Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 12
„Nei, það gefast ekki mörg tækifæri til þess en ég æfi nokkuð inni.“ Samningatækni sem er vanmetin Hvernig eyðirðu köldum vetrarkvöldum með fjölskyldunni? „Í 80% tilvika er það að horfa á sjónvarp saman. Það byrjar með því að biðla til unglingsins á heimilinu að sitja með okkur foreldrunum og heimasæt- unni í sófanum, eftir það tekur við ca 40 mínútna leit að efni og samningavið- ræður um hvað á að horfa á, eftir það skóflum við í okkur ís meðan áhorfið á sér stað. Þetta er vanmetin stund í samningakennslu og umræð- um. Hin 20% eru bland af því að spila á spil og fá pössun til þess að geta farið út með eiginkonunni.“ Áttu gott ráð fyrir aðra foreldra að gera með börnunum þegar veðrið er vont? „Til að vera með börnunum hefur það borið árangur að bjóða þeim 15 ára í ræktina á kvöldin og dóttirin hefur einstaka sinnum gaman af kvöldsundi ef hægt er að taka vin- konur með. Þetta fer talsvert eftir aldri barnanna hverju sinni og börnunum sjálfum. Þá er hægt að bjóða í sokkabingó – það er að flokka hrúgu stakra sokka sem koma úr þvottinum og hafa safnast úr nokkr- Ó lafur starfar hjá Gallup sem sviðsstjóri markaðsrannsókna. „Ég hef stundað skot- veiðar frá unglingsaldri eftir að hafa kynnst þeim gegnum mág minn og föður. Var svo heppinn að eignaðist vini snemma í Menntaskólanum á Akureyri sem brunnu jafnheitt fyr- ir þessu sporti sem fer að mestu fram um vetur. Við það blandaðist áhuginn á tölum og rannsóknum að reyna að greina áhrifaþætti á atferli fugla og lesa sér til um veiði og skotfimi. Svo hefur reynslan kennt manni að suma hluti er ekki hægt að læra af bók og eru veiðar á fuglum svo sannarlega einn þeirra.“ Að ganga til rjúpna Hvers nýtur þú á veturna? „Í fyrsta sæti er án nokkurs vafa að ganga til rjúpna. Þegar það tímabil kemur er eftirvænting og tilhlökkun allsráðandi og að ná fallegum degi á fjöllum er engu líkt. Að viðbættum góðum félagsskap er þetta ómetanleg upplifun og ekki verra að ná nokkrum fuglum og koma örþreyttur í bíl eða heim með góða veiðisögu í sarpinn til að rifja reglulega upp. Það hefur svo undantekningalaust verið ánægja að hitta aðra veiðimenn á fjöllum, ræða málin og óska hver öðrum velfarnaðar.“ Hvað er það fallegasta við árstíðina? „Skyggnið á haustin og veturna er ákaflega fallegt þegar sólin litar fjöllin seinnipartinn og haustlitirnir eðli- lega. Að ferðast í miklum froststillum er frábært, þegar allt er skýrt og heitt kaffið í fjölnotabollanum og góður þáttur í spilaranum. Eða bara börn að biðja um að stoppa og fá ís. Það er alveg notalegt líka.“ Ertu duglegur að æfa úti í kulda? um vélum. Líklega hef ég mest gaman af því að sjá þau para sam- an og hrúguna minnka.“ Borðar þú öðruvísi mat á veturna en sumrin? „Nei alls ekki, borða góðan mat allt árið.“ Telst það uppskrift? Áttu uppskrift að einhverju góðu? „Alls ekki, ég elda ósköp lítið nema ég geri góð hrærð egg. Trikkið er að vera aðeins á 80% mögulegs hita á hellunni og ekki vera að ves- enast of mikið í þeim, taka þau fyrr af en seinna. Telst það vera upp- skrift?“ Áttu góða minningu af þér að vetri til í æsku? „Auðvitað, ég man sérstaklega eftir rosalegum norðurljósum þegar ég var 12-13 ára á Skagaströnd þar sem ég ólst upp. Þá vorum við krakkarnir úti að kvöldi til og mynduðu norð- urljósin að manni fannst nótur á hljómborði og voru í öll- um mögulegum litum. Sýningin stóð lengi yfir og það var fimbulkalt og lítil ljósmengun að trufla. Þetta var svo magnað því ljósin virtust vera allan hringinn í kringum okkur.“ Fallegir dagar á fjöllum eru engu líkir Ólafur Elínarson er áhugamaður um samkvæmisdansa, skotveiðar og körfu- bolta. Hann er mikið fyrir útiveru, sérstaklega þegar hann fer út að veiða fugla. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/aðsend Íslensk náttúra getur verið eins og fallegt málverk yfir vetrartímann. Ólafur Elínarson er mikill veiðimaður og elskar fátt jafn mikið og að stunda rjúpna- veiðar á þeim tíma sem það er mögulegt. „Þá er hægt að bjóða í sokkabingó – það er að flokka hrúgu stakra sokka sem koma úr þvottinum og hafa safnast úr nokkrum vélum. Líklega hef ég mest gaman af því að sjá þau para saman og hrúguna minnka.“ 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Herjar haustkvefið á Bio-Kult Candéa eykur mótstöðuafl líkamans Inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipkjarnaþykkni. Góð og öflug vörn fyrir mótstöðu líkamans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.