Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 34

Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 ✝ Hilmar Rós-mundsson fæddist á Siglufirði 16. október 1925. Hann lést á Hraun- búðum, dvalar- heimili aldraðra í Vestmannaeyjum, 10. október 2018. Foreldrar hans voru María Jó- hannsdóttir hús- freyja, f. 23.7. 1891, d. 27.11. 1969, og Rósmundur Guðnason sjómaður, f. 6.3. 1900, d. 23.7. 1967. Tvíburasystir Hilmars var Erna, d. 20.12. 2014, og bróðir Hafþór, f. 4.6. 1943. Systkini samfeðra voru Regína, f. 29.10. 1923, d. 7.2. 2009, og Guðni, f. 26.11. 1926, d. 23.2. 1953. Hilmar eignaðist dótturina Hebu, f. 11.9. 1945, d. 25.7. 1996. Eiginmaður hennar er Guðmundur Björnsson, f. 1944, og börn þeirra eru Guðmundur Sævin, f. 1966, Halla Birna, f. 1969, og Rakel Sif, f. 1973. Hilmar kvæntist 24.10. 1950 Rósu Snorradóttur, f. 3.9. 1927, d. 24.7. 2015. Þau slitu samvistir 1986. Dætur þeirra eru Hafdís Björg, f. 29.6. 1953, og Sædís María, f. 5.2. 1960. Sambýlis- maður Hafdísar er Gottskálk anum í Reykjavík árið 1950. Hilmar var skipstjóri á fiski- skipum frá árinu 1955 og út- gerðarmaður frá árinu 1959. Hilmar fór í útgerð árið 1960 á 50 tonna bát, sem nefndur var Sæbjörg. Bátinn misstu þeir 1964 þegar óstöðvandi leki kom að honum í róðri. Þá keyptu þeir Sigurfara frá Akranesi og nefndu hann einnig Sæbjörgu. Hilmar var aflakóngur Vest- mannaeyja árin 1967 og 1968. Árið 1969 var Sæbjörg VE afla- hæsti bátur landsins. Hilmar var alla tíð ötull fé- lagsmálamaður og var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmannaeyjum. Hann sat í stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum, var í Útvegs- bændafélagi Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri þess um ára- bil. Einnig sat hann í stjórn Landssambands íslenskra út- vegsmanna (LÍÚ) og var vara- maður í bankaráði Útvegsbanka Íslands hf. Þá sat Hilmar í stjórn Norðlendingafélagsins í Vestmannaeyjum. Hann var varaþingmaður Framsóknar- flokksins í Suðurlandskjördæmi og tók sæti á Alþingi haustið 1978. Hilmar var heiðraður ásamt fleiri öldruðum sjómönn- um af sjómannadagsráði Vest- mannaeyja á sjómannadeginum 1998. Útför Hilmars fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 27. október 2018, klukkan 13. Ágúst Guðjónsson, f. 1955. Synir Haf- dísar af fyrra hjónabandi eru: 1) Hilmar Þór, f. 1974, d. 1991. 2) Hafþór Bjarni, f. 1978, eiginkona Guðríður Sæmundsdóttir, börn Sara Dögg, Aron Atli, Sindri Þór og Sæbjörg Þóra. 3) Hlynur Sæberg, f. 1980, eiginkona Sig- urbjörg Skúladóttir, börn Hilm- ar Máni, Haukur Snær, Brynjar Már og Marín Rós. 4) Heiðar El- ís, f. 1985, eiginkona Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, börn Gunn- ar Helgi, Kristján Örn og Hekla Rut. Eiginmaður Sædísar er Guðlaugur Sigurgeirsson, f. 1956. Synir þeirra eru: 1) Sigur- geir, f. 1976, eiginkona Þórunn Bolladóttir, synir Aron Fannar, Ísak Andri og Guðlaugur Breki. 2) Einir, f. 1984, unnusta Hildi- gunnur Sigurðardóttir, dóttir Þórunn Jakobína. 