Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 45

Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Getur verið að þig langi til þess að kaupa eitthvað fallegt fyrir heimilið í dag? Þú vilt breyta heima hjá þér og fegra í leið- inni. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tal- ar. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu þér ekki bregða þótt einhver þér nákominn beri upp sérkennilega bón. Reyndu að hugsa jákvætt, það auðveldar hlutina. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gamall vinur er eins og grár köttur í kringum þig þessa dagana. Þú gengur með hugmynd í maganum sem á eftir að ganga upp og verða þér til heilla. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur tekið tímann sinn að vinna aðra á sitt band. Gerðu þitt besta en varastu að móðga aðra í leiðinni. Félagslífið stendur í miklum blóma. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fjölskylduleyndarmál geta komið upp á yfirborðið í dag. Þú ert potturinn og pannan í því að skipuleggja skemmtanir í fyrirtæk- inu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það sem heftir þig í að öðlast það sem þú þráir er kannski ímyndað – en alveg jafn áhrifaríkt. Vertu skilningsrík/ur og hlust- aðu vandlega á sjónarmið annarra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinir og vandamenn sækjast eftir tíma þínum og þú ættir að láta þeim hann í té eftir fremsta megni. Skrifaðu lista yfir kost- ina sem þú vilt að væntanlegur maki búi yfir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að leita til sérfræðinga með þín mál. Skoðaðu stöðuna vandlega áður en þú ákveður að breyta til. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu að fegra umhverfi þitt svolítið, til þess þarf svo sem ekkert stór- átak. Upprifjun á gömlum málum ýfir upp gömul sár sem þú hélst að væru gróin. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að gera það upp við þig hvort þú ætlar að halda áfram í vinnunni eða ekki. Notfærðu þér sambönd þín. Farðu í stutt ferðalag ef þú getur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú gerir yfirleitt allt á hlaupum sem hentar kannski ekki öllum. Hjólin eru farin að snúast þér í hag í vinnunni. Haltu áfram á sömu braut. 19. feb. - 20. mars Fiskar Í tilraunum þínum til að gera alla ánægða gæturðu gleymt meginatriðinu: líf þitt skiptir líka máli. Einhver þér eldri getur gefið þér góð ráð varðandi fjármálin. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hæð á landi líta má. Legstaður nú blasir við. Oft má finna fjósi hjá. Fjarska latt er mannkertið Harpa á Hjarðarfelli svarar: Ég flaskaði á bakka og borði. Blundar hérna draugur? Lausnin nálgast orð af orði orðið það er haugur. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Tel Himmelbjerget haug. Í haugi Gunnar sat. Fjóshauginn sugan saug, sælt letihaugur mat. Þessi er lausn Sigmars Ingason- ar: Víst má kalla hæðina haug horskir víkingar gista nú haug við fjósdyrnar jafnan fann ég haug fá verða störf hjá letihaug. Helgi Seljan svarar: Haug fékk ég litið landi á, legstaður fyrrum haugur var. Fjóshauginn margan mátti sjá og mikinn letihaug alls staðar. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hæð á landi haugur er. Haug við nefnum legstaðinn. Fjósi hjá á haugnum ber. Hauglatur er mannskrattinn. Þá er limra: Ört þenst út byggingabransinn, en brátt fer af mesti glansinn. Af lifandi draugum á látinna haugum er dátt stiginn hrunadansinn. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Hár mitt þó ég hafi reytt, hugsað fast með enni sveitt, ekki vill mér ganga greitt gátu að semja yfirleitt: Hún er stór, og hún er smá. Hún er með skeifu framan á Stafar henni fnykur frá. Fram sig teygir út í sjá. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er margur haugurinn Í klípu „Afsakaðu sumarhúsgögnin. Ég er í fríi þessa vikuna.” eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „Þessa málaði ég á ferð minni um Ástralíu.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að biðja hann fallega án þess að skipa fyrir. ER MÖGULEGT AÐ ODDI SÉ GÁFAÐRI EN HANN VIRÐIST VERA? NEIBBS BARA SVO ÞÚ VITIR ÞAÐ, ÞÁ MYNDI ÉG FÆRA FJÖLL FYRIR ÞIG! GÆTIRÐU TEKIÐ UPP ÞETTA KJÚKLINGA- BEIN! ÞAÐ ER NÆR ÞÉR! Víkverji dagsins ætti ef til vill aðforðast að gefa vísbendingar um aldur sinn, en hann man glöggt eftir því þegar Atli Eðvaldsson skoraði fimm mörk fyrir Fortuna Düsseldorf í leik gegn Eintracht Frankfurt 4. júní árið 1983. x x x Þetta hefur verið rifjað upp bæði áÍslandi og í Þýskalandi af því til- efni að serbneski knattspyrnumaður- inn Luka Jovic skoraði fimm mörk um helgina. Atli var þá fyrsti útlend- ingurinn til að vinna þetta afrek í vesturþýsku deildinni. Það er síðan full ástæða til að bæta því við að þetta tímabil, 1983/84, var Atli næst- markahæstur í þýsku deildinni ásamt Karli Allgöwer, félaga Ásgeirs Sigurvinssonar hjá Stuttgart, með 21 mark. Hann skoraði þriðjung marka Düsseldorf í deildinni þetta tímabil og skilaði það liðinu níunda sæti. Efstur á listanum var markahrókur- inn Rudi Völler hjá Bremen, en næstir á eftir komu Karl-Heinz Rummenigge hjá Bayern München með 20 mörk og Horst Hrubesch með 19 mörk. Hrubesch, sem hafði viðurnefnið skallaboltaskrímslið, varð þýskur meistari þetta ár með Hamburger Sportverein. x x x Árið eftir snerust fyrirsagnirnar áíþróttasíðum þýskra blaða um annan Íslending. Ásgeir Sigur- vinsson var þá á sínu öðru ári með VfB Stuttgart og tókst undir hans forustu að skjóta stórliðunum í Ham- borg og München ref fyrir rass. Liðið varð meistari með glæsibrag. Vík- verji man eftir að hafa horft á lýsingu á leik með leiðinu þar sem þulurinn átti ekki orð yfir hæfileikum Ásgeirs og hrópaði upp eftir eina snilldar- sendinguna að það væri synd að þessi maður væri með íslenskt vegabréf og kæmi ekki til greina í þýska lands- liðið. Karl-Heinz Rummenigge, sem leikið hafði við hlið Ásgeirs með Bay- ern München tveimur árum áður, sagði að liðið ætti honum meistaratit- ilinn að þakka og leikmenn búndes- lígunnar völdu hann leikmann ársins. Liðið átti eftir að njóta krafta Ás- geirs til 1990, en titlarnir urðu ekki fleiri. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn. (Lúkasarguðspjall 1.68) Snjóblásarar ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.isÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.