Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 22
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Við Miðhraun í Garðabæ stendur
líkamsræktarstöðin Crossfit XY.
Fáa sem leggja leið sína þangað til
þess að svitna grunar að eignar-
haldið á stöðinni sé ein meginrótin
að þeim átökum sem komu upp á
yfirborðið á fimmtudagskvöldið síð-
asta þegar Helga Hlín Hákonar-
dóttir, lögmaður og stjórnarformað-
ur VÍS, sagði sig óvænt frá störfum
í þágu tryggingafélagsins. Ásamt
henni vék úr stjórninni Jón Sig-
urðsson en þau komu bæði inn í
stjórn félagsins með stuðningi
tveggja af þremur stærstu lífeyr-
issjóðum landsins, Lífeyrissjóðs
verslunarmanna og Gildis.
Helga Hlín var einn af stofn-
endum Crossfit XY ásamt hjónun-
um Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur
og Guðmundi Erni Þórðarsyni.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að slegið hafi í brýnu milli þeirra á
sínum tíma og að ekki hafi gróið
um heilt síðan.
Studdu andstæðing í stjórn
Það kom því ýmsum í opna
skjöldu, í ljósi þess að átökin í
crossfit-stöðinni voru á margra
vörum, þegar Gildi lífeyrissjóður
studdi Helgu Hlín inn í stjórn VÍS,
skömmu eftir að Svanhildur Nanna
og Guðmundur Örn höfðu keypt
umtalsverðan hlut í félaginu, og
raunar farið fram á tvö stjórnar-
sæti af fimm á grundvelli hans. Við-
mælendur Morgunblaðsins á þeim
tíma töldu einsýnt að hjónin litu á
það sem raunverulega ögrun að
tefla Helgu Hlín fram í starfið, en
hún hefur á síðustu árum unnið
sem ráðgjafi við Gildi lífeyrissjóð,
einkum þegar kemur að stjórnar-
háttum sjóðsins og þeirra fyrir-
tækja sem hann fjárfestir í. Átökin
milli þessara aðila eru aðeins brot
af umfangsmeiri valdatogstreitu
innan VÍS. Tíðar mannabreytingar
á vettvangi þess vitna þar um. Frá
árinu 2015 hafa fimm stjórnarfor-
menn setið við borðendann í Ár-
múla og frá 2016 hafa þrír for-
stjórar stýrt daglegum rekstri þess.
Skákuðu formanninum út
Hvað hörðust urðu átökin í félag-
inu þegar nýr meirihluti stjórnar-
innar skákaði Herdísi Dröfn Fjeld-
sted, framkvæmdastjóra Fram-
takssjóðs Íslands, úr stóli
stjórnarformanns árið 2017 en hún
hafði næstu tvö árin á undan gegnt
því hlutverki. Sagði hún sig í kjöl-
farið frá stjórninni. Hún naut
stuðnings Lífeyrissjóðs verslunar-
manna til stjórnarsetunnar, líkt og
Jón Sigurðsson. Því er ljóst að
stærsti hluthafi félagsins hefur á
tveimur árum horft á bak jafn
mörgum stjórnarmönnum, sem ekki
hafa treyst sér til samstarfs við
Svanhildi Nönnu og þá sem mynd-
að hafa meirihluta með henni í
stjórninni. Tók Svanhildur Nanna
við formennsku í stjórninni á þess-
um tímapunkti.
Óvæntar vendingar
Átökin tóku nýja stefnu í upphafi
síðasta sumars þegar héraðssak-
sóknari lét til skarar skríða og
handtók Svanhildi Nönnu og eig-
inmann hennar í tengslum við rann-
sókn á viðskiptum þeirra á vett-
vangi Skeljungs, en þau eignuðust
olíufélagið árið 2008.
Eftir þær aðgerðir var ljóst að
Svanhildi Nönnu var ekki sætt í
stóli stjórnarformanns. Varð þá úr
að Helga Hlín tók við því hlutverki,
en hún hafði verið varaformaður
stjórnar frá því að Herdís Dröfn
sagði sig úr stjórninni. Það varð
niðurstaðan þrátt fyrir að Svanhild-
ur Nanna hefði mjög ákveðið sótt
að Valdimar Svavarsson yrði for-
maður.
Það var svo á stjórnarfundi á
miðvikudag sem málin tóku enn
nýja stefnu. Í lok þess dags kynnti
VÍS sterkt uppgjör fyrir þriðja árs-
fjórðung. Í lok stjórnarfundar sem
haldinn var vegna uppgjörsbirting-
arinnar tók Svanhildur Nanna til
máls og lýsti því yfir að hún teldi
rétt að hún tæki að nýju við stjórn-
arformennsku í félaginu. Kölluðu
þá stjórnarmenn eftir upplýsingum
um hvort staða hennar í fyrr-
nefndri rannsókn héraðssaksókn-
ara hefði breyst. Í ljós kom að svo
var ekki. Var fundi þá frestað til
fimmtudags þar sem ákveðið var
að taka áframhaldandi umræðu um
tillögu Svanhildar Nönnu.
