Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 24

Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Til eru sex undirtegundir tígra í heiminum núna, samkvæmt erfða- rannsókn sem birt er í nýjasta hefti timaritsins Current Biology. Vís- indamenn vona að niðurstöður rann- sóknarinnar greiði fyrir tilraunum til að koma í veg útrýmingu tígris- dýra. Innan við 3.200 fullvaxta tígr- ar eru í náttúrunni, samkvæmt gögnum alþjóðlegu náttúruverndar- samtakanna IUCN. Undirtegundirnar sex eru: bengaltígurinn, indókínverski tígur- inn, malasíski, síberíski, suður- kínverski tígurinn og súmötrutígur- inn. Ein þessara tegunda, suður- kínverski tígurinn, er talin í mikilli útrýmingarhættu eða hugsanlega útdauð í náttúrunni. Ekkert dýr af þessari tegund hefur fundist í nátt- úrunni í rúman aldarfjórðung. Við erfðarannsóknina var aðeins notast við sýni úr einum suðurkínverskum tígri sem er í dýragarði. Vitað er um þrjár undirtegundir tígra sem hafa þegar dáið út: kaspía- tígurinn, jövutígurinn og balítígur- inn. Helstu ástæður þess að tígrum hefur fækkað mjög eru ólöglegar veiðar og eyðing búsvæða. Tígrar lifa nú aðeins á um 7% þeirra svæða sem vitað er að hafa verið heim- kynni þeirra. Rannsóknarmennirnir segja að deilt hafi verið um hvernig eigi að vernda tígrana, m.a. vegna ágrein- ings um hversu margar undirteg- undirnar séu. Sumir hafi sagt að þær séu aðeins tvær, aðrir að þær séu fimm eða sex. „Ágreiningurinn um fjölda undirtegundanna hefur að nokkru leyti tálmað tilraunum til að bjarga þeim frá útrýmingu,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Shu-Jin Luo, vísindamanni við Peking-háskóla, sem stjórnaði rannsókninni. Vísindamennirnir notuðu sýni úr 32 tígrum til að rannsaka erfða- mengi þeirra. Þeir fundu fáar vís- bendingar um kynblöndun og erfða- fræðilegur fjölbreytileiki undir- tegundanna reyndist lítill. „Tígrar eru ekki allir eins,“ sagði Luo og bætti við að stærð tígra og litirnir á feldinum væru mismunandi eftir undirtegundum. „Tígrar frá Rúss- landi þróuðust með öðrum hætti en þeir sem eru frá Indlandi. Jafnvel tígrar frá Malasíu og Indónesíu eru ólíkir.“ bogi@mbl.is Ólöglegar veiðar og eyðing búsvæða eru helstu ástæður þess að tígrar eru í hættu Tígrar (Panthera tigris) Súmötru- tígur (Panthera tigris sumatrae) Súmötrutígur Færri en 400 Tígrar í útrýmingarhættu Heimildir: IUCN/WWF/*Þjóðgarða- og náttúruverndarstofnun Nepal/Ljósmynd AFP: Romeo Gacad Bengaltígur +2.500 Síberíutígur Um 540 Suðurkínverskur Hefur ekki sést í náttúrunni í rúm 25 ár Indókínverskur Um 350 Þeir lifa þar allt árið Áætlaður fjöldi dýra af hverri undirtegund Malasískur 250-340 Heimkynni tígra Þeim hefur líklega verið útrýmt þar Heildarfjöldi: 2.154 - 3.159 fullvaxta dýr skv. gögnum IUCN NEPAL 235 sáust þar í náttúrunni í ár en aðeins 121 árið 2009* BÚTAN KÍNA RÚSSLAND INDÓNESÍA MALASÍA INDLAND BANGLADESS VÍETNAM BÚRMA Í hættu Í hættu Í hættu Í hættu Í mikilli hættu Í mikilli hættu Í mikilli hættu eða hugsanlega útdauð Staða: Aðeins sex undirtegundir tígra eru eftir í heiminum  Þrjár undirtegundir hafa dáið út og ein er mjög nálægt því Dansarar stíga dans í Blackpool Tower Ball- room undir upplýstu listaverki sem nefnist „Mánasafnið“ og er eftir breska listamanninn Luke Jerram. Sýningin í danssalnum er liður í árlegri sjónlistahátíð í miðborg Blackpool, Lightpool Festival. Á hátíðinni er m.a. blandað saman ýmsum ljósinnsetningum og gjörningum á mörgum stöðum í Blackpool á Norðvestur- Englandi, að sögn fréttaveitunnar AFP. AFP Dansað undir Mánasafninu í Blackpool Lögreglan á Flórída handtók í gær 56 ára gamlan mann sem grunaður er um að hafa sent sprengjur í pósti til demókrata og fleiri manna sem hafa gagnrýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bandarískir embættismenn sögðu að maðurinn héti Cesar Sayoc og fleiri kynnu að verða handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Hann var hand- tekinn við verslunarmiðstöð í bænum Plantation á Flórída. Bandarískir fjölmiðlar sögðu að maðurinn væri á sakaskrá og hefði tengsl við New York-borg. Í gær höfðu alls tólf sprengjur fundist í pökkum sem reynt var að senda Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, Hillary Clinton, fyrrv. forsetaefni demókrata, og fleiri mönnum sem hafa gagnrýnt Trump, m.a. leikaranum Robert De Niro. Síðustu tvær sprengjurnar fundust á Flórída og í New York-borg í gær. Trump óskaði lögreglunni til ham- ingju með handtökuna og fordæmdi póstsendingarnar, lýsti þeim sem „fyrirlitlegum“ ógnarverkum. Sprengju- maður handtekinn H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi, samsetningu og sölu á heimsþekktum og þrautreyndum vörum sem notaðar eru í útbyggingar, svalalokanir, glugga, rennihurðir og fleira. Velta 250 mkr. og mikil verkefni framundan. • Ungt og hratt vaxandi veitingastaður (2 staðir) þar sem áhersla er lögð á hollan skyndibita í hádeginu og á kvöldin. Veltan í ár áætluð 280 mkr. og EBITDA 20 mkr. Miklir möguleikar á að fjölga stöðum undir vörumerkinu sem hlotið hefur góðar viðtökur. • Lítið framleiðslufyrirtæki sem framleiðir sérhæfða vöru fyrir heimili og fyrirtæki. Velta um 40 mkr. nokkuð stöðug. Afkoma jöfn og góð. • Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr. og EBITDA 25-40 mkr. • Rótgróið iðnfyrtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vörum úr plasti. Ársvelta á bilinu 250-300 mkr. • Ein þekktasta hárvöruheildverslun landsins með mjög þekkt merki fyrir fagaðila. Góð velta og afkoma. • Fyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum á afmörkuðu en þekktu sviði leitar eftir auknu hlutafé. Spennandi fjárfestingakostur með miklum möguleikum á arðsemi, gangi áætlanir eftir. • Mjög gott fyrirtæki sem sérhæfir sig í lagningu á þakdúk sem það flytur sjálft inn. Veltan á bilinu 150-200 mkr. og afkoman mjög góð. Eigendur tilbúnir að vinna áfram eins og þörf krefur. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.