Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 menn Köfunarþjónustunnar annast þetta verk.    Steypustöð Skagafjarðar er með næg verkefni, að sögn Ásmund- ar Pálmasonar framkvæmdastjóra, mörg stórverkefni í héraði og nær- sveitum, m.a. ein 7 fjós sem voru byggð í sumar. En Steypustöðin fæst við fleira en framleiða steypu, því fyrirtækið hefur sérhæft sig í plægingu og lagningu strengja og ljósleiðara í jörð og er nú verkefni í gangi vegna gagnavers á Blönduósi, en lokið er verkefnum í Bláfjöllum svo og á Snæfellsnesi fyrir Rarik og Neyðar- línu. Ásmundur sagði að verkefna- staða næsta árs væri góð, það sem séð yrði, en starfsmenn Steypu- stöðvarinnar eru 35.    Fyrr í vikunni voru 42 ár liðin frá því að Alexandersflugvöllur við Sauðárkrók var vígður, en árið 1988 var honum formlega gefið nafn í minningu dr. Alexanders Jóhannes- sonar, háskólarektors frá Gili í Borgarsveit. Alexander var einn helsti frumkvöðull í íslenskum flug- málum og fór m.a. um allt land í leit að heppilegum stöðum undir flug- velli, enda sá hann öðrum fremur hagsmuni landsmanna sem fólust í bættum samgöngum.    Alexandersflugvöllur var um árabil einn best búni flugvöllur landsins utan Keflavíkur og með sína 2ja km. flugbraut töldu flestir hann fyrsta valkost sem varaflugvöll fyrir suðvesturhorn landsins og millilandaflug til Keflavíkur, enda var það samdóma álit þeirra flug- manna sem létu sig málið skipta að svo væri. Hinsvegar fór ekki svo, og hag- kvæmara þótti að byggja upp nýjan flugvöll á Egilsstöðum. Mikið um fram- kvæmdir og allar lóðir farnar Ljósmynd/Svf. Skagafjörður Sauðárkrókur Túnahverfið í forgrunni en þar hefur verið mikið byggt í ár. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitarstjóri Sigfús Ingi Sigfús- son er nýlega tekinn við starfinu. ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkróki Sveitarstjóri, Sigfús Ingi Sigfús- son, segir margt vera á döfinni hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og fjár- hagsstaðan nokkuð góð. Nú er hafin vinna við fjárlagagerð næsta árs, sem á eftir að taka verulegum breyt- ingum, en rekstrarafgangur eftir fyrstu umræðu er 113 milljónir eftir fjármagnsliði og afskriftir.    Af framkvæmdum sagði hann nýlokið verulegum endurbótum á sundlauginni í Varmahlíð, m.a. með nýrri og glæsilegri rennibraut. Þá voru nýverið opnuð tilboð í jarðvegs- vinnu vegna nýbyggingar fyrir Byggðastofnun. Allmörg tilboð bár- ust en lægsta tilboðið áttu Vinnu- vélar Símonar á Sauðárkróki, tæp- lega 11,9 milljónir.    Allar lóðir á Sauðárkróki eru að sögn Sigfúsar Inga farnar en 50 til 60 íbúðir eru í byggingu eða lokið. Unnið er að gerð nýrrar götu, Mela- túna í Túnahverfinu.    Nýtt útibú frá Fiskmarkaði Ís- lands var opnað í byrjun september sl. Að sögn Helga Emilssonar, for- stöðumanns markaðarins, hefur reksturinn gengið vel og umfangið stöðugt vaxið frá fyrsta degi, t.a.m. daginn áður en rætt var við Helga fóru rúmlega 20 tonn þar í gegn og sagði hann fiskinn nánast allan fara suður. Aðalkúnnar markaðarins eru fjórir Vísisbátar frá Grindavík sem eru á línuveiðum fyrir Norðurlandi, auk allmargra heimabáta.    