Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.10.2018, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Áopna skákmótinu á Mönþar sem teflt er í þremurstigaflokkum gefst nokkr-um af yngstu og efnileg- ustu skákmönnum landsins kostur á að sitja og tefla í námunda við helstu stjörnur skákarinnar í dag, þar af tvo fyrrverandi heimsmeistara, þá Vladimir Kramnik og Wisvanathan Anand, og tvo sem teflt hafa heims- meistaraeinvígi: Boris Gelfand og Sergei Karjakin. Í fyrra mætti heimsmeistarinn Magnús Carlsen til leiks og svo skemmtilega vildi til að hann dróst á móti Birki Erni Bárð- arsyni í fyrstu umerð, vann þá skák og síðan mótið. Þá – en ekki nú – var raðað í fyrstu umferð á tilviljana- kenndan hátt sem varð m.a. til þess að Fabiano Caruana mætti Vladimir Kramnik í fyrstu umferð. Í stigahæsta flokknum geta skák- menn tekið þátt sem hafa 2100 elo- stig og meira og þar tefla auk grein- arhöfundar, sem er fararstjóri, þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragnarsson, Gauti Páll Jónsson og Aron Thor Mai. Þetta mót er svo sterkt að fyrirfram gátu menn geng- ið að því vísu fá öflugan andstæðing í hverri umferð. Dagur Ragnarsson hefur náð sér vel á strik eftir að hafa tapað tveimur fyrstu skákum sínum, fékk 2½ vinning í næstu þremur og átti unnið tafl gegn geysiöflugum andstæðingi í sjöttu umferð en missti stöðuna niður í tímapressu undir lokin. Greinarhöfundur er að tefla á sínu fyrsta móti á þessu ári og hefur gengið nokkuð vel og er þegar þetta er ritað með 3½ vinning af sex. Efstu menn voru þessir: 1.-6. Vac- hier Lagrave, Nakamura, Wojtas- zek, Wang Hao, Naiditsch og Jeff- rey Xiong með fimm vinninga. Hálfum vinningi á eftir koma kappar á borð við Anand, Kramnik og Karjakin en þeir sitja með nokkr- um öðrum í 7.-17. sæti. Þrír íslenskir piltar tefla svo í næsta styrkleikaflokki fyrir neðan eða Major-flokknum sem svo er nefndur. Tveir þeirra eru í barátt- unni um sigurinn, Stephan Briem var eftir fjórar umferðir af sjö með þrjá vinninga og var í 3.-10. sæti og Alexander Oliver Mai með 2½ vinn- ing í 11.-14. sæti. Skáklistin á okkar tímum krefst geysimikillar þekkingar á byrjunum og sum afbrigðin verið rannsökuð í þaula með öflugum forritum áður en sest er að tafli. Á þessu fékk Boris Gelfand að kenna í 5. umferð er hann tapaði fyrir lítt þekktum Þjóðverja sem greinilega kann ýmislegt fyrir sér. Gelfand, sem er mikill byrjana- sérfræðingur, ákvað að taka slaginn í flóknu afbrigði þar sem hvítur fórn- ar peði í byrjun tafls. Þannig tefldi Kasparov stundum þegar hann var upp á sitt besta en á einstiginu skrikaði Gelfand fótur: Opna mótið á Mön 2018: Rasmus Svane – Boris Gelfand Enskur leikur 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 c5 4. Rf3 cxd4 5. Rxd4 Dc7 6. Rc3 a6 7. Bg2 Dxc4!? 8. 0-0 Rc6 9. Rb3 d5 10. Bf4 Be7 11. Hc1 Db4 12. a3 Db6 13. e4 dxe4 14. Be3 Dc7 15. Rc5 0-0 16. R5xe4 Bd7 (Vélarnar telja stöðu svarts erfiða viðfangs og að betra hefði verið að leika 16. … Rxe4 17. Bxe4 Bd7 eða 16. … Da5 strax. Niðurstaðan er kannski sú að svartur hefði átti að sleppa peðsráninu í 7. leik.) 17. Rxf6+ Bxf6 18. Ra4! (Notfærir sér veikleikana á svörtu reitunum.) 18. … Be7 19. b4! Hae8? 20. Bb6 Dd6 (Eða 20. … Dc8 21. Rc5 o.sfrv. ) 21. Dxd6 Bxd6 22. Hfd1 Re7 23. Rc3 Rd5 24. Bxd5! exd5 25. Hxd5 He6 26. Hcd1 Bb8 27. Hxd7 Hxb6 28. Rd5 He6 29. Re7+ Kh8 30. Hd8 He1+ 31. Kg2! – og Gelfand gafst upp. Sterkasta opna mót ársins fer fram á Mön Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Chessbase Skák Boris Gelfand við upphaf skákar sinnar við Aronjan. Við hlið hans situr Anand, þá Kramnik og síðan Anish Giri. Atvinna Svar marxíska þríeykisins vegna gagn- rýni minnar um sóun á almannafé til bylting- arrómantíkur ’68 kyn- slóðarinnar sýnir að gagnrýnin á fullan rétt á sér og það var rétt ákvörðun hjá mér að neita að taka þátt í að reisa minnismerki þeirra um