Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 2
E
n veturinn getur líka verið yndislegur.
Skammdegið verður jú rómantískt ef við bara
kveikjum á kerti eða búum svo vel að eiga ar-
in þar sem má láta eldinn loga. Snjórinn er
algjör himnasending ef hann
er nógu djúpur til að hægt
sé að skíða á hon-
um, og slabb-
ið … tjah, slabbið er
reyndar ekkert nema
leiðindin sama hvað.
Ef við bara undir-
búum okkur vel og höf-
um helstu nauðsynjar
klárar fyrir vetrarmán-
uðina er ekkert sem segir
að vetrarmánuðirnir geti
ekki verið eintóm sæla
hvort sem ætlunin er að
leggjast í híði uppi í sófa með
konfektkassa, eða spranga
um holt og hæðir á
gönguskíðum. Hér
eru nokkrir
ómissandi hluti
fyrir veturinn.
Ferðamál
frá Stelton
Heitir drykkir
hjálpa okkur að komast
í gegnum köldustu dag-
ana. Liturinn á þessu fag-
urbláa ferðamáli frá Stel-
ton gleður líka augað og
minnir okkur á að ekki þarft allt að
vera grátt og drungalegt á veturna.
Málið kostar 3.950 í netverslun
Casa.
Álafossteppi
Það gerir teppin frá Álafossi
hlýrri og notalegri en önnur teppi
að þau eru samofin þjóðarsálinni og
hafa yljað nokkrum kynslóðum Ís-
lendinga. Að hreiðra um sig í þægi-
legum hægindastól og breiða yfir
sig teppi er toppurinn á tilverunni á
köldum vetrardögum. Álafoss
framleiðir mikið úrval ólíkra teppa
en hestateppið, sem Guðrún Gunnarsdóttir hannaði, er í
uppáhaldi hjá mörgum. Svolítið kitchy kannski, en það
gerir makindastundirnar bara betri.
Hestateppið kostar 14.900 kr. á útsölu í netverslun
Álafoss.
Elgur fyrir baksturinn
Hjá Kokku er hægt að finna fjöldann
allan af útstungumótum. Elgurinn á
einkar vel við á veturna, og minnir á
skandinavíska vetrarrómantík, langar
nætur í rauðmáluðum bústöðum og
snævi þakta barrskóga. Deigið má svo
fá hjá Kötlu, tilbúið til að fletja út á
plötu og skera út: piparkökur, súkku-
laðibitakökur og jafnvel lakkrískökur.
Mótið kostar 390 kr. í netverslun
Kokku.
Stór skammtur af gæðalakkrís
Lakkrísinn frá Johan Bülow er
ekki sá ódýrasti sem hægt er að
kaupa, en það er líka mikil upplifun að bíta
í hvern einasta súkkulaðihúðaða mola. Er
alveg óhætt að láta eftir sér eins og eina
eða tvær krukkur til að stelast í þar
til sumarið kemur aftur. Vissara
samt að kaupa stóru krukkurnar
frekar en þær smáu, því minni
gerðirnar eiga það til að tæm-
ast grunsamleg hratt.
Classic-lakkrís frá Bülow
kostar 1.900 kr. í vefverslun
Epal.
Háskólabollinn
Það virðist eins og kakóið fái betra
bragð og ylji niður í dýpstu hjartarætur ef
það er drukkið úr bolla með sögu. Kannski
er uppáhaldsbollinn erfðagripur, eða ef til vill
fagurlega skreyttur bolli úr rússneskri
postulínsverksmiðju sem fannst í einni utan-
landsferðinni. Hjá þeim sem hafa gengið
menntaveginn er oft háskólabollinn í aðal-
hlutverki, og með hverjum sopa hægt að segja
með sjálfum sér: sjáið tindinn, þarna fór ég.
LSE bollinn kostar 8,50 pund í netverslun
London School of Economics.
Kattholtskisa
Ef einhver getur kennt okkur að hafa það huggu-
legt á veturna þá eru það kettirnir. Þeir finna sér
hlýjasta og þægilegasta staðinn á heimilinu og leggja
hann undir sig. Og oftast er þessi staður kjaltan á
elskulegum eiganda sem strýkur bak og klórar á bak
við eyrun og fær að launum djúpt og innilegt mal.