Dýpkunarframkvæmdir voru gerðar í Sauðárkrókshöfn í ágúst, auk þess sem snúningsrými innan hafnar var stækkað allnokkuð, sem munaði verulega um vegna aukinna umsvifa í höfninni. Dagur Baldvins- son hafnarstjóri sagði að um höfnina hefðu farið nú í haust um 10 þúsund venjulegir og um 13 til 14 hundruð stórbaggar af heyi til Noregs. Sagði Dagur að tveir togarar Fisk Seafood, Drangey og Málmey, lönduðu vikulega auk fjögurra Vís- isbáta frá Grindavík. Flutningaskip frá Eimskip koma hálfsmánaðar- lega, en Samskip hafa tilkynnt um aukna þjónustu og munu koma viku- lega, en auk þessa eru allmargir heimabátar sem leggja upp afla sinn    Verulegar viðgerðir fara nú fram á norðurþili hafnarinnar á Hofsósi. Dagur segir þörf á við- gerðum hafa verið mikla. Starfs- Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningu um að not- endur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi ný- verið fengið útbrot vegna sundmannakláða. Um er að ræða sundlirfur fuglablóðagða (Schistosoma- tidae) sem valda útbrotum þegar farið er í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar. „Kláðabólur myndast þegar of- næmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að kom- ast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmanna- laugum. Umhverfisstofnun bendir gestum laugarinnar á að enn eru líkur á að þeir geti orðið varir við sund- mannakláða baði þeir sig í náttúrulauginni,“ segir í til- kynningu Umhverfisstofnunar. Haft var samráð við sótt- varnalækni og byggist niðurstaðan á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Unnið er að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina. Sundmannakláði í Landmannalaugum Morgunblaðið/Árni Sæberg Landmannalaugar Fjölmargir ferðamenn leggja leið sína í þennan sælureit og baða sig í leiðinni. Fundaröð Persónuverndar um áhrif nýrrar persónuverndarlöggjafar á almenning og fyrirtæki NÝ PERSÓNUVERNDARLÖGGJÖF 2018 Á kynningarfundum Persónuverndar verður meðal annars farið yfir grunnreglur persónuverndarlöggjafarinnar sem allir þurfa að kunna skil á. Persónuvernd hvetur því atvinnurekendur til að gera starfsmönnum sínum kleift að mæta. Ný persónuverndarlöggjöf, byggð á reglugerð Evrópusambandsins, tók gildi hérlendis 15. júlí síðastliðinn en löggjöfin markar tímamót í sögu persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Af því tilefni heldur Persónuvernd í kynningarherferð um landið þar sem áhugasömum verður boðið að sækja kynningarfundi um nýju löggjöfina. Sérstaklega verður fjallað um það hvaða þýðingu löggjöfin hefur fyrir einstaklinga og réttindi þeirra, og þær kröfur sem hún gerir til fyrirtækja, stjórnvalda og annarra ábyrgðaraðila. Fundaröðin hefst á Akureyri miðvikudaginn 31. október og lýkur í Reykjavík mánudaginn 26. nóvember. Allir eru velkomnir. Dagskrá: Akureyri – Menningarhúsið Hof, Strandgötu 12,miðvikudaginn 31. október klukkan 13-15. Ísafjörður – Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, fimmtudaginn 1. nóvember klukkan 13-15. Egilsstaðir – Hótel Hérað, Miðvangi 1-7,mánudaginn 5. nóvember klukkan 10-12.* Vestmannaeyjar – Akóges-salurinn, Hilmisgötu 15,miðvikudaginn 7. nóvember klukkan 10-12. Höfn í Hornafirði – Hótel Höfn, Víkurbraut,mánudaginn 12. nóvember klukkan 12-14. Selfoss – Hótel Selfoss, Eyrarvegi 2,miðvikudaginn 14. nóvember klukkan 13:30-15:30. Reykjanesbær – Hljómahöll, Hjallavegi 2,mánudaginn 19. nóvember klukkan 13-15. Borgarnes – Hjálmaklettur, Borgarbraut 54, fimmtudaginn 22. nóvember klukkan 12:30-14:30. Reykjavík – Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52,mánudaginn 26. nóvember klukkan 13-15.* Vinsamlegast skráið þátttöku á vefsíðu Persónuverndar, www.personuvernd.is. Tilgangur skráningar er að áætla fjölda þátttakenda. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar Vigdís Eva Líndal skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd Þórður Sveinsson skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd *Fundurinn verður tekinn upp og honum streymt á vefsíðu Persónuverndar. Kynningarherferðin er styrkt af Evrópusambandinu – The European Union‘s Rights, Equality and Citizenship Programme (2014-2020) Erindi flytja:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.