sendiráðstökuna í Stokk- hólmi 1970. Segja þau þessa árás á íslenska lýð- veldið vera „minnisverðan atburð um mótspyrnu og hugrekki“. Sannleik- urinn er sá að 11 námsmenn klufu sig frá almennri kjarahreyfingu náms- manna þess tíma og hertóku sendiráð Íslands og lýstu yfir sósíalískri bylt- ingu. Að fá milljónir af peningum skatt- greiðenda til að hylla árásina 50 árum síðar er bæði tímaskekkja, fullkomið skilningsleysi og um leið afneitun á glæpaverkum komm- únismans sem þekkt eru í dag. Kvikmyndasjóður og RÚV eru meðsek. Í svari sínu hylla þau „fagrar hugsjónir sósíal- ismans“ en nýjustu dæmi úr þeim ranni er að sjá í Venesúela í dag. Neyðin er svo mikil að fólk brýst inn í dýragarða og fargar dýrum sér til matar. Jafnvel heimilishundum er breytt í matarbita til að framlengja lífið smástund. Það litla sem er til sölu af matvælum er á okur- verði sem venjulegt fólk ræður ekki við. Ef framleiðendur myndarinnar hefðu einhvern áhuga á að kynna sér hryðjuverkastarfsemi í heiminum sæju þeir fljótt að margir vel menntaðir ein- staklingar frá efnuðum heimilum ánetjast vopnuðu ofbeldi og margir slíkir hafa týnt lífinu m.a. í röðum ISIS. Sendiráðstakan er víti til varnaðar. Þetta getur gerst aftur með réttri blöndun heilaþvottar, áróðursmeistara, veruleikafirrtra ungmenna og eitur- lyfjaneyslu. Kvikmyndin ristir ekki djúpt í gerð heimildarmynda. Verið er að kreista síðasta gloríudropann úr sítrónunni 50 árum seinna og blanda með karla- grobbi og opinberum fréttaklippum. Starfsmaður á lyftara í myndinni er með málin á hreinu: Þetta er þjóðinni til ósóma. Þjóðinni til ósóma Eftir Gústaf Adolf Skúlason » Að fá milljónir af peningum skatt- greiðenda til að hylla árásina 50 árum síðar er bæði tímaskekkja, full- komið skilningsleysi og um leið afneitun á glæpaverkum kommún- ismans.Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er smáfyrirtækjarekandi og fv. ritari Smáfyrirtækjabandalags Evrópu. Eins og okkur þyk- ir vænt um lýðræðið þá hefur það nokkra agnúa sem snúa að tjáningarfrelsi. Tján- ingarfrelsið er ein af undirstöðum þess að við höfum virkt lýð- ræði. Nokkuð ber á því að fólk vill ekki hafa skoðun opinberlega. Hugsanlega er það ekki nýtilkomið, Nixon fyrrverandi forseti Banda- ríkjanna talaði um „þögla meirihlut- ann“. En hugsanlega er þetta nýtt á Íslandi að menn og konur veigra sér við að gefa upp skoðanir á dægur- málum og jafnvel hagsmunamálum. Margt kemur til. Háværir minni- hlutahópar, atvinnu- öryggi, álit samborgara. Þetta er ekki góð þróun fyrir tjáningar- frelsið og lýðræðið í heild. Hvetja þarf til víðsýni og umburðar- lyndis í garð ólíkra skoðana, hvort sem þær koma frá sitt hvoru kyninu eða blönduðum kynjum, hvítu fólki eða fólki með annan húðlit, staðbundnum inn- fæddum Íslendingum eða aðkomnum o.s.frv Það er ekki góð þróun að fólk þori ekki að tjá sig opinberlega. Fáir hafa hugrekki Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar eða annarra sem taka slaginn. Trump, núverandi forseti Banda- ríkjanna, er úthrópaður, vegna skoð- ana sinna og framkvæmda. Allir eiga að eiga rödd og við verðum að sýna umburðarlyndi, miskunnarleysi og vit til að virða ólíkar skoðanir fólks. Það er und- irstaða tjáningarfrelsisins og lýð- ræðisins, sem við viljum öll lifa við. Hugleiðing um lýð- ræðið og tjáningarfrelsið Eftir Guðmund Ingason Guðmundur Ingason » Það er ekki góð þró- un að fólk þori ekki að tjá sig opinberlega. Fáir hafa hugrekki Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar eða annarra sem taka slaginn. Höfundur er framkvæmdastjóri og eigandi G. Ingason hf., útflutnings- skrifstofu sjávarafurða. gingason@gingason.com DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA Flamenca Village, Playa Flamenca Allegra, Dona Pepa Arenales del Sol, Los Arenales Mare Nostrum, Guardamar Gala, Villamartin Muna, Los Dolses

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.