Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Allepilla. AFP. | Sólin hafði verið á lofti í um klukkustund þegar hópur glaðværra barna frá þorpinu Allep- illa á Fílabeinsströndinni hóf um klukkustundar langa göngu í skól- ann sinn. Engin rafveita er í þorpinu en um kvöldið þegar börnin voru komin heim gátu þau lokið heima- vinnunni með því að nota ljós frá bakpokanum sínum því að hann er með sólarrafhlöðu sem hleður sig þegar þau ganga á leiðinni í eða úr skóla. Rafhlaðan endist í um þrjár klukkustundir þegar hún er notuð til lýsingar. Allepilla er um 100 kílómetra norðan við Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar. Íbúar þorpsins lifa aðallega á kakó- og kaffiframleiðslu. Þeir eru um 400, þar af 150 börn, og ein dæla sér þeim fyrir vatni. Eins og í þúsundum ann- arra þorpa í landinu er engin raf- veita í Allepilla og íbúarnir nota olíu- lampa eða rafhlöðuluktir til lýsingar. Sló tvær flugur í einu höggi Bakpokarnir eru gjöf frá góð- gerðarhreyfingunni Yiwo Zone sem beitir sér fyrir menntun stúlkna í sveitahéruðum Fílabeinsstrandar- innar og víðar í Afríku. Hreyfingin hefur safnað fé fyrir bakpokunum sem kosta jafnvirði tæpra 2.800 króna hver. Tölvusalinn Evariste Akoumian fékk þá hugmynd að sjá börnum fyr- ir bakpoka með sólarrafhlöðu árið 2015 þegar bíllinn hans bilaði að kvöldi til í sveit á suðvesturhluta Fílabeinsstrandarinnar. „Ég sá þá börn á göngu á leiðinni heim úr skóla,“ sagði hann. „Ég sagði við sjálfan mig að við yrðum að sjá til þess að þau fengju ljós til að geta lært. Það er ekki eðlilegt að sveita- börn hafi ekki ljós til að læra heima.“ „Þessi sveitabörn eru fátæk,“ hélt Akoumian áfram. „Þau nota grjóna- poka eða plastpoka í staðinn fyrir skólatösku. Hugmyndin var að slá tvær flugur í einu höggi: að gefa þeim bakpoka og ljós þar á ofan.“ Frumkvöðullinn lagði áherslu á að bakpokarnir væru ætlaðir börn- unum. „Mamma þeirra eða pabbi geta ekki komið og tekið ljósið af þeim til að nota það þegar þau eru að elda eða sinna öðrum heimilis- störfum.“ Fyrirtæki Akoumians framleiðir bakpokana og salan hefur gengið framar vonum. Það hefur nú þegar selt 55.000 bakpoka, meðal annars í Gabon, Madagaskar og Búrkina Fasó, auk þess sem góðgerðar- samtök í Frakklandi og Þýskalandi hafa keypt þá handa fátækum börn- um í Afríku. Akoumian leitar nú eftir fjárhagsaðstoð eða láni til að geta reist nýja verksmiðju í Abidjan til að anna eftirspurninni. „Bakpokarnir virðast ef til vill vera ódýrir en þetta eru háar fjár- hæðir sem íbúar þorpanna eiga ekki,“ sagði Anna Corinne Menet Ezinlin, formaður Yiwo Zone. „Hér í Allepilla hafa sumir íbúanna ekki efni á að borga skólagjöldin eða kaupa glósubækur.“ AFP Ljós í myrkri Stúlkur lesa við ljós frá bakpoka með sólarrafhlöðu í Allepilla sem er án rafveitu eins og mörg önnur þorp á Fílabeinsströndinni. Fá ljós í myrkr- inu til að læra  Börn fá bakpoka með sólarrafhlöðu AFP Gagnleg gjöf Börn bíða eftir því að fá bakpoka með sólarrafhlöðu í þorpi á Fílabeinsströndinni. Góðgerðarhreyfingin Yiwo Zone gefur bakpokana. Mörg ganga ekki í skóla » Þúsundir þorpa á Fílabeins- ströndinni eru án rafveitu en ríkisstjórn landsins stefnir að því að um 80% heimila lands- ins verði með rafmagn. » Mörg börn á aldrinum sex til tíu ára ganga ekki í skóla á Fílabeinsströndinni vegna fá- tæktar. » Margir fullorðnu íbúanna eru ólæsir. Um 60% karlmann- anna kunna að lesa en aðeins tæp 39% kvennanna. Formaður Kristilega þjóðarflokks- ins í Noregi, Knut Arild Hareide, vill að hann hætti að styðja hægri- stjórn landsins undir forystu Ernu Solberg forsætisráðherra og myndi ríkisstjórn með Verka- mannaflokknum. Hægriflokkurinn, Framfara- flokkurinn og Frjálslyndi flokkur- inn (Venstre) eiga aðild að stjórninni sem var mynduð eftir þingkosningar í fyrra með stuðn- ingi Kristilega þjóðarflokksins. Hareide og fleiri þingmenn flokksins vilja að hann hætti að styðja hægristjórnina en flokkur- inn er klofinn í málinu og aðrir þingmenn vilja frekar að hann gangi í stjórnina. Deilan verður út- kljáð á landsþingi flokksins föstu- daginn 2. nóvember. Hareide hef- ur gagnrýnt yfirlýsingar Sylvi Listhaug, varaformanns Fram- faraflokksins, sem lét af embætti ráðherra dóms- og innflytjenda- mála í mars eftir að hún hélt því fram að Verkamannflokkurinn teldi réttindi hryðjuverkamanna vera mikilvægari en öryggi norsku þjóðarinnar. Hareide segir að flokkur sinn sé miðjuflokkur og eigi að mynda stjórn með flokkum sem séu næst miðjunni. Stjórn Solberg gæti fallið  Hareide vill mynda stjórn með Verka- mannaflokknum Knut Arild Hareide Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. SMÁRALIND – KRINGLAN Gjafavara fyrir alla ULLARTEPPI Frá 14.900 KÚRUBANGSI 3.590 BRAUÐBOX Frá 11.900 TULIPOP LAMPI 11.900 VIÐARBRETTI 7.900 POPPSKÁL 2.590 HEKLA KERTI 1.990 BRÚSI 2.790 IITTALA SKÁ 2. stk 4.190 L ULLARÓRÓI 4.290

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.