Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 42

Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Ég ætla að njótadagsins meðfjölskyldunni og fer svo á ball í kvöld í félagsheimilinu hérna á Hvammstanga,“ segir Rakel Runólfsdóttir, sem á 40 ára afmæli í dag. Um er að ræða uppskeruhátíð hesta- manna, sem er stór við- burður í sveitinni, en Rakel ætlar að láta duga að mæta á sjálft ballið en ekki árshátíð- ina. „Svo erum við 6 pör að fara í næstu viku í siglingu um Karíba- hafið og það er í tilefni afmælisins.“ Rakel er umsjónar- maður dreifnáms á Hvammstanga sem er framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra á Sauðárkróki, en Rakel hefur haldið utan um deild- ina frá því að hún var sett á laggirnar árið 2012. Þetta var fyrsta dreifnámið hjá FNV áður en deildirnar á Blönduósi og Hólmavík bættust við ári seinna. „Með þessum deildum þurfa nemendurnir ekki að fara að heim- an áður en þeir verða sjálfráða. Við höfum verið með 10-15 nem- endur og fer kennslan fram í gegnum fjarfundabúnað í tveimur til þremur kennslustofum, en öll kennslan fer fram á Sauðár- króki.“ Rakel er grunnskólakennari að mennt og er með diplómu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur verið iðin við félagsmál, sat eitt kjörtímabil í sveitarstjórn Húnaþings vestra og situr núna í fag- ráði Nýsköpunar- og uppbyggingarsjóðs SSNV. Hún er einnig í Soroptimistaklúbbi Húnaflóa. Helsta áhugamál Rakelar er að fara á skíði. „Ég fer alltaf á skíði þegar ég get. Mér finnst skemmtilegast að fara á skíði á Siglufirði, en ég er fædd þar og uppalin, en fer líka í Tindastól og Hlíðarfjall á Akureyri. Það er komin smáföl hjá okkur og ég er farin að hlakka mikið til að komast á skíði.“ Eiginmaður Rakelar er Jóhannes Kári Bragason, smiður og eig- andi Tveggja smiða. Börn þeirra eru Karen Ásta 20 ára, Dagur Smári 19 ára, Aron Óli 15 ára og Ari Karl 8 ára. Ætlar á ball í kvöld í félagsheimilinu Rakel Runólfsdóttir er fertug í dag Skíðakonan Rakel Runólfsdóttir. J ón Hjörleifur Jónsson fæddist á Arnarstöðum í Núpasveit 27.10. 1923 og ólst þar upp við almenn sveitastörf þess tíma. Hann var í barna- og unglingaskóla að Snartarstöðum í Núpasveit, stundaði nám við Laugaskóla í Suð- ur-Þingeyjarsýslu 1942-43, lauk kennara- og söngkennaraprófi við KÍ 1948, nam við Íþróttaskólann í Ollerup í Danmörku 1948-49, lauk BA-prófí í guðfræði frá Atlantic Union College í Bandaríkjunum 1955 og MA-prófi frá Andrews Uni- versity 1957. Jón vann við sauðfjárbúskap föður síns og var í vegavinnu á unglingsár- unum, vann eitt sumar að Laugum í Reykjadal og vann hjá Ræktunar- sambandi Flóa og Skeiða. Jón var kennari við barnaskóla aðventista í Vestmannaeyjum 1949- 50, kennari við Hlíðardalsskóla í Ölf- usi 1950-53 og 1967-64 og skólastjóri þar 1964-72, kristniboði í Gana 1976- 80 og prestur og deildarstjóri að- ventista í Reykjavfk og á Akureyri í 14 ár. Auk almennrar kennslu sinnti Jón fimleikum og leikfimikennslu um áratugaskeið, allt frá Vestmanna- eyjum til Gana, enda maður katt- liðugur fram á efri ár. Jón var kórstjóri Aðventkirkj- unnar í Reykjavík um langt árabil, Kirkjukórs Hveragerðis og Kot- strandar í fimm ár, söngstjóri skóla- kórs og karlakvartetts Hlíðardals- skóla, stjórnandi Karlakórs Akur- eyrar 1973-76, menntaskólakórs Bo Kwai í Gana og Ekkós, kórs kenn- ara á eftirlaunum, var formaður Tónlistarfélags Akureyrar í eitt ár og sat þar í stjórn í þrjú ár. Hann var frumkvöðull að fimm daga áætl- un um námskeið til að hætta að reykja á vegum Íslenska bindindis- félagsins, ritari Landssambandsins gegn áfengisbölinu, átti sæti í stjórn Átaks gegn áfengi og var þar for- maður í eitt ár. Eftir Jón liggja fjölmargar sálma- þýðingar og frumortir sálmar og Jón Hjörleifur Jónsson, fv. prestur aðventista og skólastj. – 95 ára Trúboðinn Jón Hjörleifur og Sólveig sinntu trúboði í Gana á árunum 1976-80. Þar stjórnaði hann hörkugóðum kór. Kórstjórn, kennsla, prestsstörf og bindindi Hjón í 62 ár Jón Hjörleifur og Sólveig. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Halldóra Marín Sigurðardóttir og Sandra Ósk Skúladóttir voru svo duglegar og gjafmildar að selja hluta af dótinu sínu fyrir utan N1 í Sveitarfélaginu Vogum og gáfu Rauða krossinum á Suðurnesjum afraksturinn. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.