3) Birkir, f. 1984, eiginkona Heiður Hall- freðsdóttir, dætur Helena Björk og Viktoría Kara. Hilmar lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Siglufirði og fiskimannaprófi hinu meira frá Stýrimannaskól- Komið er að kveðjustund, elsku pabbi, nú ertu kominn í örugga höfn. Margar eru minningarnar og af mörgu að taka. Ég ólst upp við að pabbi var sjó- maður. Ég fór með honum í tvær siglingar erlendis á Sæbjörginni. Pabbi var frá Siglufirði. Við fórum þangað nokkrum sinnum meðan amma og afi voru á lífi. Ég á skemmtilegar minningar af bryggjurölti og síldarplani þar sem verið var að salta síld. Pabbi var í Norðlendingafélag- inu í Vestmannaeyjum. Fyrir þorrablót sem þar voru haldin var meðal annars steikt laufabrauð. Komu vinir pabba þá í heimsókn með skurðarbretti og vasahnífa og skáru þeir út falleg listaverk í brauðið. Mér fannst mjög gaman að fylgjast með þessu. Pabbi hafði gaman af að syngja við ýmis tækifæri. Ég fór með honum nokkrum sinnum í kirkju þar sem hann söng manna hæst og ég var mjög hreykinn af hon- um. Pabbi var kraftmikill og fór hann t.d. í brúðkaup hjá yngsta syni mínum vestur á Þingeyri, þá orðinn 90 ára. Við Ágúst fórum af og til að heimsækja pabba í Sólhlíðina. Við fórum með honum í bíltúra að skoða Eyjuna og í heimsóknir til ættingja. Þegar heilsan fór að versna og hann var kominn á Hraunbúðir hittum við hann þeg- ar við gátum. Pabbi átti góðan vin sem kom til hans nánast daglega. Við þökkum honum og starfsfólki Hraunbúða og annarra sem önn- uðust hann með virðingu og kær- leika. Ég kveð þig, elsku pabbi, með þökk í hjarta og veit að þér verður fagnað í himnanna sölum. Hafdís Björg Hilmarsdóttir. Elsku pabbi minn er farinn í ferðalagið mikla, þetta sem eng- inn kemst undan. Þó svo að ég hljóti að teljast nokkuð fullorðin, 58 ára gömul, þá finnst mér alveg ótrúlegt að eiga ekki lengur foreldra á lífi, en þetta er víst einn parturinn af öllu lífs- ferlinu. Pabbi var merkur maður, a.m.k í mínum augum. Hann var mikil félagsvera og áræðinn en um leið varfærinn og mikið sem honum þótti gaman að spila. Bæði brids og félagsvist voru í uppáhaldi og var hann sko í essinu sínu þegar vel gekk enda stóð hann oft uppi sem sigurvegari. En pabbi var líka söngelskur og söng þessa fínu millirödd. Á góðum stundum söng hann hátt, sem mér líkaði oftast vel en þegar ég sem krakki heyrði hærra í honum en heilum kirkju- kór Landakirkju á sunnudags- morgnum þá seig sú stutta niður á kirkjubekknum rjóð í vöngum og lét lítið á sér bera. Reyndar áttum við það til að taka lagið saman seinna meir og þá var spurning hvort okkar tæki milliröddina, mér þótti pabbi betri. Frá því barnabörnin komu í heiminn hvert á fætur öðru þá vildi pabbi alltaf vita hvernig þau hefðu það og hvort þeim vegnaði ekki örugg- lega vel í því sem þau voru að gera hverju sinni. Ekki minnkaði áhugi hans þegar langafabörnin komu til sögunnar, hann vissi allt um þau og nöfn þeirra vöfðust ekki fyrir honum þó hvert langafabarn beri tvö nöfn og séu sautján talsins. Í seinni tíð voru íþróttir mikið áhugamál og horfði hann nánast á hverja einustu íþróttagrein í sjón- varpinu en fótboltinn var samt númer eitt og hann mætti á flesta heimaleiki ÍBV ásamt frænda sín- um Didda Mar eða Sigursteini Marinóssyni, en þeir voru syst- kinasynir. Diddi lést á síðasta ári og sá pabbi mikið eftir sínum góða vini og frænda. Ætli þeir séu ekki búnir að hittast í sumarlandinu og jafnvel horfa á eins og einn leik eða svo? Í heildina tel ég að pabbi hafi átt frekar góð 93 ár þrátt fyrir brim og boðaföll bæði til lands og sjávar en svo ótal margt er líka þakkarvert eins og að hafa góða heilsu, því má ekki gleyma. Þegar pabbi kom heim af sjónum í gamla daga þá