Á þeim fundi kom í ljós að Svan-
hildur Nanna hafði ekki óskoraðan
stuðning til að taka við stöðu
stjórnarformanns á ný. Herma
heimildir Morgunblaðsins að hún
hafi þá gert tillögu um aðra verka-
skiptingu stjórnar. Með því var
myndaður nýr meirihluti í stjórn-
inni með fyrrgreindum afleiðingum
þar sem Valdimar Svavarsson var
kjörinn formaður og Gestur Breið-
fjörð Gestsson varaformaður.
Veruleg óánægja með
atburðarás síðustu daga
Stórir hluthafar sem Morgun-
blaðið hefur rætt við meta nú stöðu
sína í hluthafahópnum upp á nýtt í
ljósi þess að enn gjósa upp átök í
forystusveit fyrirtækisins. Í þeim
samtölum hefur m.a. verið rifjað
upp að í maí í fyrra ákvað Gildi,
sem var í hópi stærstu hluthafa
fyrirtækisins, að selja sig verulega
niður, vegna megnrar óánægju
með stjórnarhætti á vettvangi fyr-
irtækisins. Það staðfesti fram-
kvæmdastjóri sjóðsins á sínum
tíma í samtali við ViðskiptaMogg-
ann.
Meðal þess sem stórir hluthafar
munu nú vera að skoða, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, er að
kallaður verði saman hluthafafund-
ur í því skyni að afturkalla umboð
eins eða fleiri stjórnarmanna í fé-
laginu. Til þess þurfa hluthafar
með að minnsta kosti 10% hlutafjár
að baki sér að óska eftir fundinum.
Þar sem stjórnin var sjálfkjörin á
sínum tíma þarf einfaldan meiri-
hluta á slíkum fundi til að aftur-
kalla umboð stjórnarinnar. Hluta-
bréf VÍS lækkuðu um 2,4% í
viðskiptum í Kauphöll Íslands í
gær. Umfang viðskiptanna var
tæpar 46 milljónir króna. Stærsti
hluthafi félagsins er Lífeyrissjóður
verslunarmanna með 8,64% hlut.
Fjögur átakaár hjá VÍS
Morgunblaðið/Eggert
Ókyrrð Mikil átök hafa geisað meðal eigenda VÍS um völdin í stjórn félags-
ins. Eftir nýjustu vendingar hafa fjárfestar sem styðja Svanhildi Nönnu
Vigfúsdóttur og Guðmund Örn Þórðarson tögl og hagldir í félaginu.
Þrír forstjórar á þremur árum Fimm stjórnarformenn síðustu fjögur ár
Stórir hluthafar meta nú fjárfestingu sína í félaginu í ljósi nýjustu vendinga
Herdís Dröfn
Fjeldsted
Jón
Sigurðsson
Valdimar
Svavarsson
Gestur Breiðfjörð
Gestsson
Helga Hlín
Hákonardóttir
Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018
27. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.77 120.35 120.06
Sterlingspund 154.4 155.16 154.78
Kanadadalur 91.91 92.45 92.18
Dönsk króna 18.295 18.403 18.349
Norsk króna 14.371 14.455 14.413
Sænsk króna 13.142 13.218 13.18
Svissn. franki 119.81 120.47 120.14
Japanskt jen 1.0658 1.072 1.0689
SDR 165.99 166.97 166.48
Evra 136.52 137.28 136.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.1928
Hrávöruverð
Gull 1232.15 ($/únsa)
Ál 1980.0 ($/tonn) LME
Hráolía 75.67 ($/fatið) Brent
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
Í ljósi bráðabirgðaniðurstöðu þriðja
ársfjórðungs hefur flutningafélagið
Eimskip lækkað EBITDA-spá sína
fyrir árið 2018. Ný afkomuspá gerir
ráð fyrir rekstrarhagnaði á bilinu 49
- 53 milljónir evra, samanborið við 57
til 63 milljónir evra í afkomuspá sem
gefin var út í maí 2018.
Í tilkynningu félagsins til Kaup-
hallar segir að samkvæmt bráða-
birgðatölum fyrir þriðja ársfjórðung
sé áætluð EBITDA á fjórðungnum á
bilinu 8-10% undir þriðja fjórðungi
síðasta árs sem nam 19,3 milljónum
evra.
Samdráttur í Noregi
Helstu ástæður fyrir lakari af-
komu eru samkvæmt tilkynningunni
samdráttur í Noregi ásamt því að
bilanir á frystiskipum hafi haft tölu-
verð neikvæð áhrif á reksturinn þar.
Einnig hefur innflutningur til Ís-
lands verið minni en áætlanir gerðu
ráð fyrir. „Uppbygging á magni í
vikulegum Trans-Atlantic og Short-
Sea siglingum hefur einnig tekið
lengri tíma en gert var ráð fyrir.“
tobj@mbl.is
Ljósmynd/Larus Karl Ingason
Siglingar EBITDA lægri en í fyrra.
Afkoma
Eimskips
lakari
Samdráttur og
minni innflutningur