Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eigendur verslunarkjarnans Suður- vers í Stigahlíð 45-47 hafa sótt um leyfi til að byggja ofan á húsið. Áformað er að hafa 14 íbúðir í ofan- ábyggingunni. Umsóknin er til með- ferðar hjá Reykjavíkurborg. Verkefninu svipar til ofanábygg- ingar í Skipholti 70. Þar var byggð hæð ofan á verslunar- og skrifstofu- hús og innréttaðar þar íbúðir. Óskað var eftir teikningunum hjá Reykjavíkurborg en ekki tókst að af- greiða þá beiðni fyrir helgi. Austan við Suðurver, meðfram Kringlumýrarbraut, hefur verið reistur hljóðveggur. Hann er austan við íbúðarhús í Stigahlíð 35-43 og gegnt Kringlusvæðinu. Áformað er að veggurinn nái fullbyggður að Stigahlíð 93 (sjá mynd fyrir ofan). Hámarki hljóðeinangrun Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir hljóðvegginn hafðan sem næst íbúðarhúsunum til að hámarka hljóðeinangrun. „Þetta er gróðurveggur. Þetta er í fyrsta sinn sem við gerum hljóðvegg í borginni. Það er í honum sérstakt undirlag sem er gert fyrir gróður. Við eigum eftir að sjá hvernig gróðurinn spjarar sig við íslenskar aðstæður. Austan við vegginn verða gangandi og hjólandi í göturýminu. Það gefur okkur möguleika á að staðsetja bið- stöð Borgarlínu á þessu svæði,“ segir Sigurborg Ósk sem vísar aðspurð til þess að samkvæmt áætlunum um Borgarlínu er gert ráð fyrir biðstöð við Kringluna, austur af Suðurveri. Þær hugmyndir eru í mótun. Reykjavíkurborg keypti fyrr á árinu hverfiskjarna í Arnarbakka 2-6 og Völvufelli 11-21 í Breiðholti. Þar er áformað að auka byggingarmagn og byggja m.a. íbúðir. Sigurborg Ósk segir aðspurð að endurnýjun hverfiskjarna sé hluti af þéttingu byggðar. „Þessir kjarnar eru langflestir á einni hæð. Það er verið að skoða hvort hægt er að bæta við einni hæð eða tveimur, allt eftir því hvað hæfir umhverfinu, til þess að efla verslun og blása lífi í þessa kjarna aftur,“ segir hún. Nefna mætti fleiri verkefni af þess- um toga í borginni. Til dæmis hug- myndir um að byggja íbúðir ofan á verslunarhæðir í Norðurbrún 2 og Rofabæ 39. Fjölskylda í fjárfestingum Félagið Suðurver ehf. er að baki umsókninni. Samkvæmt fyrir- tækjaskrá Creditinfo eru þrír hlut- hafar í félaginu: Sigþór Sigurjónsson, Anna Kathrine Angvik Jacobsen og Kolbeinn Sigþórsson. Anna er kona Andra Sigþórssonar. Andri og Kol- beinn eru synir Sigþórs, sem er gjarnan kenndur við félag sitt Bak- arameistarann. Þau eiga hvert um sig þriðjungshlut. Eitt af bakaríum keðjunnar er ein- mitt í Suðurveri. Sama félag á hús- næði í Austurveri en þar er Bakara- meistarinn líka með bakarí. Suðurver ehf. er fasteignafélag. Samkvæmt ársreikningi félagsins ár- ið 2017 voru eignir félagsins samtals um 302 milljónir. Þar af voru fast- eignir metnar á 286 milljónir. Félagið er skráð fyrir 2.574 fer- metrum í Stigahlíð 45-47 og Bakara- meistarinn ehf. fyrir 186,4 fermetr- um. Loks er hárgreiðslustofa skráð fyrir 138 fermetrum. Samkvæmt umsókn er sótt um að stækka húsið um 933 fermetra. Fram kom í Morgunblaðinu um daginn að söluverð íbúða í Hlíðunum og Holtunum hefði verið að meðaltali 488 þúsund á m² á þriðja ársfjórðungi í ár. Samkvæmt því gæti söluverð- mæti um 900 fermetra af íbúðar- húsnæði á nýrri hæð í Suðurveri orð- ið á fimmta hundrað milljónir. Ekki náðist í Sigþór Sigurjónsson vegna áformanna. Teikning/Efla Horft til norðurs Drög að útliti gróðurveggsins við efri hluta Stigahlíðar. Það glittir í Suðurver. Teikning/Efla Horft til norðurs Þessi hluti veggsins er að mestu leyti risinn. Gróðurinn er þó ekki kominn. Fyrsti gróðurveggurinn í borginni  Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar segir nýja leið farna við hljóðvarnir austur af Stigahlíðinni  Nærri fyrirhugaðri Borgarlínustöð  Fjárfestar hyggjast byggja ofan á Suðurver í Stigahlíð 45-47 Morgunblaðið/Valli Suðurver Nýi hljóðveggurinn við Stigahlíð er risinn að norðanverðu. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir Kolbeinn Sigþórsson Í tilefni fullveldis afmælis mun að- göngumiði í Þjóð- minjasafnið og Safnahúsið gilda sem árskort, sem gildir frá 1. des- ember nk. til 30. nóvember 2019. Árskortið veitir aðgang að öllum sýn- ingum og viðburðum á vegum safnsins í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og Safnahúsinu á Hverfisgötu frá full- veldisdeginum. Þá er ný ásýnd Þjóðminjasafns Ís- lands kynnt í tilefni fullveldisafmæl- isins sem markast af sterkum litum, með skýra tilvísun í þjóðminjar og menningararf. Hin nýja mörkun felur í sér nýtt fyrirsagnaletur sem er sam- ansett úr fjórum leturgerðum: Íslenskar fúþark rúnir voru í al- mennri notkun í útskurði hér á landi frá landnámi og út 19. öld. Fraktúrletur eða gotneskt letur vís- ar í leturgerðina í miðaldahandritum og í prentverki fram að 20. öld. Höfðaletur er séríslensk leturgerð sem notuð var í útskurði á ýmsum skrautmunum frá 16. öld. Greta Sans letrið flokkast almennt undir steinskrift og vísar til nútímans. Ársmiði í Þjóðminja- safnið  Fullveldisgjöf )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.