tók ég á móti honum með faðmlagi, pabbi fékk mitt síðasta faðmlag rétt áður en hann lést. Að lokum vil ég þakka frænda mínum Theodóri Ólafssyni fyrir einlæga vináttu og traust við pabba frá því þeir kynntust sem ungir menn og urðu síðan mágar og samstarfsfélagar til margra ára. Slík vinátta er ómetanleg. Einnig vil ég þakka bæði starfs- fólki og heimilisfólki Hraunbúða í Vestmannaeyjum fyrir hlýju og alúð í garð pabba og fjölskyldunn- ar allrar. Þið eruð æði. Karlinn í brúnni hefur kvatt í hinsta sinn. Þangað til næst, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Sædís María. Hann tengdapabbi er lagður af stað í sína hinstu siglingu og stendur eflaust keikur við stýrið og rýnir skarpskyggn í átt að áfangastað. Það þarf ekki að vera stórt himinfleyið er hann stýrir, frekar en þau fley sem hann stjórnaði á hafinu í gegnum tíðina. Í þessari för siglir reyndur og far- sæll skipstjóri, sem skilar fleyinu örugglega í höfn á góðum dvalar- stað. Hilmari kynntist ég fyrst af af- spurn, sem ungur drengur í Eyj- um, þegar fólkið í kringum mig ræddi dugnað og elju þessa skip- stjóra og mikla sjósóknara. Það var hart sótt á Sæbjörginni og mikið kapp lagt á að afla sem mest, enda var Hilma aflakóngur Eyjanna í nokkur skipti. Fólkinu var tíðrætt um aflabrögðin hjá mannskapnum á þessum litla báti og þótti undrum sæta að hann afl- aði mest allra og það jafnvel á landsvísu. Þrátt fyrir harðfylgni var hann farsæll skipstjóri, sem skilaði vel í þjóðarbúið. Seinna kynntist ég Hilmari bet- ur, þegar ég fór að gera mér dælt við dóttur hans og virtist hann taka því með jafnaðargeði. Fljótt mynd- aðist með okkur góður og traustur vinskapur enda víðsýnn og skemmtilegur karl þar á ferð. Það var ætíð stutt í glettnina hjá honum og húmorinn hárbeittur og beint í mark, sem mér líkaði einstaklega vel. Einhverju sinni var spjallað um komandi misseri og hvort erf- iðari tímar væru fram undan. Hilmar hélt nú ekki og hann hefði engar áhyggjur, hann ætti allt lífið fram undan, þá kominn vel á ní- ræðisaldur. Við ræddum ætíð mál- efni líðandi stundar og mér varð fljótt ljóst að Hilmar kunni skil og hafði skoðun á flestu sem samfélag okkar varðaði. Hann hafði sterkar skoðanir á stjórnmálunum og tjáði hug sinn á kjarnyrtan hátt, eins og sjóara er siður. Maður þurfti ekk- ert að geta í eyðurnar eða lesa á milli línanna. Hilmar sagði það sem honum bjó í brjósti, ekki með nein- um látum eða gífuryrðum, en það var auðskilið. Ætíð ræddi hann málefnin og minna um mennina. Aldrei heyrði ég hann tala um af- rek sín eða sinna manna, þegar fjallað var um aflabrögð fyrri tíma. Ég fékk á tilfinninguna að hann liti á sinn þátt sem hvert annað skylduverk og ekki væri ástæða til að hreykja sér af því. Allir í kring- um hann vissu þó að það sem áhöfnin á litlu Sæbjörginni skilaði á land vertíð eftir vertíð var næstum ofurmannlegt. Í bili er komið að lokum sam- fylgdar okkar Hilmars en aldrei er að vita nema við hittumst yfir kaffibolla í spjalli um málefni nýja dvalarstaðarins. Virðing mín á tengdaföður mínum er fölskvalaus og sönn. Fyrir samfylgdina og vin- skapinn vil ég þakka og frá mínum dýpstu hjartarótum sendi ég sam- úðarkveðjur til allra ættingja og aðstandenda. Þinn tengdasonur, Guðlaugur. Þegar haustið heilsar og skammdegið breiðir húmdökka slæðu yfir haf og land hefur skip- stjórinn lagt upp í sína