Ef aðstæður leyfa er upplagt að bæta við einum
loðnum og sætum heimilismeðlim. Hann bíður í Kattholti
með malvélina í viðbragðsstöðu.
Kisurnar má skoða á www.kattholt.is og ættleiðing-
argjaldið er 18.000 kr.
Allt sem þarf fyrir
notalegan vetur
Getty Images
Smá lúxus-
lakkrís léttir lund.
Montbolli
fyrir há-
menntaða.
Kisuknús verða extra
hlý og mjúk á veturna.
Smákökurnar
eru ómissandi.
Hestateppið
er íslenskt í
húð og hár.
Veturinn er ekki alltaf dans á rósum. Skammdegið getur valdið
sleni og þreytu, allt annað en skemmtilegt að skafa snjóinn af bíln-
um á morgnana, og enn verra að fara á milli staða fótgangandi,
með slabbið upp að hnjám og vindinn í fangið.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Litríkt mál
fyrir heita
kakóið.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumynd/
Thinkstock
V
eturinn er að bresta á og er það í okkar valdi hvernig við
tökum á móti honum. Ætlum við að vera illa búin og í fýlu
eða ætlum við að vera viðbúin og taka á móti honum með
gleði? Það er yfirleitt ekki mjög snúið að stilla lífið aðeins af
svo það verði nokkrum prósentum skárra. Það er til dæmis
mjög gott að vera komin/n á vetrardekk áður en fyrsti snjór-
inn kemur svo við þurfum ekki að eyða hálfum degi í biðröð á dekkja-
verkstæði. Það er líka ágætt að eiga sköfu til að skafa rúðurnar og vett-
linga svo við verðum ekki köld og
önug þegar við sköfum bílinn með
kreditkortinu.
Svo er ágætt að vera ekki á blank-
skóm og í sumarjakka þegar það fer
að frysta heldur í kuldaskóm og í
úlpu.
Í þessu blaði er hægt að fá góðar
hugmyndir af því hvernig þú getur
aukið lífsgæði þín í vetur og átt
ennþá betri stundir í kuldanum.
En hvað getum við gert svo lífið
verði nokkrum prósentum skárra?
Sérfræðingar sem talað er við í
þessu blaði segja að mataræði
skipti miklu máli og
að fólk noti ekki lík-
ama sinn sem
mannlega ruslafötu.
Við þurfum víst vít-
amín og bætiefni,
nægan svefn, minna
stress og meiri slök-
un. Einu sinni áttu allir
að vera trylltir í rækt-
inni til að eiga gott líf
en það virðist sem fólk
sé að kveikja á því að
hreyfing skilar litlum ár-
angri ef fólki leiðist mjög
mikið á meðan á henni
stendur. Þess vegna þurf-
um við að finna okkur
hreyfingu sem passar inn í
lífsstílinn okkar.
Íslend er paradís fyrir
þá sem elska að skíða, fara í fjallgöngur, hlaupa
eða synda í sjónum. Ef lífið á að vera aðeins
skárra þá þurfum við að gera meira af því
sem eykur gleðina. Það sem við þurfum bara
að passa er að vera rétt búin og hlusta á veð-
urspár. Æða ekki af stað í hvaða veðri
sem er heldur treysta þeim sem vita
betur. Ef við gerum það ætti lífið að
verða nokkuð innihaldsríkt og gott.
Hvað getur þú
gert svo veturinn
verði betri?
Marta María Jónasdóttir
NORSKIR
BRJÓSTDROPAR
RÓAR HÓSTA,
DREGUR ÚR
SÁRSAUKA
OG LOSAR UM
Í ENNIS- OG
KINNHOLUM.
DANSKIR
BRJÓSTDROPAR
MÝKIR HÁLS
OG STILLIR
ÞRÁLÁTAN HÓSTA.
FÁST Í NÆSTA APÓTEKI
Kremið Skin
Food frá Weleda
er nauðsynlegt í
vetur til að næra
húðina.
Vetrarúlpa
frá Vero
Moda er
skjólgóð.