Morgunblaðið - 27.10.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018
Gylfi Arnbjörnsson, fráfarandiforseti ASÍ, flutti athyglis-
verða ræðu við setningu nýafstað-
ins þings sambandsins. Hann
benti á að Alþýðu-
sambandið væri
ekki og ætti ekki
að vera stjórnmála-
flokkur. „Innan
okkar raða eru
stuðningsmenn og
andstæðingar allra
stjórnmálaflokka
en sem sameinast
innan okkar raða sem samstæður
hópur vegna þess að þeir vilja
vinna að þeim grundvallarhags-
munum sem við eigum saman
þvert á alla stjórnmálaflokka og
stefnur,“ sagði hann.
Þetta er mikilvægt, en virðistgleymt mörgum þeim sem
ákafast tala um þessar mundir.
Hann rakti líka þann árangursem náðst hefur á síðustu
árum með þeim aðferðum sem
beitt hefur verið, þar sem áhersla
hefur verið á kaupmátt en ekki
kollsteypur, þó að vissulega hafi
verið teflt á tæpasta vað. Og ein-
mitt vegna þess að teflt hefur ver-
ið á tæpasta vað og launahækk-
anir verið miklar og kaupmáttar-
aukning meiri en dæmi eru um,
þá þarf að fara sérstaklega var-
lega í þeim samningum sem fram-
undan eru í hagkerfi sem er að
kólna.
Og ljóst er að Gylfa líst ekkiallt of vel á hvernig sumir
tala nú því að hann sagði margt
benda til þess „að áherslur og
baráttuaðferðir stærstu aðildar-
samtaka ASÍ verði með nokkuð
öðrum hætti en verið hefur um
lagt skeið“.
Vonandi hafa þeir sem taka viðkeflinu þessi varnaðarorð í
huga.
Gylfi
Arnbjörnsson
Varnaðarorð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Umhverfis- og auðlindaráðherra hef-
ur ákveðið að veiðidagar rjúpu verði
fimmtán talsins í ár og skiptast þeir á
fimm helgar frá 26. október. Með
þessu er ráðherra að fjölga veiðidög-
um frá í fyrra. Þetta kemur fram í til-
kynningu á vef stjórnarráðsins. Ráð-
lögð heildarveiði er um 67.000 rjúpur
og miðað við fjölda veiðimanna und-
anfarin ár eru það um 10 rjúpur á
hvern veiðimann. Hvetur ráðuneytið
veiðimenn til að sýna hófsemi og eru
þeir sérstaklega beðnir um að gera
hvað þeir geta til að særa ekki fugl
umfram það sem þeir veiða.
Stefnan að viðhalda stofninum
Áfram er í gildi sölubann á rjúpum.
Segir í tilkynningunni að meginstefna
stjórnvalda sé að nýting rjúpna-
stofnsins skuli vera sjálfbær, sem og
annarra auðlinda. Jafnframt skuli
rjúpnaveiðimenn stunda hóflega veiði
til eigin neyslu.
Rjúpnastofninn stendur betur nú
en undanfarin ár. Því er talið ásætt-
anlegt að rýmka veiðitímann. Það
getur jafnframt orðið til þess að
minnka álag á veiðislóð. Veiðidagar
skiptast á fimm helgar, frá föstudegi
til sunnudags, og hefst veiði um þessa
helgi og lýkur sunnudaginn 25. nóv-
ember.
Rjúpnaveiðitímabilið hefst um helgina
Rjúpnaveiðidögum fjölgað í fimmtán Stofninn stendur betur í ár en áður
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Rjúpa Skyttur fara á stjá í dag.
5 herbergja einbýlishús ásamt bílskúr.
Mjög vönduð eign á vinsælum stað.
Stærð 196 m2
Verð kr. 57.500.000
Heiðarból 5, 230 Reykjanesbæ
Pantið skoðun í síma 420 6070 eða á eignasala@eignasala.is
Sigurður Svavarsson
bókaútgefandi lést á
heimili sínu í gær-
morgun, 64 ára að
aldri. Sigurður fædd-
ist í Reykjavík 14.
janúar 1954. For-
eldrar hans voru
Ingibjörg Hanna Pét-
ursdóttir skrifstofu-
maður og Svavar Júl-
íusson verkstjóri.
Sigurður varð stúdent
frá MT 1974 og lauk
BA-prófi í íslensku og
almennri bókmennta-
fræði frá HÍ 1978.
Sigurður kenndi íslensku við MH
1978-1988 og var stundakennari við
skólann til 1995. Hann var bók-
mennta- og leiklistargagnrýnandi á
Helgarpóstinum 1980-1982. Hann
var kennslubókaritstjóri Máls og
menningar frá 1986 til 1995 þegar
hann varð framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins til ársins 2000. Hann
réðst til Eddu-útgáfu 2000, þar
sem hann var útgáfustjóri um hríð,
en hætti 2007. Í ársbyrjun 2008
stofnaði hann í félagi við Guðrúnu
Magnúsdóttur eigin bókaútgáfu,
Opnu. Meginstarfsemi Opnu hefur
verið útgáfa fræðibóka og bóka al-
menns efnis.
Sigurður gegndi
ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir kenn-
ara, var m.a. for-
maður Samtaka
móðurmálskennara
1982-1986, formaður
Kennarafélags MH,
ritstjóri BK-
blaðsins og formað-
ur verkfallsstjórnar
HÍK. Hann var for-
maður karlanefndar
Jafnréttisráðs 1994
til 1997 og formaður
norrænnar nefndar
um karla og jafn-
rétti 1996-1997. Sigurður sat um
tíma í stjórn Félags íslenskra
bókaútgefenda og var formaður
þess. Sigurður þýddi ýmis rit og
ritstýrði fjölda bóka. Hann var
íþróttamaður á yngri árum og lék
á fjórða hundrað meistaraflokks-
leiki í handknattleik á árunum
1974-1987, með ÍR og Fram. Hann
sat um skeið í stjórn handknatt-
leiksdeildar ÍR og í Handknatt-
leiksráði Reykjavíkur.
Eiginkona Sigurðar var Guðrún
Svansdóttir, forstöðumaður þjón-
usturannsókna hjá Blóðbankanum.
Þau eignuðust tvö börn, Svavar og
Ernu, sem eru uppkomin.
Andlát
Sigurður Svavarsson,
bókaútgefandi