hinstu för. Að leiðarlokum streyma minn- ingarnar fram og hugurinn reikar til æskuáranna á Illugagötunni, þar sem ég ólst upp hjá ykkur ömmu Rósu fyrstu tíu ár ævinnar. Sjómannslífið hafði óhjákvæmi- lega í för með sér að þú varst oft að heiman, en þegar þú varst í landi var iðulega fjör. Fótbolta- leikir á svefnherbergisganginum, sandkassasmíði á veröndinni, grænmetisrækt í garðinum og bryggjurúntur á rauða pallbíln- um. Ég var heldur ekki hár í lofti þegar þú kenndir mér manngang- inn og í ófá skipti sátum við saman við eldhúsborðið og tefldum eða gripum í spil. Ein af mínum fyrstu bernsku- minningum er fyrir utan gömlu sjoppuna við Bárustíginn. Sólin skein og við höfðum labbað niður í bæ til að kaupa bland í poka. Þú hittir kunningja þinn og þið tókuð tal saman, en eitthvað fór mér að leiðast. Ég fór því að klifra upp á stæðilega steypuklumpa sem lágu við sjoppuna, en ekki vildi betur til en svo að ég datt beint á hausinn og fékk stærðarinnar skurð á enn- ið. Þá varst þú nú ekki að tvínóna við hlutina, vippaðir mér alblóðug- um í fangið og labbaðir með mig upp á spítala þar sem saumuð voru þónokkur spor. Verst þótti mér þó að fá aldrei nammið. Með árunum fækkaði því miður samverustundunum, þar sem þú bjóst áfram í Eyjum en ég og mín fjölskylda uppi á landi. Þó var að- fangadagsbíltúrinn hjá okkur feðgum til ykkar Dúnu þau jól sem þú dvaldir í Kópavoginum fastur punktur í jólahaldinu. Þá var glatt á hjalla. Jafnframt var alltaf gaman að heimsækja þig í Eyjum og spjalla um heima og geima. Þess á milli heyrðumst við í síma og þrátt fyrir háan aldur varstu ávallt með á hreinu hvað allir mínir voru að gera, hvort sem var í leik eða starfi. Aldrei kom ég heldur að tómum kofanum hjá þér þegar kom að íþróttaúrslitum, stjórnmálum eða helstu þrætuepl- um þjóðmálaumræðunnar. Þó heyrnin hafi verið farin að daprast síðustu ár þá fylgdist þú svo sann- arlega vel með mönnum og mál- efnum allt til hinsta dags. Þú hafðir einnig gaman af mannamótum og áttir stóran hóp vina og kunningja. Mér er minnis- stætt þegar ég heimsótti þig skömmu fyrir níræðisafmælið þitt og spurði af þessum sökum hvort þú ætlaðir ekki að slá upp veislu í tilefni áfangans. En þá stóð ekki á svari: „Nei, það geri ég sko ekki fyrr en í fyrsta lagi þegar ég verð hundrað.“ Við munum örugglega slá upp aldarafmælisveislunni þinni þegar þar að kemur, en þangað til höld- um við fast í minningarnar um skipstjórann okkar sem ávallt stóð sterkur í lífsins ólgusjó. Á kveðju- stund er mér efst í huga þakklæti fyrir öll árin sem ég bjó hjá ykkur ömmu í Eyjum, þakklæti fyrir leiðsögn þína og stuðning í gegn- um lífið og fyrir ævarandi vináttu sem aldrei þvarr. Nú þegar þú hefur ýtt úr vör í hinsta sinn er ómetanlegt að hafa heimsótt þig um þjóðhátíðina og jafnframt að hafa náð að taka utan um þig og smella kossi á kinn dag- inn áður en þú skildir við. Þær minningar munu lifa. Elsku afi, hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Sigurgeir Guðlaugsson. Elsku besti afi, kafteinn Hilmar Rósmundsson, hefur nú kvatt í hinsta sinn. Sem betur fer áttir þú langa og viðburðaríka ævi og varst ávallt heilsuhraustur og svo vel að þér um málefni líðandi stundar, hvort sem var í pólitík eða nýjustu úr- slitum í fótboltanum. Þú naust vel- gengni í hverju sem þú tókst þér fyrir hendur og áttir marga góða og trausta vini. Þú