sem varaforseti. Kvaðst hann líta svo á að versl- unarmenn ættu að eiga rödd í æðstu forystu. Vilhjálmur sagðist, þegar hann kynnti sitt framboð, hafa haft það eitt í hyggju að bjóða sig fram sem 2. varaforseti en það gerði einnig Kristján Þ. Snæbjarnarson, RSÍ. Hins vegar hefðu margir iðnaðar- menn hringt í hann og lýstu mikum áhyggjum af því að ef iðnaðarmenn fengju ekki kjörinn fulltrúa í æðstu stjórn ASÍ gæti það valdið mikilli úlfúð innan sambandsins. Sagðist Vilhjálmur hafa haft verulegar áhyggjur af því að þingið myndi leysast upp í illdeilur og eftir samtal við Ragnar Þór í fyrrakvöld um hvernig koma mætti í veg fyrir að þingið leystist upp í illdeilur og sundrungu hefði Ragnar sagst mundu hætta við framboð sitt og ákvað Vilhjálmur að bjóða sig fram í embætti 1. varaforseta. Eftir samtöl við iðnaðarmenn til að leita sátta hefði náðst niðurstaða um þetta. Framboð Guðbrands í gærmorgun hefði hins vegar komið á óvart. Þegar gengið var til kosninga féllu atkvæði þannig að Vilhjálmur hlaut 171 atkvæði eða 59,8% og Guðbrandur 115 eða 40,2%. Ný forysta í öll forsetaembætti  Drífa Snædal kosin forseti Alþýðusambands Íslands fyrst kvenna  Spennuþrungið kjör varaforseta  Vilhjálmur Birgisson 1. varaforseti og Kristján Þ. Skarphéðinsson 2. varaforseti til næstu tveggja ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný forysta Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins með varaforsetum sínum, Vilhjálmi Birgissyni og Kristjáni Þ. Skarphéðinssyni, eftir kjörið í gær. Þing Drífa Snædal ávarpar þing Alþýðusambandsins eftir að hún var kjörin forseti þess fyrst kvenna. Yfirskrift þingsins var „Sterkari saman.“ „Alþýðusamband Íslands hafnar of- urbónusum og óhóflegum arð- greiðslum til eigenda og áréttar kröfu verkalýðshreyfingarinnar um samfélag réttlátrar tekjuskipt- ingar, jafnra tækifæra og heil- brigðs atvinnulífs. Ofurbónusar og óhóflegar arðgreiðslur til eigenda ganga þvert gegn þessum mark- miðum, góðu siðferði og sjálfbærni í atvinnulífinu,“ segir í stefnu ASÍ um tekjuskiptingu og jöfnuð sem samþykkt var á þinginu í gær. Þar segir einnig að mikilvægt sé að fulltrúar launafólks í lífeyris- sjóðunum vinni í samræmi við stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Eigendastefna lífeyrissjóða og framfylgd hennar á að endurspegla áherslur á aukinn jöfnuð og bætt siðferði. „Stjórnarmenn í lífeyris- sjóðum beiti sér fyrir því að starfs- fólk fyrirtækja njóti arðsemi þeirra ekki síður en hluthafar.“ Vilja taka upp hátekjuskatt Í nýsamþykktri stefnu ASÍ segir einnig að leiðrétta skuli skatta- tilfærslu stjórnvalda sem hafi létt sköttum af hinum hæstlaunuðu og aukið skattbyrði á lág- og milli- tekjuhópa. ASÍ vill að skattar á lág- tekjufólk verði lækkaðir og lægstu laun gerð skattfrjáls með hækkun persónuafsláttar. ,,Hæstu tekjur samfélagsins verði skattlagðar með sérstöku há- tekjuþrepi. ,,Lagðir verði á auðlegðarskattar og fjármagnstekjuskattur hækk- aður til að stuðla að samfélagssátt og bregðast við auknum ójöfnuði eigna.“ omfr@mbl.is Stjórnarmenn í lífeyr- issjóðum beiti sér Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is HVOLFARARKARA Handhægir ryðfríir karahvolfarar í ýmsum gerðum. Tjakkur vökvadrifinn með lyftigetu frá 900 kg. Halli að 110 gráðum. Vinsælt verkfæri í matvælavinnslum fiski – kjöti – grænmeti Töluverðar breytingar urðu á skip- an miðstjórnar ASÍ á þinginu í gær. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, fékk flest atkvæði eða 90,9% og Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar og SGS næst flest eða 86,9%. Þá varð Berglind Hafsteinsdóttir, for- maður Flugfreyjufélagsins í þriðja sæti og fékk 86,5% Hún er ný í mið- stjórn en flugfreyjur hafa ekki átt þar sæti. Meðal nýrra miðstjórnar- manna eru einnig Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar (83,3%) og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, (76,4%). Meðal fulltrúa sem náðu ekki kjöri eru Ingibjörg Ósk Birgis- dóttir, VR og fyrrv. varaforseti ASÍ, Sverrir Mar Albertsson, AFLi, og Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands. Breytingar í miðstjórn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.