varst fæddur í þennan heim til að verða skipstjóri og inntir það starf af hendi af mik- illi list. Duglegur, úrræðagóður, þrautseigur, lausnamiðaður og áræðinn eru aðeins örfá lýsingar- orð sem lýsa þeim manni sem þú hafðir að geyma. Minningarnar sem hellast yfir okkur á svona stundum eru marg- ar, samverustundir í Eyjum, jól og áramót, þjóðhátíðir, vani þinn að hringla í klinkinu sem þú varst með í vasanum, bankið þitt með puttunum í borðið og margt fleira. Ein minning sem hefur alltaf verið í uppáhaldi er þegar þér var falið að passa okkur tvíburana þeg- ar við vorum sex ára gamlir. Að vissu leyti varst þú af gamla skól- anum og hafðir kannski ekki ýkja mikla reynslu, hvorki af barna- pössun né af því hvað elda skyldi fyrir barnabörnin. Þegar kom að kvöldmatartíma spurðir þú hvort það væri í lagi að panta pítsu. Við tvíburarnir vorum auðvitað sáttir með þá tillögu og borðuðum vel. Þegar langt var liðið að miðnætti hafðir þú áhyggjur af því að við þyrftum að borða meira fyrir svefninn. Þá var brugðið á það ráð að sjóða pylsur í kvöldkaffi og voru þær borðaðar með bestu lyst um miðnætti. Þetta fannst okkur bræðrum æðislegt, enda óvanir tveimur slíkum veislum sama kvöldið. Á þessum tíma bjóst þú tveimur húsum neðar en við á Tún- götunni og eftir þessa pössun var oft spurt hvort við mættum ekki frekar fara í mat til afa, það væri skemmtilegra að borða hjá honum. Þó heyrnin hafi verið farin að segja til sín á efri árum, þá var hugurinn og meðvitundin í fullu fjöri og alltaf vissir þú upp á hár hvað var í gangi „í borginni“. Við höfðum svakalega gaman af því að hlusta á frásagnir þínar af sjó- mannslífinu og voru þær ótal- margar. Við vorum alltaf svo montnir af því að geta sagt að afi væri að vinna á Herjólfi, og hvað þá að hann hafi verið aflakóngur heil þrjú ár í röð. Þér var margt til lista lagt og það er deginum ljós- ara hvaðan mamma fékk milli- röddina þegar kemur að söng. Ekki má heldur gleyma öllum þeim góðu og skemmtilegu kaffi- stundum sem þú eyddir með okk- ur í Foldahrauninu. Alltaf komst þú sjálfur keyrandi, kominn hátt í nírætt, geri aðrir betur. Það var ætíð skemmtilegt að vera í návist þinni, en nú koma því miður minn- ingar í stað félagsskaparins. Elsku afi, kveðjustundir eru alltaf sárar, sérstaklega þær sem varanlegar eru. Það verður afar einkennilegt að heimsækja Vest- mannaeyjar án þess að heimsækja þig. Við vonum hins vegar og trú- um að þú hafir fengið hvíldina góðu og vakir yfir þínum hópi um- vafinn vinum, kunningjum, fjöl- skyldu og öðrum englum. Takk fyrir samfylgdina í þessari sjóferð, höfðingi! Hvíldu í friði, elsku afi Hilmar, við söknum þín. Einir og Birkir Guðlaugs- synir og fjölskyldur. Hilmar Rósmundsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR GRÉTAR HANNESSON bóndi, Hækingsdal, Kjós, lést fimmtudaginn 25. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, ELÍN HELGA HANNESDÓTTIR, Tjarnalundi 11c, Akureyri, lést sunnudaginn 21. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 7. nóvember klukkan 13.30. Eðvarð Þór Eðvarðsson Anton Gauti og Guðrún Edda Hannes Haraldsson Guðrún Guðmundsdóttir Haraldur Örn Hannesson Björk Birkisdóttir Guðmundur Hannesson Herdís Arnórsdóttir Gauti Már Hannesson Brynja Eysteinsdóttir Sverrir Hannesson Hannes Rúnar Hannesson Vilborg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.